Siglfirðingur


Siglfirðingur - 29.08.1924, Síða 1

Siglfirðingur - 29.08.1924, Síða 1
SIGLFIRÐINGUR I. árg. Skapgerðarlist heitir nýútkomin bók, sem áreiðan- lega er langmerkasta, en um leið langódýrasta bókin sem út hefur komið á þessu ári, Pessa bók ættu allir að lesa. Fæst aðeins hjá Friðb. Níelssyni. Kaupstefna Noregs hefst í Oslo á sunnudaginn kemur og stendur til 7. sept. Er þetta fimta kaupstefnan og fer hún fram við Akerhuskastala. Tilgangurþess- arar kaupstefnu, sem annara, ersá, að styðja að aukinni framleiðslu og sölu norskra afurða, auka álit á norskum vörum og sýna bæði Norðmönnum og öðrum þjóðum, hvað landið getur framleitt. Aðsóknin að þeini kaupstefnum sem þegar hafa verið haldnar hefir reynst svo mikil, að nú hefir verið ákveðið, að stefnan skuli haldin á hverju ári, með sama fyrirkomulagi að öðru leyti sem undanfarið. Pessir eru sýningarflokkarnir á kaupstefnunni: 1. Steinategundir, járn, stál og málmar. - 2. Vjelar, áhöfd og verk- færi. — 3. Vjelar áhöld, lagnir o. s. frv. — 4. Járn, stál málmvörur og steypujármmunir. — 5. Almenn áhöld og vísindaleg tæki. — 6. Hljóðfæri. — 7. Gull-, emaille- og silfurmunir. —8. Gler, postulin og leirvörur. — 9. Búðargögn ogaug- lýsingatæki. — 10, Smávörur, leik- föng og handavinna. — 11. Veiði- áhöld og íþróttatæki. — 12. Fiski- veiðaáhöld. — 13. Leðurtöskur og ferðagögn. — 14. Skófatnaður, munir úr gúmmí, skinni og leóri. — 15. Tóvinna og fatnaður, ásamt efnum þeim, sem slíkt er unnið úr. Siglufirði 29. ágúst 1924. — 16. Timbur, trjámauk og »cellu- lose*. — 17. Prentvinna, pappírs- iðnaður og dráttlistarvinna. — 18. Munir úr trje, húsgögn og skrif- stofugögn. — 19. Byggingarefni og húsbygging. — 20. Strá- og tága- iðnaður, kaðlaspuni, bustar ogmott- ur. — 21. Efnablöndun og lyf, þar með talið: sápa, litaefni, farfi, olíur, lakk, tilbúinn áburður o. fl. — 22. Skotvopn, skot og flugeldar. — 23. Matvara og munaðarvara, þar á meðal: a. Jarðar- og garðagróði, b. Síld og fiskur, c. Niðursoðinn mat- ur, d. Mjólkurbúaafurðir, e. Malað- ar korntegundir, f. Sláturhús afurð- ir, g. Smjörlíki, h. Súkkulaði og sykur, i. Tóbak, j. Drykkir o. fl. — 24. Gripafóður. — 25. Ný einka- leyfi norsk, og uppgötvanir. Tilmæli til fiskimanna. Pað hefur verið merkt og slept nokkru afþorski og skarkola (»rauðsprettu<) við Norðurland í sumar, til þess að rannsaka göng- ur og vöxt þessara fiska við ísland. Merkið er svartur ebónít-hnapp- ur, og með stöfunum D a og núm- eri, festur á kjálkabarðið á þorsk- inum, en framantil á bakið á skar- kolanum. Peir, sem kynnu að veiða þannig merkta fiska, eru góðfúslega beðnir um, aó skrifa hjá sjer s t a ð, d ý p i og d a g, Iengd fisksins (frá snjáldri á sporðenda) og þyngdina upp úr sjónum o: óslægðann og senda merkið ásamt þessum upplýsing- um til skrifstofu Fiskifjelags íslands í Reykjavík, til erindreka fjelagsins á ísafirði, Eyjafirði eða Seyðisfirði eða þeirra manna, er þeir tiltækju. Fyrir hvert merki, ásamt umbeðn- 32. blað um upplýsingum, verða greiddar 2 k r ó n u r. Johs. Schmidt Dr. phil, & scient. Forstöðumaður fiskirannsóknanna við ísland og Færeyjar. „D a 5 0 7“ Einn af ofannefndu merktu þorsk- um veiddist í fyrradag á 45 faðma dýpi NO til Ö af Siglufirði, og bar hann ofangreint merki. Fiskurinn veiddist á mótorbát Dúa Stefánssonar og var 66 cm. á lengd, 38V2 cm. í ummál og 2,730 kg. að þyngd. — Fróðlegt væri að vita hvar og hvenær þorskur þessi var merktur, og hve stór hann var þá, og mun »Sglf.« reyna að afla sjer upplýsinga um það. Pýðing eggjahvítunnar. (Kafli úr skýrslu Hvanneyraskóláns.) Nl. Petta finst mjer benda á, aðfóð- ursamsetningur og hirðing kúnna sje nú orðin sæmileg, eða eins og gengur og geristí nágrannalöndun- um og að fóðrið sje rjettilega met- ið, eða lagt í fóðureiningar, en það var gert þannig: Taða............ 2 kg. = 1 fe. Úthey........... 2.5 — = - — Töðuvothey ... 6.6 — = - — Útheysvothey . . 8.2 — = - — Síld........ 1.6 — = - — Síldarmjö! .... 0.8 — = - — Mysa............12.0 — ='------- Rúgmjöl......... 1.0 — = - — Maís............ 0.95 — =------- Meðalkýrin 1923 fjekk: Töðu..................... 829 kg. Úthey.................... 1267 — Vothey................... 1309 —

x

Siglfirðingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.