Siglfirðingur


Siglfirðingur - 01.08.1924, Page 2

Siglfirðingur - 01.08.1924, Page 2
SIOLFIRÐINOUR 122 t . n V / SIGLFIRÐINGUR kemur út fyrst um sinn á hverjum föstu- degi. Fyrsti árgangur, minst 40 blöð kostar 4 krónur er greiðist fyrirfram. I lausa- sölu 15 aura blaðið. Erlendis kostarblað- ið 5 króntir. Auglýsingar kosta 1 kr. hver centimeter dálksbreiddar og greiðast við afhendingu nema öðruvísi sje umsamið. Þeir sem auglýsa milcið geta komist að samningi um lægra verð. — Auglýsingum sje skil- að á prentsmiðjuna eða til útgefanda fyr- ir miðvikudagskvöld. Ritstjórn og afgreiðslu annast útgef. seta tilnefningu og verða þessir í kjöri: Frá Republikönum Coolidge, núverandi forseti; frá Demókrötum William Dawis fyrv. sendiherra í London og frá jafnaðarmönnum La Folletta frá Wisconsin. Disconto- og Revisionsbankinn í Khöfn hefir stöðvað útborganir fyrst um sinn. Erfiðieikar á ráðstefnunni í Lon- don, aðallega viðvíkjandi lánveit- ingum til viðreisnar Þýskalandi. Hafa ýms skilyrði komið fram frá fulltrúum lánveitenda, svo óvíst er hvernig málið endar. Norska stjórnin hefir sagt af sér vegna þess að þingið feldi frum- varp hennar um afnám bannlaganna. Rvík 1. ágúst Stjórnarskífti í Noregi. Mowinkel forsætis- og utanríkisráðherra, Paul Berg dómsmálaráðherra, Five land- búnaðarráðherra, Holmsbo fjármála- ráðherra, Meling verslunarráðherra, Tveiten kirkjumálaráðherra. Útlit fyrir hungursneyð á kom- andi vetri í Rússlandi. Lítil steinolíulind fundin nálægt Oautaborg. Pýskaland fær yfirráð yfir fjármál- um og tollmálum í Ruhrhjeraðinu. Qwest kom til Reykjavíkur með skipshöfnina af Teddy. Doktor Svendsen, danskur mað- ur, flutti fyrirlestur í Rvík um rauða- krossinn. Garöyrkjusýning verður haldin í Rvík síðast í ágúst. Larebell, breskt herskip liggur í Rvík. Guðm. Thorsteinsson listm.ílari andaðist í Sölleröd 26. júlí. S v a r. »Grillir< notar skúmaskot (skarnið rotið gleymsku) og visku þrotinn fór á flot fullur þotuin heimsku. A. Johnson. »Sjer þú það Pórour, tkki grilii jeg þaó var haft eítir Geir Zöega- Sama varð Siglfiróing að orði. Hann sjer ekki hvert skeyti þessti er stefnt og grunar helst að örin bendi svo langt frá marki, að »fjandinn sjái hana el.ki í besta kíki«. Pýðing eggjahvítunnar. Kaíli út skýtslu Hvanneyraskólans. Pegar þvagrannsóknin kom um veturinn 1Q13, með þessu litla köfn- unarefnismagni, var strax gerð smá fóðurstilraun. Pá um veturinn var til slatti af matarsíld í tunnu. Voru nú 2 kúin gefnar 2 síldar á dag hvorri. Voru þær rétt strax mjög gráðugar í sildina, benti það líka á þöríina. Efttr stuttan tima græddu þær sig um 2 lítra hvor af mjólk. Eg fjekk 1 kg. af mjólg fyrir 1 síld, Voru það allgóð skifti og benti líka greinilega á, að fóðrið væri illa sam- sett og ófullnægjandi til mjólkur- myndunar. Petta er fyrsta ástæðan til þess að eg fór smátt og smátt að breyta um fóður mjólkurkúnna. Minka hey- gjöfina, sjerstaklega þurheyið, en f þess stað blanda sáman ýmsum öðrum fóðurtegundum. Hefir það gefist mæta vel, eins og eftirfar- andi samanburður sýnir á árunum 1913 og 1923. Veturinn 1913 fjekk meðalkýrin á Hvanneyri í 38 vikna innistöðu 1568 f. e. af heyi og mjólkaði á þeim tíma 1593 kg. 1923 vóru kýrnar inni á gjöf í 32 vikur og sje mjólkur og fóðurtfmi styttur um 6 vikur, svo'jafn langur verði og 1923, eru hlutföllin þessi: 1913 1923 Vetrarmjólkin .. 1342 kg. 2229 kg. Sumarmjólkin . . 57o — 1022 — Heyfóður (32 v.) 1320 fe. 1124 fe. Fóðurblanda 216 — Ársmjólkin . .2163 kg. 3251 kg. Vetrarfóðrið ... 1568 fe. 1340 fe. Meðalkýrin 1923 hefir jetið 20 fe. meira. en meðal kýrin 1913 á sama tíma, en líka mjólkað á þess- um tíma 887 kg. meira af mjólk eða alls yfir árið 1088 kg. Sviar og Danir fá í nautgripa- ræktunarfélögunu^i sínum 3 kg. al mjólk fyrir hverja 1 fe. I afurða fóðrinu. Reiknað eftir sömu reglum og þeir, fengum við 1.9 kg., en 1923 3.09 kg. fyrir hverja fóðurein- ingu í afurðafóðrinu, eða nálega sömu tölu og þeir. Meira. Siglufjörður. »Siglfirðingur« gat ekki komið út uni siðustu helgi vegna anna, á prentsmiðjunni. Ritstjórinn er nú á ferðalagi vestur í Skagaf. og annast Jón Jóhaitnesson um út- komu blaðsins í fjarveru hans. Eru menn beðnir að snúa sér til hans, eðatil Stefáns verslunarm. Stefánssonar með auglýsingar og annað, blaðinu viðkomandi. Afli. Síldveiði var góð fyrri viku, og mun um siðustu helga hafa yerið búið að salta hjer á Siglufirði um 40 þús. tunnur. Þessa viku hefir veiðin verið fremur treg, enda hafa þokur talsvert hamlað. Þrfr farmaraf síld hafa þegar verið sendir af stað hjeð- an tii Svíþjóðar. Þorskaf 1 i hefur verið allgóðar Tíðin hefur veríð nokkuru betri nú á síðkast- ið. Þokur hafa að sönnu verið, en hlýtt veður. Grasvöxtur er nú að verða í með- allagi á túnum, en ljelegur á útengjum. Sláttur byrjaði alment um fyrri helgi. Skipstrand. Um fyrri helgi sfrandaði Nýpan færey- iskur botnvörpungur, á Skallarifi við Skaga. Mannbjörg varð, en skipið sökk. Það var á leið hingað norður á síldveiðar. Nokkur síldar9kip hafa runnið á grunn nú síðustu dagana í þokunni, en öll náð sjer sjálf af aftur, og án verulegra skemda.

x

Siglfirðingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.