Siglfirðingur


Siglfirðingur - 18.10.1924, Blaðsíða 1

Siglfirðingur - 18.10.1924, Blaðsíða 1
SIGLFIRÐINGUR I. árg. Siglufirði 18. okt. 1924. 38. blað Bæjarstjórnarkosningin. Vantraust á bæjarstjórn samþykt í annað sinn. Eins og skýit var frá í síðasta blaði, varð sú afleiðing af vantraust- yfirlýsingu þeirri, sem samþykt var á borgarafundinum 27. f. m., að tveir bæjarfulltrúar lögðu niður störf. Kosning á fulltrúum í þeirra stað fór svo fram 15. þ. m. Þessir listar komu fram: Til ársloka 1Q24: A-listi Ounnl. Sigurðsson. B-listi Ouðm. Skarphjeðinsson. Til ársloka 1926: A-listi Otto Jörgensen B-listi Sig. J. S. Fanndal C-listi Sig. Kristjánsson Það hefur venjulega verið svo hjer, þegar um kosningu til bæjar- stjórnar hefur verið að ræða, að tvö fjelög bæjarins, Verka- mannafjelagið og Verslunarmanna- fjelagið, hafa tilnefnt fulltrúaefnj og aðallega beitt sér fyrir kosningun- um. Fað hafa því aldrei verið nema um A- og B-lista að ræða, að þessu. Nú horfði málið dálítið ö^ruvísi við, að því leyti, að í þetta sinn snjerust kosningarnar nær eingöngu um traust eða vantraust til bæjar- stjórnar, en ekki um venjuleg á- greiningsefni milli þessara fjelaga. Ástæðan til kosninganna nú var vantraustyfiilýsingin, ogekkert ann- að. Pað hefði því verið eðlilegt, að þessu sinni, að ekki hefðu aðrir tekið þátt í að tilnefna fulltrúaefn- in, en hreinir meðmælendur og and- stæðingar vantraustsins, og að áð- urnefnd fjelög hefðu dregið sig til baka um tilnefninguna. Annað fje- lagið, Verkamannafélagið, sat þó ekki hjá, og mun það aðallega hafa verið fyrir þá sök, að mikill meiri- hluti þess hafi verið eindregið fylgj- andi vantraustinu. í tilnefningunni tóku því þessir þátt: aðstandendur hafnar- og bæjarstjórnar, Verka- mannafjelagið og aðstandendur van- traustsins. A-listarnir voru studdir af hinum fyrstnefndu, þeim fáu, sem fylgdu bæjarstjórn og hafnarnefnd í þeim málum, sem ágreiningi hafði valdið og mest hefur verið rætt um og ritað að undanförnu. Búast hefði mátt við því, að þessir menn hefðu tilnefnt andstæðinga vantraustsins í bæði sætin. Það gerðu þeir líka að því er lengra timabilið snerti, með því að tilnefna Otto Jörgen- sen, póstafgreiðslumann og sím- stöðvarstjóra. Hann mun vera, heill og óskif'ur, fylgjandi þeim kaup- sýslu- og útgerðarmönnum hafnar- nefndar og bæjarstjórnar um þau mál, sem deilunum hafa valdið, sem taldir eru að vera vantrausts- ins verðugir, enda þótt liann, af sumum að minsta kosti, sje álitinn töluverður »bolsi« í aðra röndina. Fetta val þeirra sýnir því glögt, að pólitískar stefnur og skoðanir hafa ekki verið látnar ráða, heldur virð- ist um það eitt hafa verið hugsað, að tilnefna í þetta tveggja áratíma- bil nægilega tryggan andstæðing vantraustsins og þeirra andmæla, sem fram hafa komið gegn ýmsum hinum siðari gerðum bæjarstjórnar. Og eins og á stóð, verður að telja þetta eðlilegt og rjett, frá þeirra sjónarmiði sjeð. Sömu ástæður hefðu einnig átt að geta ráðið við tilnefningu í styttra timabilið. En það ernúeitt- hvað annað, en að svo hafi verið, því að í þaó sæti tilnefndu þeir sjálf- an formann Verkamannafjelagsins Ounnlaug Sigurðsson, einhvern allra tryggasta og einlægasta með- lim fjelagsins. í stjórnmáltim mun Ounnl. vera ákveðinn jafnaðarmaður og um skoðun hans á bæjarstjórn og hafn- arnefnd er það að segja, að hann var einn af þeim sem boðuðu til boigarafundarins og greiddi þar at- kvæði með vantraustsyfirlýsingunni. Það var því tvöföld ástæða til þess fyrir fylgjendur bæjarstjórnar og hafnarnefndar, ekki aðeins aó ganga fram hjá honum við tilnefninguna, heldur einnig að vinna á móti hon- utn ef aðrir hefðu tilnefnt hann. Fað hlýtur því eitthvað annað og meira að hafa legið ábakviðþessa tilnefningu, heldur en virðist hafa ráðið tilnefningu stöðvarstjórans, og heyrst hefur að þetta »annað og meira« hafi verið það, að I o s n a við Gunnlaug úr niður- jöfnunarnefndinni. Eins og kunnugt er hefur Gunn- laugur átt sæti í niðurjöfnunarnefnd- inni nú um nokkurra ára skeið og hefur hann fengið orð fyriraðvera gætinn og gjörhugull við starfið. En hann hefur ekki þótt að santa skapi auðsveipur og eftirlátur þeim, sem finst að þeir sjálfir sjeu öðr- um færari unr ^að ráða bæði fyrir sig og aðra. Þetta heftir flestum þótt kostur á Ounnlaugi, en ein- staka manni ókostur. Og frá sjónarmiði þessara örfáu manna gat hjer verið um hugsanlegt tæki- færi að ræða til þess, að losna við hann úr niðurjöfnunarnefnd með því, að konra honum inn í bæjar- stjórn í 2V2 mánuð. Pað var altaf hægt að losna við hann aftur um nýjárið, þegar búið væri að fá auð- sveipnari mann í niðurjöfnunarirefnd- na. Pað skal látið ósagt, hvort þessi hefur verið tilgangurinn með til- nefningu Gunnlaugs, eða hann hef-

x

Siglfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.