Siglfirðingur - 18.10.1924, Page 3
SIOLFIRÐINOUR
151
Iðrun S. A. B.
Ánægju það allra jók
iðrun þegar Blöndal tók
og með tárum inna vann:
Eg ætla að kjósa C-listann.
Menn munu minnast þess, að á
borgarafundinum 27. f. m. hjet Blön-
dal því, með klökkum rómi, að hann
skyldi vinna sig upp í áliti Sigl-
firskra kjósenda. Ressi ummæli
sýndu, að hann fann það glögt, að
álit hans er sýnu minna nú síðan
hann kom í bæjarstjórnina, en áð-
ur var. Nú lítur svo út, sem hann
sje farinn að iðrast og gera yfirbót,
ef treysta má því, sem nú gengur
milli manna, að hann hafi hallast
að C-listanum við síðustu bæjar-
stjórnarkosningar. Er gott að frjetta
það um menn er þeir vilja bæta
fyrir brot sín, og enginn skyldi
hæðast að iðrandi syndara. En á
meðan Blöndal er veikur fyrir ætti
hann að vara sig á soranum frá
Akureyri og ósvífninni úr Húna-
vatnssýslu.
H. O.
,,Kár i“
er enn á ferðinni í síðustu Framtíð.
Altaf er hann að verða kyndugri
eftir því sem hann kemur oftar fram
í dagsljósið. Nú kemur þarna fram
alt annar Kári en í hið fyrra sinnið.
Hann kann að minsta kosti miklu
meira í íslenskri tungu nú, heldur
en þá, og er nú klaufalegur á kvenna
vísu, en var áður all-karlmannlegur
í sinni vanþekkingu.
Siglfirðingur tók strax eftir því,
hve alt málfar var orðið gjörbreytt.
í fyrri greininni kunni Kári lítil skil
á beygingu og fleirtöluendingum al-
mennustu nafnorða og lýsingarorða,
að ekki sje talað um setningarnar,
sem flestar gengu á klaufuðum aft-
urfótum. Nú eru flestir þessir
gallar horfnir, en aðrir komnir í
þeirra stað. Nú dettur manni í hug
>dama« á dönskum búningi er mað-
ur sjer þessi og þvílík orðatiltæki
eftir endilangri greininni t. d. »af-
skaplega fá«, »voða merkilegur«,
»afskapleg skarpskygni*, »voða
mikið«, »voða grautur«, »heilmikill
grautarfræðingurc, »ansi karlmann-
lega« o. fl. af sama tagi. Og enn
skringilegra verður þetta af því, að
sömu orðatiltækin endurtakast hvað
eftir annað. Svona marghliða rithöf-
undi á að minsta kosti Siglfirðing-
ur ekki kost á að kynnast daglega.
Annars ætlar ritstj. Siglfirðings
ekki að fara að svara þeirri endem-
is þvælu sem þarna er látin á þrykk
út ganga Getur hann með glöðu
geði sagt með Bólu-Hálmarl:
»að munnhöggvast við málrófsdýr
mjer er þarflaus iðja«
Kári þessi hinn kvennlegi hefur
með engu orði hrakið þaó sem Kára
hinum karllegavar svarað í síðasta
Siglfirðingi. Ressar örfáu línur eru
hripaðar upp einungis til þess, eins
og Kári hinn kvennlegi segir í nið-
urlagi pistils síns, að hann sendi
ritstj. Siglfirðings kveðju í næsta
blaði Fiamtíðar. Hann hefur for-
vitni á að sjá í hvaða gerfi Kári
birtist næst þegar hann kemur fram
á ritvöllinn.
Samanburður.
í síðustu Framtíð er þetta sagt
um Ojto Jörgensen:
»-----ekki síst þegar í kjöri er
maður sem stendur skoðunum verka-
manna miklu nær en Fanndal, sem
sje Otto Jörgensen símstjóri, sem
er auk þess mjög duglegur og
reglusamur um sín ábyrgðarmiklu
störf, vel gefinn og áhugasamur um
öll bæjarmál.«
Og þetta um Guðm. Skarphjeð-
insson:
»— Um Guðm, Skarphjeðinsson
barnakennara er fátt eitt að segja,
hann er hálfgerður unglingur enn,
sem enga heimild hefur til að vænta
að borgarar bæjarins fái honum í
hendur fulltrúastarf, jafn ábyrgðar-
mikið og þetta er.
Siglfirðing langar til að bæta þessu
við ummæli blaðsins:
Otto Jörgensen er 28 ára. Hann
flutti hingað fyrir rúmum þrem ár-
um, þá flestum hjer ókunnugur og
þekti ekkert til um málefni bæjarins.
Síðan hefur hann verið póstaf-
greiðslumaður og símstöðvarstjóri.
Hann er ekki bindindismaður.
Guðm. Skarphjeðinsson er2Qára.
Hann er fæddur og uppalinn hjer
og því nákunnugur bæði mönnum
og inálefnum bæjarsins. Skólastjóri
barnaslcólans hefur hann verið í 8
ár. Hann er bindindisniaður
Stöðvarstjórinn fjekk 49 atkv. en
skólastjórinn 117.
Siglufjörður.
Kosning
á þreni mönnum í niðurjöfnunarnefnd
kaupstaðarins á frain að fara 25. þ. m.
Engir listar eiu enn komnir fram.
Vandlifað
Það er haft fyrir satt, að vandlifað sje
orðið í Siglufirði, því ekki geti aðrir sagt
satt nú orðið, en stórir menn og digrir,
og þó helst ekki, nema þeir hafi fengið
nokkra tugi þúsunda eftirgefna í viðskift-
um. Þeir eru víst ekki margir sem óhætt
er að trúa, eftir þessu að dæma.
Kolaskip
er nýkomið til H. Henriksen
Næturvarðarstaðan
er auglýst laus frá 1. jan. n. k. Laun
1600 kr. og dýrtíðaruppbót. Umsóknar-
frestur til 1. des. n. k.
Frumvarp
að fjárhagsáætlun bæjarins árið 1925
hefur. fjárhagsnefnd sent bæjarfulltrúunum
til athugunar. Er þar gert ráð fyrir 72000
kr. aðalniðurjöfnun.
Leikfjelag Siglufjarðar
hjelt aðalfund sinn í gærkveldi eftir að
hafa ekkert gert í 2 ár.
Tvö tölublöð
af Framtíðinni komu út kosningadaginn,
15. þ, m. Var nálega alt efni þeirra mcð-
mæli með A-listunum. skammir um hina
listana og ýmiskonar útskit um þá menn
sem að þeim stóðu. Árangurinn af öllum
þessum ósköpum varð sá, eins og við
mátti búast og venjulegt er, að þeir sem
mest voru þar lofaöir fengu fæst atkvæðin.
Bankagengi í gær:
Sterlingspund . . . . kr. 29,00
Dollar..............— 6,47
Svenskar kr. (100) . — 172,03
Danskar — (100) . — 110,56
Norskar — (100) . — 90,68