Siglfirðingur - 05.09.1924, Page 3
SIGLFIRÐINGUR
131
Erl. símfrjettir.
Ný byrjað er á viðskiftasamning-
um milli Belgíu og Rússlands. Er
ætlun Rússa að gera Antwerpen að
aðal miðstöð verzlunar sinnar við
vesturþjóðirnar.
Macdenald hefur skrifað Herriot
brjef og lýsir þar yfir, að hann á-
Iíli Ruhrhjeraðstökuna með öllu ó-
leyfilega, og skorar á. Herriot að
kalla heim herinn hið bráðasta. Hef-
ir brjefið vakið miklar umræður í
Frakklandi.
Tillögur sjerfræðinganefndarinnar
um skaðabótagreiðslur Rjóðverja
hafa nú verið undirskrifaðir.
Lán handa Pjóðverjum, að upp-
hæð 40 miljónir sterlingspund, hef-
ur verið boðið út. Útboðsfrestur til
15. október,
Ákaflag aðsókn ráðgerð að þjóð-
bandalagsfundinum í Genf, og bú-
ist við góðum árangri af honum.
Sódavatns-
útflutningurinn.
Ein vörutegund er nú komin uí
íslenskum útflutningsskýrslum, sem
ekki hefur sjest þar áður, og það
er sódavatnið. Að vísu er hjer ekki
um háar tölur að ræða, enda er
þetta aðeins byrjun, dálítill vísir,
sem ekki er ólíklegt að eigi fyrir
höndum að dafna vel.
Forstjóri gosdrykkjaverksmiðjunn-
ar „Siríus“, hr. Frans Andersen
hefur skýrt Verslunartíðindum þann-
ig frá tildrögunum.
Snemma í síðastliðnum apríl mán-
uði fengu 2 hóteleigendur í Aber-
deen á Skotlandi sódavatn frá „Sirí-
us“, á Lagarfossi. f’ótti þeim það
svo bragðgott, að þeir pöntuðu
sódavatnssendingu þegar í stað.
Voru þá sendar 1500 flöskur 19.
apríl og var verðið (cif) 439 kr. 85
aur. 30. júlí voru svo sendar enn á
ný 800 fl, f. kr. 233.56. Hingað til
hefur ekki verið sent meira út, en
pantanir eru komnar fyrir nálega
jafnmiklu og út hefur verið flutt.
Vegna margvíslegs kostnaðar hef-
ur þetta sódavatn orðið dýrara en
hægt var að fá það annarsstaðar
frá. En þrátt fyrir það seldist það
svo vel, vegna þess að það þótti
öðru sódavatni betra. Petta er í
sjálfu sjer ekki undarlegt þegar þess
er gætt hvað veldur, að það er
hreina Gvendarbrunnavatnið, sem
gjörir drykkinn svalandi og Ijúf-
fengan.
Petta góða vatn þekkja allir Reyk-
ingar og fleiri, en hitt er sennilega
færri kunnugt um, að fyrir mörgum
árum sendi Ásgeir heit. Torfason
efnafræðingur vatn til rannsókna og
fjekk það svar, að óvíða mundi fást
annarstaðar hreinna eða betra.
Sje gert ráð fyrir að eftirspurn
eftir íslensku sódavatni fari vaxandi
frá útlöndum, sem ekki er ósenni-
legt, eftir því sem fleiri kynnast því
og kunna að meta gæði þess, þá
mæta tiifinnanlegir erfiðleikar sem
er fjárskorturinn, því þá mundi
þurfa allmikið rekstursfje. En hjer
eru byrjendur, sem verða að fikra
sig áfram stuðningslítið, og eru
jafnvel svo óhepnir að beina að sjer
erlendri athygli á hafttímum, sem
eru framleiðslu þeirra þrándur í
götu. Að vísu mun flösku-innflutn-
ingur frjáls, en án nokkurs inni-
halds. Gjörir þetta vöruna dýrari
en hún annars þyrfti að vera, ef
framlefðslukostnaðurinn Ijettist með
innflutningi öls eða annara löglegra
drykkja.
Er það leitt að þing og stjórnar-
völd, í stað þess að styðja, gjöra
ógagn þarflegum fyrirtækjum, sem
ekki óliklega hafa allmikla framtíð-
armöguleika í sjer fólgna.
(„Verslunartíðindi".)
Læknaþingið
sem haldið var á Akureyri í sumar,
samþykti meðal margs annars þess-
ar tillögur:
1. Fundurinn skorar á ríkis-
stjórnina að láta ekki drykk-
felda lækna vera í embætti.
2. Fundurinn skorar á ríkis-
stjórnina að hlutast til um, að
feld verði úr núgildandi lög-
um heimild lyfsala og hjerað-
lækna til að selja mönnum á-
fenga drykki eftir lyfseðlum.
Pað þykir tíðindum sæta, að slík-
ar samþyktir skuli koma frá lækn-
unum sjálfum, þeirri stjettinni, sem
mest og best liafa hagnast á um-
ræddri heimild. Mætti það verða
fyrirboði gagngjörðra endurbóta um
meðferð áfengis á landi hjer.
Frj etti r.
H.f. Kveldúlfur í Rvík hefurkeypt
Hjalteyri við Eyjafjörð fyrir 140 þús.
krónur. Seljandinn er ekkja Jóns
heitins Norðmanns.
24. ágúst var háó hjólreiðakapp-
mót í Rvik á 90 km. vegalengd.
Keppendur voru 11 en aðeins 3
komust alla leið. Þorst. Ásmunds-
son var 4 kl. 21 m. 40 s. Axel
Grímsson var 4 kl. 35 m. 24,5 s.
og Jón Kjartansson var 4 kl. 54 m. 25 s.
»Snorri Goði« heitir nýr botn-
vörpungur sem h. f. Kveldúlfur
hefur keypt frá Noregi.
»Afmælisfjelagið« heitir nýtt fje-
lag sem nokkrir menn hafa stofnað
í Rvík, og eru í stjórn þess Ólafur
Lárusson, Georg Ólafsson, Ársæll
Árnason, Egill Jacobsen og Magn-
Kjaran.
Sjera Stanley Guðmundsson á
Barði í Fljótum, hefur tekið sér ætt-
arnafnið Melax, og fengið staðfest-
ingu stjórnarráðsins á því.
Matthías Rórðarson hefur nýlega
fundið bæjarrústir Herjólfs Bárðar-
sonar lándnámsmanns Vestmann-
eyja.
Dómur er fallinn í máli því sem
S. í. S. höfðaði gegn Birni Krist-
jánssyni fyrir ritið »Verslunarólagið«.
Krafðist Sambandið að fá hálfa
miljón króna skaðabætur auk hæfi-
legrar sektar. — Dómurinn sýknaði
Björn af kröfum Sambandsins, en
dæmdi nokkur ummæli bæklingsins
dauð og ómerk.
í slysatryggingarnefnd hefir stjórn-
in skipaó þá Rorst. Porsteinsson,
Hjeðinn Valdimarsson og Gunnar
Egilsson.