Siglfirðingur - 10.10.1924, Síða 3
SIGLFIRÐINGUR
147
yður þær heimildir, að Álalækjar-
göngin hafi ekki kostað nema 15
þúsund?
Rá þykist höfundur hnippa lag-
lega í ritstjóra þessa blaðs oghjer-
aðslækni er hann fer að gleið-
letra kjarnann úr þvælu sinni um
mótorhjálparstöðina. En trúa má
Kári því, að hvorugur þeirra mun
kveinka sjer undan slíkum ummæl-
um, ekki síst vegna þess, að fáir
skilja framsetningu höf., nje vita
hvað hann er að fara. Eða hver
botnar í þessari setningu: >30 atkv.
gegn 17 var vantraustsyfirlýsingin
sem »flokkurinn« bar fram sam-
þykt með.
íslenskur maður mundi hafa kom-
ist þannig að orði: Vantraustsyfir-
lýsingin, sem flokkurinn bar fram,
var sarnþykt með 30 atkv. gegn 17.
Og þótt svo væri, sem sumir
telja líklegt, að þjer sjeuð að hugsa
um að verða í kjöri ^við kosning-
arnar í næstu viku,,og sjeuð með
þessum skrifum að afla yður fylgis,
þá megið þjer ekki láta yður detta
í hug að þjer fáið fleiri atkvæði en
þessi 17 (af ca. 600 á kjörskrá) er
á móti voru vantraustsyfirlýsing-
unni. Hinir samþyktu hana all.r
með þögninni, ef svo mætti að orði
komast, þótt þeir hættu við að rjetta
upp hendina af vorkunsemi við
prestinn sinn.
„Friðbjörn og rafljósin“
heitir giein í Framtíðinni 1. þ. m.,
eftir Ásgeir Bjarnason. Helstu vit-
leysurnar í henni eru þessar:
Rað er v i 11 e y s a, að svo hafi
skift um við það að hemlarnir voru
settir upp, að komið hafi í ljós, að
stöðin væri ekki fullhlaðin. — F*au
einu áhrif, sem hemlarnir geta haft
á hleðslu vjelanna eru að útiloka
óleyfilega straumnotkun, og það þó
því aðeins, að þeir sjeu »stemdii
af« eftir straummagni því til ljósa,
sem notendur eru skrifaðir fyrir. Nú
er það vitanlegt, að áður en heml-
árnir voru settir upp, var stöðin
fullhlaðin — allur straumurinn seld-
ur til fastra kaupenda. Og þó að
þeir, einhverntíma í vor, ekki hafi
notað allan sinn straum, þá gaf
það rafveitunefnd engan rjett til að
selja þann straum öðrum, hvort
sem Ásg. Bjarnason kann að hafa
ráðlagt þeim það eða ekki.
Rað er v i 11 e y s a, að enginn
þurfi að kvarta yfir að liafa verri
ljós nú en áður. — Það ætti að
vera hverjum manni auðskilið, að
því meiru sem hlaðið er á vjelarn-
ar umfram þau 26 kílów., sem þær
framleiða af ósviknum Ijósum, því
daufari verða Ijósin og að minna
gagni notendunum.
Rað er v i 11 e y s a, að jeg hafi
verið á móti hemlunum, þegar jeg
átti sæti í rafveitunefnd. — Höf.
mun hjer rugla saman hemlum og
straummælum, en þeim var jeg al-
gjörlega mótfallinn og er það enn,
eins og hjer hagar til.
Reim atriðum umræddrar greinar,
sem snúa að mjer persónulega,
verður ekki svarað hjer. Ró skal
það tekið fram, að óþarfi var að
gefa það í skyn, að jeg hafi óleyfi-
lega notað 2 rafbolta. Jeg hefi n.l.
fult leyfi til að nota svo marga
bolta sem jeg vil, ef þeir ekki taka
meiri straum samtals en suóuplatan
og eru ekki notaðir samtímis henni.
— Annars ætti hemillinn jafnt að
útiloka óleyfilega straumnotkun hjá
mjer sem öðrum.
En, meðal annara orða, hvenær
ætli 1. október sje hjá stjórnendum
rafljósanna? Ætli honuni hafi verið
frestað eitthvað frameftir haustinu?
Sennilega Að minsta kosti veit eg
ekki betur en að þessi svokölluðu
bráðabyrgða viðbótarljós sjeu ennþá
notuð jafnt sem önnur Ijós, og
sum jafnvel allan sólarhringinn.
Friðb. Níelsson.
Erl. símfrjettir.
Dynamitpatrónur hafa fundist í
dómhúsinu í Kristianiu. Upphafs-
menn hafa ekki fundist ennþá, en
talið víst að Kommunistar hafi ver-
ið hjer að verki.
Campell ritstjóri verkamannablaðs-
ins »Woikers Weekly« hefur' ritað
grein og skorar á hermenn og her-
foringja að mynda hermannaráð að
dæmi Rússa. Grein þessi hefurvak-
ið mikla gremju og er stjórnin
bendluð við þetta mál. Hefur þing-
ið samþykt einskonar vantraust á
hana, sem varð til þess, að þingið
verður rofið um helgina og nýjar
kosningar látnar fara fram. Stjórnin
mun sitja fram yfir kosningar.
Mænusóttin.
Landlæknirinn hefur gefið út op-
inbera tilkynningu um farsóttir hjer
á landi, og kemst hann þar meðal
annars svo að orði um mænusóttina.
»Jeg hef talið saman eftir sím-
skeytum og skýrslum læknanna hve
margir þeir eru orðnir, sem hafa
fengið mænusótt með lömun. Út-
koman er þessi: 176 sjúklingar hafa
lamast, og af þeim 65 dánir. Síðari
talan, dánartalan, mun vera mjög
nærri sanni, en þó líklega helst til
of lág. í Reykjavík dó t. d. ungur
maður í maí mánuði, og Ijek nokk-
ur vafi á því hvert dauðameinið
var, en eftir á hefir sú efasemd
horfið, og nú talið víst, að það hafi
verið mænusótt. Pá komnir66. Auk
þess eru miklar líkur til að læknar
hafi aldrei sjeð, og ekki fengið vit-
neskju um, einhverja af þeim, sem
hafa orðið bráðdauðir af völdnm
mænusóttarinnar.
Um fyrri töluna, tölu allra þeirra,
sem lamast hafa, mun óhætt aó
fullyrða, að hún er talsvert of lág.
Jeg tel víst, að ýmsir af þeim sjúk-
lingum, sem hafa sloppið með lít-
ilsháttar lamanir, sjeu ekki komnir
undir læknis hendi, og komi aldrei
sumir hverjir, því smávægismænu-
sóttarlamanir batna oft sjálfkrafa á
tiltölulega stuttum tíma.«
Landspítaiinn.
I Morgunblaðinu Q. f. m. stend-
ur þessi smágrein:
»Morgunblaðið hefur verið beðið
að geta þess, að vegna fjarveu
gjaldkera Landspítalasjóðsins hafi
það dregist alt of Iengi að geta
þess í blöðunum, að Kvenfjelagið
»Von« á Siglufirði sendi Landspít-
alasjóðnum í júlímánuði kr. 545,69.
Peningar þessir voru ágóði af
skemtun, sem fjelagskonur höfðu
sofnað til 19. júní s.l., í því skyni
að minnast kvenrjettindadagsins og