Siglfirðingur


Siglfirðingur - 10.10.1924, Síða 1

Siglfirðingur - 10.10.1924, Síða 1
V SIGLFIRÐÍNGUR I. árg. Bæjarstjórnin vlnnur sjer til óhelgis. Borgararnir mótmæla. Framhald úr síðasta blaði, Ræðumaður (S. A. B.) gat þess ennfremur, að það sem hefði, auk þess er að fiaman greinir, komið sjer til að vera með áðurgreindri ráðstöfun á söitunarplássunum,hefði verið ótti við það, að svo lítil eft- irspuru kynni að verða eftir sölt- unarplássum næsta sumar, vegna aflaleysisins í ár, að lítið eða ekk- ert fengist fyrir plássin ef þessum tækifærisboðum yrði hafnað. Hann tók það ham, að maður hefði sagt við sig, að ekki tnundi einu sinni fást 200 kr. fyrir þau, hvað þá meira, og virtist ræðumanni ekki svo fjarri sanni, að þannig kynni að fara. Hann liti því svo á, að með því að samþykkja framkomin tilboð, hefði bæjaistjórnin »g r i p i ð gæsinac og trygt bær.um sæmi- lega leigu á föstum og tryggum grundvelli — og prerníu að auki ef vel gengi. Nú er það vitanlegt, að síðan þetta gerðist, hefur komið 6500 kr. tilboð í syðstu bryggjuna, húsa- lausa. Pessu boði hefur hafnarnefnd og bæjarstjórn hafnað, og þó er það sannanlega fullum þriðjungi hærra, hlutfallslega, heldur en það sem hinar bryggjurnar tvær, með öllu sem þeim tilheyra, hafa nú ver- ið leigðar fyrir. Hjer var því sann- arlega ekki minni ástæða til að »grípa gæsina«; og lítið virðist nú vera orðið úr óttanum um Iitla eða enga eftirspurn eftir söltunarpláss- um, úr því að ráðsmennirnir þorðu að eiga það á hættu, að hafa þessa bryggju óleigða fram á miðjan vet- ur frekar en hinar. — Hver á að Siglufirði 10. okt. 1924. borga þessar 6500 kr. svo að bærinn verði skaðlaus, ef þessi ótti tæðu- manns skyldi nú eiga eftir að ræt- ast og bryggjan ekki leigjast ? Eða voru það ef til vill aðeins tvær ytri bryggjurnar, íbúðarhúsið, geymslu- húsið og kolaþróin, sem ræðumað- ur var hræddur um, að enginn vildi taka á leigu næsta ár ttema Lorm. Eyólfsson ? Litlu áður en gengið var til at- kvæða utn vantraustsyfirlýsinguna, talaði sóknarprestur og bæjarfull- trúi Bjarni Forsteinsson nokkur orð til sinna kæru sóknarbatna. Regar tekið er tillit til þess, hver þessa ræðu flutti, og athuguð er afstaða hans til borgaranna og af- skifti af opinberum málum bæjarins ttæði fyr og síðar, þá verður ekki betur sjeð, en að hjer hafi verið teflt á fremsta hlunn gagnvart kjós- endunum. Ræðan endaði á þessa leið: »------Ef þessi fáránlega tillaga verður samþykt, þá ætlá eg að beygja mig, beygja mig fyrir vilja borgaranna og. fara úr bæjarstjórn- 37. blað inni, og mun eg þá ekki eiga þang- að afturkvæmt framar. Rað verða þá þakkirnar, sem eg fæ fyrir alt mitt starf.« Rað er vitanlegt, að sóknarprest- urinn hefur lengst allra núlifandi Siglfirðinga starfað að opinberum málum hjer, en það er líka jafn- vitanlegt, að þessi störf hans hafa ekki verið svo vel af hendi leyst að ekki hafi verið hægt við að jafnast, svo ekki sje fastara að orði kveðið. Stjórnmálaferill hans, hefur þótt ærið skrykkjóttur á stundum, og til eru þeir menn, sem ekkert vilja til þess gefa, að vera þar í hans sporum. — Það sat því síst á honum, að slá því framaní borg- arana, að þetta verði þá þakkirnar fyrir alt sitt starf, — borgarana, sem hafa umborið honum meira en öðrum sveitungum sínum, hlaupið drengilega undir bagga með hon- um þegar mest hefur legið á og auðsýnt honum meiri nærgætni og samhug en alment verður af þeim krafist. En ekki er það f u 111 r ú - i n n sem þeir þannig hafa hlaupið undir bagga með, heldur sóknarpresturinn. Lað er Bæjarstjórnarkosning í Siglufjarðarkaupstað. Kosning á 2 bæjarfulltrúum til bæjarstjórnar Siglufjarðarkaupstaðar, einum bæjarfulltrúa í stað Jóns Guðmundssonar til ársloka 1926, einum bæjarfulltrúa í stað Hannesar Jónassonar til ársloka 1924, fer fram mið- vikudaginn 15. þ. m. í „Valhöll“ og hefst kosningarathöfnin kl. 1 e. h. Listar skulu afhentir í tvennu lagi oddvita kjörstjórnar fyrir hádegi 2 sólarhringum á undan kosningu.' Kjörstjórn Siglufjarðarkaupstaðar 6. okt. 1924 O. Hannesson.

x

Siglfirðingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.