Siglfirðingur - 13.06.1924, Side 2
SIOL. FIRÐIN.OUR
102
K-a-f-f-i
brent og malað frá
r
Sophusi Arna
Noregs er hjer um bil 4 milj. kr.
virði.
Sje nú litið á málið frá vershm-
arviðskiftasjónarmiði, þá má gera
ráð fyrir, að rnenn hafi alment ekki
geit sjer grein fyrir, að við höfum
margra og mikilla hagsmuna að
gæta á íslandi og megum vera við
því búnir að íslendingar gjaldi líku
líkt. Því sannleikurinn er sá, að vjer
höfuin meiri hagsinuna að gæta á
íslandi, en íslendingar í Noregi.
Norskar síldveiðar á íslandi nema
árlega nálægt 7 miijón króna.Norð-
menn eiga stórar síldarverksmiðjur á
íslandi. Aður ráku þeir þar hval-
veiðar. Hvað vöruflutninga snertir
eru íslendingar einnig góðir við-
skiftamenn. Norsk skip flytja aðal-
lega kolin til íslands og saltfiskinn-
til Spánar og Portúgal. Nú hafa 2
skip reglubundnar ferðir á milli
Noregs og íslands. Ennfremur eru
Norðmenn farnir að gjöra sjer far
um að koma norskum afurðum til
íslands, og verið tekið þar vel.Vöru-
flutningar á milli Ameríku og ís-
lands eru ennfremur á norskum
skipum yfir Bergen. Eigi þessi við-
skifli því ekki að fara í hundaua,
má ekki líta of einhljða á kjöttolls-
málið Tvö ár eru nú liðin síðan
fyrsta tollálagningin kom, og verði
tollinum ekki Ijett af svo um muni
er Ijóst, að viðskiíti vor við íslend-
inga, sem þegar eru komin á góð-
an rekspöl, kverfa úr sögunni. Og
þá skulum vjer gæta þess, að þeir
sem horfa með ánægju á aðíarirn-
ar, það eru Danir,.því þeirra erindi
rekum við með þessu móti.
Vjer höfum nú sjeð, að á Alþingi
íslendinga hefur komið fram frum-
varp þess efnis, að leggja 50—250
þús.kr. toll á norska síldarframleiðslu
og 20 kr. á tonn í hverju skipi.
Petta er hnefahögg, sem bent er að
Noregi, og sem getur orðið full al-
varlegt fyrir norsk-íslensk viðskifti.
Vjer vonum þessvegna að Stór-
þingið líti ekki einhliða á þetta mál
og gæti vel að þeim dilk, sem það
getur dregið á eftir sjer, bæði frá
þjóðlegri og fjárhagslegri hlið sjeð.«
Porst. Porsteinsson.
hreppstjóri í Vík
var fæddur 17. júní 1853 á Hjalla-
Iandi í Vatnsdal og voru foreldrar
lians Porsteinn Porleifsson er síðar
bjó f Kjörvogi, annálaður þjóðhagi,
og Herdís Jónsdóttir, prestsáUnd-
irfeili. Porst. sál. fluttist tveggja ára
gamali að Barði í Fljótum, til sra
Jóns Norðmanns og konu hans,
Katrínar móðursystur sinnar, og
ólst upp hjá þeim. Sra Jón Norð-
mann var orðlagður gáfu og lær-
dómsmaður, og naut Porst. þar
góðrar alþyðumentunar, því hann
hafði góðar gáfur ög fjölhæfar, og
á einu sviði, — í stærðfræðinni —
svo framúrskarandi að fáum mundi
þar hafa hent að þreyta við hann.
Kendi hann síðar mörguin sjó-
mannafræði með besta árangri.
El'tir Iát fóstra síns, dvaldi Porst.
hjá móðursystur sinni og stóð
lengst af fyrir búi hennar meðan
hún þurfti þess við.
1889 giftist Porst. sál. Guólaugu
Baldvinsdótíur fiá Máná sem lifir
mann sinn, og bygði á næsta vori
nýbýli við Haganesvíkina og kall-
aði Vík. Par hafa þau hjón búið
ávalt síðan, og stundaði Porst. sál.
þaðan jöfnum höndum sjó- og
landbúnað. Svo sem vænta mátti eft-
ir hæfileikum hans, stóð Porst. sái.
mjög framarlega í opinberum málum
sveitar sinnar, og voru honum fal-
in mörg trúnaðarstörf. Hann var í
Hreppsnefnd Haganeshrepps nær-
felt óslitið frá 1891 og lengst af
oddviti, sýslunefndarmaður varhann
í samfelt 12 ár og hreppstjóri frál916
til dauðadags auk ýmsra annara op-
inberra starfa er hann gengdi.
1 bindindismálinu beilti Porst sál.
hæfileikum sínam vel, og starfaði
slitlaust fyrir það meðan stúka var
í Fljótum, og alt til dauðavar það
honum hjartfólgið áhuganiál
B a n n.
Hjermeð er öllum strang-
lega bannað að reka fjen-
að sinn á jörðina Engi-
d a 1 nema að hafa samið
um borgun fyrir það við
undirritaðann.
Siglufirði 12. júní 1924
Sophus Árnason.
Skömmu eftir að sími var lagður
um Haganesvík, varð Porst. þar
stöðvarst. og nokkru síðar póstaf-
greiðslumaður og gengdi hann þeim
störfum til dauðadags.
Pau hjón, Porst, og Guðlaug,
eignuðust tvö börn er úræsku kom-
ust, en það eru þau Sveinn skipstj.
og Herdís sem bæði eiga nú heima
lij'er.
Vík, heiinili þeirra hjóna, var ann-
álað gestrisnisheimili; fyndni og
fróðleikur kryddaði þar veitingarnar
og holl ráð voru þar ætíð láti.nn í
tje af fúsu geði hverjum nauðleyt-
armanni, og þeir voru margir fer
þangað sóttu.
Porst. sál. var prúðrnenni í sjón
og í raun; geðstiltur og hygginn,
varfærinn og vandaður svo, aðhann
vildi ekki vamm sitt vita, fróður og
víðlesinn og dreugur hinn besti.
Smiður var hann góður, bæði á trje
og járn, nærfærinn við sjúka og
hjálpaði oft með góðum árangri í
sjúkdómstilfellum er ekki náðist til
læknis. Gáfur Porst. sál. vorumikl-
ar og sjerkennilegar og alloft mun
hugsanaferill hans hafa legið nokkuð
utan við liina breiðu þjóðleið, svo
sumum þeim er grynnra ristu veitt-
ist nokkuð erfitt á stundum að fylgj-
ast þar með, en hann komst ein-
mitt þess vegna, oft lengra en fjöld-
inn.
Með Porst. í Vík er til moldar
genginn sá maður, er mjög hefír
mótað sveit sína á marga iund, og
sem óefað má telja einhvern lang-
merkasta manninn sem Vesturfljót-
in hafa eignast hinn síðasta manns-
aldurinn. Mun sess lians þarvand-
fyltur, bæði í hinum opitiberu trún-
aðarstörfum, og sem manns.
J- J.