Siglfirðingur


Siglfirðingur - 18.07.1924, Qupperneq 2

Siglfirðingur - 18.07.1924, Qupperneq 2
118 SIGLFIRÐINGUR Stórstúkuþing Templara var háð á Akureyri dagana 7. til 13. þ. m. Mættir voru þar um 60 íulllrúar víðsvegar að aflaudinu.og einn norskur stórstúkfjelagi, sem var hjer á ferðalagi. Pingið hófst með skrúðgöngu frá samkomuhúsi bæjarins, og í kirkj- una. Par fór fram hátíðleg guðsþjón- usta; prjedikaði sra, Gunnar í Saur- bæ, en vígslubiskup Geir Sæmunds- son þjónaði fyrir alteri, og söngfl. undir stjórn Sigurgeirs söngkennara stýrði söngnum, voru viðhafðir há- tíðarsöngvar sra. Bjarna Rorsteins- sonar. Pá var gengið aftur í skrúðgöngu útað Templarahúsinu, og þingið sett af Stórtemplar Ejnar H. Kvaran í samkomusal bæjarins. Af málum þeim sem þingið hafði til meðferðar og sem voru mörg, eru þessi hin helstu: 1. Breyting Siðbókarinnar. — í samræmi við ákvörðun síðasta há- stúkuþings, var æfilanga bindind- isheitið afnumið við inngöngu í regluna. 2. Unglingareglan fær hjer eftir sitt sjerstaka þing sem hefir flest öll mál hennar til meðferðar 3. Samþ. áskorun til stjórnarinnar að halda kappsamlega áfram til- raunuin til ótvegunar nýrra fiski- inarkaða. 4. Skorað á stjórnina að lilutast til um, að bindindisffteðsla verói tek- in upp í öllum barna- og unglinga- skólum landsins. 5. Samþ. áskorun til stjórnarinnar um betra eftirlit með áfengissölu lækna og lyfsala. 6. Afnám áfengisverslunar ríkisins á Siglufirði. Uni það mál mun jeg skrifa sjerstaklega síðar. 7. Skorað á stjórnina að auka toll- eftirlit, sjerstaklega hjer á Siglufirði yfir síldartímann. 8. Skorað á stjórninaað vikja þeim embættismönnum úr embættum, sem sannir verða að embæitisvan- ræksiu sökum drykkjuskapar, eða láta sjá sig ölfaða á almannafæri. 9. Samþ. að senda Indriða Einars- son skáld, á norræna bindindis- fundinn sem haldinn verður í Osló í sumar. Fjárhagur reglunnar er þröngur, og var í því tilefni skorað á alla bindindisvini, utan reglunnar sem innan, að styrkja starfið með frjáls- um fjárframlögum. Yfirstjórn reglunnar hjer á landi, hefir altaf áður átt aðsetur í R.vík. Sú breyting varð á því á þessu þingi, að framkvæmdanefndin var flutt til Akureyrar, og skipa hana þessir menn: St.T. Brynleifur Tobí- asson kennari Aki reyri, St.Kansl. Þorst. M. Jónsson kennari f. alþm. Akureyri, St.Vt. Álfheiður Einarsd. frú. Akureyri, St.Rit. Halld. Friðjóns- son ritstj. Akureyri, St.Gjk. Guðbj. Björnsson kaupm. Akureyri,St.gæsl,- u. t. Steínþór Guðmundsson skóla- stj. Akureyri, St.Kap. Gunnar Bene- diktsson prestur Saurbæ, St.Fræðslu- stj. Jón I3. Björnsson kennari Sauð- árkrók, St. fregnritari Sig. Kristjáns- son kaupm. Siglufirði. Pingið fór að öllu hið besta fram og nefnd sú sem kosin hafði verið af Akureyringum til að annast mót- töku gestanna og allan undirbún- ing, leysti starf sitt hið besta af hendi. Efndi hún einn daganna til skemtifarar fram í Eyjafjörð og til kaffisamsætis með ræðuhöldum og dansleik í þinglok. Fulltrúarnir fóru flestir heim með Botníu. J. Erl. símfrjettir. Það er opinbeilega tilkynt að for- ingi dönsku sendinefndarinnar í Moskva, Schou, hafi verið skipað- ur sendiherra Dana í Rússlandi og foringi tilsvarandi nefndar í Khöfn skipaður Margé d’affaires í Kaup- mannahöfn. Macdonald fór skyndiför til París 8. þ. m. til þess að leiðrjetta mis- skilning útaf væntanlegum Lund- unafundi. Varð fundur þeirra Herri- ots hinn vinsamlegasti og horfur á góðu samkomulagi milli þeirra. Tollsamningar Norðmanna og íslendinga hata verið birtir: Fiski- stöðvar Norðmanna hjer á landi má reka meðan íslenskt saltkjöt nýtur tolllækkunar í Noregi. Skipagjald skal vera hið sama á ölium höfnum Norðmönnum sje leyfilegt að nota síldarbáta (snurpubáta) til flutninga i höfnum og ákvæðið um að bátar skuli vera á þilfari og veiðarfæri innanborðs skal óátalið þó fyrir- skipunum þar um sjeekki nákværn- lega fylgt, ef bátarnir eru ekki utanborðs til veiða. Ef skip er tek- ið og vill ekki greiða sekt, skal það látið laust áður en dómur er ákveð- inn. Fiskiveiðalögin skal framkvæma eins og áður með velvild til Norð- manna, en engin tilslökun er gerð á veiði, veikun eða utnhleðslu í landhelgi. Lundunafundurinn hófst á mið- vikudag og er búist við góðum af- leiðingum. Ameríkumerin óska eftir fjárhagslegri samvinnu og innilegra sambandi við Evropuþjóðirnar. ítalskir flugmenn ætla að fljúga frá Rómaborg til New-York og leggja leið sína uin ísland og Grænland. Norsk söngmær, Wisa Axelsen, er nýkomin hingað til bæjarins, og ætlar að syngja í Nýja Bíó á mánudagskvöldið. Sönginær þessi hefir lært hjá Árnwan Erpecum Sem í Kristjaníu og Kammersanger Jan van Gork- om Pýskalandi. Hún söng í fyrsta sinn opinber- lega í Stavanger um jólin í vetur, og fjekk einróma lof fyrir. í Stav- anger Aftenblad er söngs hennar getið á þessa leið: Sangerinden Wisa Axelsen debut- koncert igaar i Godtemplarsalen var meget godt besokt, og efter det liv- lige bifald at domme slog hendes sang udmerket an. Frk. Axelsen har en hoi, lys klingende sopran- stemme, som delvis —særligíhoi- den — klang vidunderlig ren og vakker. Hún gerir ekki ráðfyrirað syngja hjer nema aðeins einusinni, og er vonandi að fólk noti tækifærið og fylli húsið. Söngmærina aðstoðar Molli Tjens- vold. A-l-l-s-k-o-n-a-r skipakostur ódýrastur í versl. Sig. Kristjánssonar,

x

Siglfirðingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.