Siglfirðingur - 05.04.1924, Qupperneq 2
74
SIGLFIRÐINGUR
ar við alþingiskosningar; flm. Þór-
arinn, Jörundur, Ottesen og Jón
Sigurðsson — Um að síðari máls-
gr. 1. gr. og önnur málsgr. 4. gr.
falli burtu.
29. Frumvarp um breyting á
lögum um veð, nr. 1S, 4. nóv.
1887, flm. Magnús Torfason —
Frv. þetta heíur verið felt.
30. Frumvarp til laga um breyt-
ing á lögum nr. 35. frá 30. júlí
1909, ,um stofnum háskóla, flm.
Jón Porláksson — Hjer eru sam-
einuð í eitt öll þau frumvörp um
fækkun embætta við háskólann,
sem komið hafa fram áður, og
auk þess lagt til að fækka prófess-
orum við lagadeildina og í íslenskri
málfræði.
Alþingi.
Afgreitt sem lög.
6. Uni breyting á lögum nr. 29,
20. júní 1923, um atvinnu við vjel-
gæslu á ísl. mótorskipum.
7. Um bráðabirgðaverðtoll á
nokkrum vörutegundum.
8. Um mælitæki og vogaráhöld.
9. Um að innheimta í gullkrón-
um sektir fyrir landhelgisbrot.
Ringsályktunartillögur.
10. Um bann gegn innflutningi
útlendinga í atvinnuskyni; flm. Ás-
geir og Jón Kj.
12. Um undirbúning þegnskyldu-
vinnu; flm. Magnús Jónsson og
Ásgeir.
12. Um launauppbætur til 3ja
yfirfiskimatsmanna; flm. sjáfarút-
vegsnefnd nd.
13. Um gullkaup til seðlatrygg-
ingar; flm. Sveinn og Ingólfur.
14. Um endurheimt ýmsra ísl.
skjala og handrita, sem enn eru í
söfnum í Kbh.; flm. Tryggvi og
Benedikt.
15. Um fækkun ráðherra; flm.
Magnús Torfason.
16. Um að láta ransaka meðferð
og stjórn Landsbókasafnsius; flm.
Jónas Jónsson.
17. Um að leggja niður áfengis-
verslunina á Siglufirði; flm. Einar
Árnason.
Ý m i s 1 e g t.
í stað Magnúsar Guðmundsson-
ar hefir Jón Auðunn verið kosinn
varaforseti nd. og Sigurjón í fjár-
veitinganefnd. í stað Jóns Rorláks-
sonar hefir Björn Líndal verið kos-
inn í fjárhagsnefnd og Bernharð í
alsherjarnefnd. — Frumvarp Möll-
ers um afnám einkasölu á tóbaki,
hefir verið felt.
LÖG
um bráðabirgðaverðtoll á
nokkrum vörutegundum.
1. gr. Hver, sem fær vörur frá
útlöndum, er skyldur til, áður en
vörurnar eru afhentar honum, að
sýna hlutaðeigandi lögreglustjóra
eða umboðsmanni hans reikning
yfir innkaupsverð þeirra, kominna
um borð í skip, er flytja á vörurn-
ar hingað til lands. Retta nær til
allra vara, sem hingað eru sendar,
að undanteknum íslenskum afurð-
um, sem endursendar eru, ogvenju-
legum farangri ferðamanna. Alla
reikninga um vörur, er um ræðir í
1. gr. 3., 6. og 7. lið laga nr. 38,
27. júní 1921, um vörutoil, svo og
reikninga um fólksfiutningsbifreiðar,
tilbúnar hurðir og glugga, skal lög-
reglustjóri eða umboðsmaður hans
stimpla með merkjum þeim og á
þann hátt, er um ræðir í lögum
nr. 75, 27. júní 1921, og skulu
allir slíkir reikningar stimplast með
20°/0 af innkaupsverði þeirra vara.
— Verði ágreiningur um flokkun-
ina, fellir ráðherra um það fullnað-
arúrskurð.
Undanþegnar þessu gjaldi eru
vörur þær, er nú skal greina:
Galvaniseraðir balar, brúsar og
fötur, bambus, bast, bíla- og hjól-
hestadekk og slöngur, botnvörpur,
botnvörpugarn, burstar og kústar,
dynamit, dælur, ný epli, ger, ger-
duft, glóðarlampar, hampur, kátsjúk
(óunnið), kopar, kolsýra, karbólín,
lamir, lásar, gluggajárn, skrár, lækn-
istæki, lyklar, lampaglös, sútað leð-
ur og skinn, viðhafnarlaus skófatn-
aður úr skinni og gúmmí, gúmmí-
hælar og sólar, lóóarbelgir, lampa-
kveikir, lyfjavörur, meðalalýsi, máln-
ing, mottur til umbúða, net, niður-
soðin mjólk, ostahleypir, pottar,
pönnur, prentletur, prentsverta,
prjónavjelar, rafmagstæki og mælar,
ratin, reikningsspjöld, röntgentæki,
sáraumbúðir, saumavjelar, seglgarn,
sildarkrydd, skipsbrauð, smíðatól,
sveskjur, svínafeiti, trjeskór og
klossar, talsíma- og ritsímatæki, ull-
arkambar, vaxdúkur, veggfóður,
vjelareimar, vír úr járni og kopar,
vogir, önglar og öngultaumar, tvist-
tau, flónel, bommesie, lasting, ljer-
eft, dowlas, stout, molskinn, nankin,
boldang, blautsápa, garn alskonar
til heimilisiðnaðar og nýtt græn-
meti. Ennfremur er stjórninni heirn-
ilt að undanskilja þessum tolli þær
efnivörur, sem innlend iðnaðarfyrir-
tæki sanna fyrir henni að þau noti
til starfrækslu sinnar.
2. gr. Ákvæði 4. til 15. greinar
laga nr. 38, 27. júni 1921, um vöru-
toll, skulu einnig gilda, eftir þvi
sem við á, samkv. 1. gr. þessara
laga, Ráðherra getur með reglugerð
sett nánari fyrirmæli um innheimt-
una, um greiðslu stimpilgjaldsins
af þeim vörum, sem eru sendar til
landsins í pósti, og annað, er snert-
ir framkvæmd laganna. í reglugerð-
inni má ákveða sektir fyrir brot á
henni.
3. gr. Lög þessi öðlast gildi þeg-
ar í stað og gilda til ársloka 1925.
Lenín og starf hans.
Úr norsku blaði
Lenín dvaldi á Svisslandi þegar
Marzbyltingin hófst og tókst hon-
um, ásamt nokkrum meiri háttar
Bolsjevikkum, að fá fararleyfi um
Rýzkaland. Sagan um »blývagninn«
er, ef- til vill, heilaspuni einn, en
hitt er víst, að þessir menn hjeldu
leiðar sinnar með samþykki þýzka
hershöfðingjaráðsins. Retta hefir
Hoffmann hershöfðingi sjálfur kann-
ast við og farið um það svofeld-
um orðum: »Við notuðum Lenín
og Ttrotský á sinn hátt eins og
við notuðum eiturgufu fremst í
fylkingum.« En hershöfðinginn Ijet
þess raunar getið um leið, að ef
Rjóðverjar hefðu búist við, að af-
leiðingarnar yrðu slíkar, sem raun
varð á, þá hefði eflaust komið hik
á þá.
En svona komst nú Lenin til
Rússlands og afleiðinganna var ekki
lengi að bíða. Eins og kunnugt