Siglfirðingur - 01.08.1924, Page 3
123
SIGLFIRÐINOUR
>Nýja Bíó«
var opnað fyrra föstudag. Var þangað
boðið húsfylli af bæjarbúum, og var þar
til skemtunar tvísöngur þeirra konsúlanna
Porm. Eyólfssonar og S. A Blöndals, og
kyikmyndin »Madsalune*. Húsið er hið
myndarlegasta, og mynd sú er sýnd var,
ágætlega leikin. Þótti skemtunin hin besta
og eigenditrnir sýna rausn,
Síðan héfir mynd þessi verið sýnd oft •
fyrir fullu húsi.
»Bíó«
sýnir nú Fjallaeyvind<, og hlýturmynd-
in mesta lof
Oóðir gestir
hafa verið hjerá ferð, þarsem þærvoru
söngkonurnar ungfrú Wisa Axelsen og
og frú Signe Liljequist. Sú fyrnefnda
söng hér að eins einu sinni, fyrir fullu
húsi, og fjekk einróma lof.
Hin síðarnefnda söng hér 4 sinnum og
' alfaf fyrir futlu húsi og hvað mest síðasta
kvöldið. Frú Liljequist söng mörg ís-
lensk lög með íslenskum textum, og bar
þá fram svo vel, að furðu gegndi. — Það
er betra vitni um söng frúarinnar en
orðmirg lofgrein, hinn almenni fögnuður
er söng hennar var tekið með.og að eng-
. ann sem heyrði hana, mun hafa iðrað að
eyða tíma og fje til þass.
Ferðafólk
hef;r verið margt hjer í bænum síðustu
dagana, bæði innlent og útlent. — Tvær
sænskar ungfrúr komu með E.s. »Vargön<
og feiðuðust hjeðan til Akureyrar og aust-
ur í sveitir. Frú Henriksen, — ekkja H.
Henriksens sál. kom núívikunni. ogdvel-
ur hjer um tíma með yngsta syni þeirra
hjóna, og margir fleiri.
Dánaifregn.
nýlega ljest hjer Þórarinn Hallgrímsson
unglings piltur frá Húsavík úr mænuvéik-
inni.'
»Fylla<
tók tvö norsk síldveiðaskip í Húnaflóa
í fyrri vikú, í landhelgi, fór með þau til
Blönduós og voru þau sektuð, »Nanna<
um 300 kr. »Jarl< 3900 kr. — »Þór« tók
togara á Þistilfirði og fjekk hann 8000 kr.
sekt.
E.s. hland
kom hingað í gærmorgun með mikið
af vörum. Liggur hjer þessa daga ogtek-
fullfermi af síld.
E.s. Lagarfoss er væntanlegur á morgun.
Álalækurinn.
Að honum er altaf unnið af miklu kappi
og stundum daga og nætur. Náttúran
sjálf cr svo góð að senda vatn með hverju
flóði inn í gryfjurnar, til að veita fátæk-
um yerkalýð utan af landinu atvinnuna,
við að pumpa, — og það er bísnadrjúgt
þegar hægt er að koma því svo fyrir, að
sama vatninu er pumpað aftur og aftur
— þá er þetta nokkurskonar »eilífðarvjel<.
Nú er að koma »skorsteinn< upp úr miðri
aðalgötunui, svo borgar bæjarins eiga hægt
Strigaskór
ágæt og sterk tegund
Sig Kristjánsson.
með að finna »reykinn af rjettunum« þarna
niðri í jarðgöngunum, Oárungarnir deila
um það, hvort heldur fjósin og kýrnar
eða frú Guðrún muni orsaka það, að verk-
ið gengur svo rólega við »Haugasund« en
— að honum er uppbygging | sem eng-
in þó að fullu metur | og varla næst i
verkfræðing | sem veit eða gerir Flóvent
betur, — sagði einn sem fram hjá gekk í
dag.
Augnlæknir
Helgi Skúlason hefir dvalið hjer í bæn-
um nokkra daga. Aðsókn hefir verið afar-
mikil að honum. Hann fer til Akureyrar á
morgun.
Fjelag kvenna j
hjer í bænum bíður annaðkvöld til góðr-
ar skemtunar í leikfimishúsinu, Þar verða
sungnar gamanvísur, leikin og sýnd skraut-
sýning, og — auðvitað »ball« á eftir. —
Ágóðinn rennur í spítalasjóðinn hjer, svo
menn vinna tvent f einu yið að fjölmenna
þangað að fá góða skemtun fyrir væga borg-
un, og styrkja eitthvert mesta nauðsynja-
mál þessa bæjar.
Sundpollurinn
er nú fyrir nokkru tekinn til starfa.
Stefán B. Kristjánsson kennir þar
sund daglega, en fremur er þátttak-
an lítil. Mun þar fremurvalda það,
að nú er mestur annatími, jafnvel
fyrir smádrengina, fremur en hitt,
að áhugi sje svo lítill hjer fyrir sund-
lisltnni, enda væri þá illa, því sund-
listina má óefað telja þá þörfustu
og bestu list, sjerstaklega fyrir Siglu-
fjörð, — þarfari en allskonar inni-
leikfimi, að henni ólastaðrí^og er
vonandi að innan fárra ára verði
hver einasti siglfirðskur æskumaður
sæmilega sundfær.
Ungmennafjelagið hjer á heiður
og þökk skilda, fyrir atorku þá og
dug er það hefir sýnt í sundpolls-
málinu og bæjarstjórn sömul. fyrir
skilning þann er hún hefir sýnt,
með því að styrkja það af bæjarfje.
I. O. G. T.
Stúkan »Framsókn< nr. 187 heldurfundi
á hverju sunnuudagskvöldi kl. 7,30 í
leikfimishúsinu.
Nýir meðliniir velkomnir.
Unglingastúkan »Eyrarrós< nr. 68 lield-
ur fundi á hverjum sunnudegi kl. 3 á
sama stað.
Frj etti r.
Gjaldeyrisnefnd hefir verið skip-
uð samkv. lögum frá síðasta þingi.
Eiga sæti í henni Oddur Hermanns-
son. Sig. Eggerz og Georg Ólafsson.
Enskur togari, Kitchener, var
tekinn nýlega við Vestmanneyjar.
Fjekk hann 10 þús. gull-króna sekt
og afli og veiðarfæri gerð upptæk.
Alfinn seldist á hálft ellefta þús-
und krónur.
Vjelbáturinn »Shanghai« kom til
Reykjavíkur í síðustii viku. Kom
hann frá Kína og ætlaði til New-
York. Annar bátur kom þangað í
þessari viku, heitir sá »Leif Eiriks-
son« og var á sömu Ieið. Bandaríkja
menn stjórna þessum leiðangri.
Tíu herskip frá Bandaríkjunum með
1000 manna áhöfn koma til Rvíkur
til aðstoðar flugmönnum Ameríku.
Sokkar.
Dömu,- herra- barna-
ábyggilega í stærsta úrvali bæjarins
Sig. Kristjánsson.
Auglýsið
1
„Siglfirðingi.“