Siglfirðingur - 25.10.1924, Blaðsíða 2
154
SIOLFIRÐINOUR
fram yfir Ounnlaug. Þetta er stað-
reynd sem ekki verður hrakin, þótt
reynt kunni að verða að láta það
líta öðruvisi út í »nánustu framtíð«.
Það er nógu gaman að því þeg-
ar vondur málstaðuríær svona rjett-
mæta útreið. Enda kemur að því
æfinlega að lokum, að góður mál-
staður gengur af hólmi með sig-
urinn, jafnvel þótt um Siglfirskar
bæjarstjórnarkosningar sje að ræða.
A ri.
Mannfjöldi á Islandi
1923.
Samkvæmt nykominni skýrslu frá
Hagstofunni vorú íbúar landsins
við árslok 1923 97758 og skiftast
þannig milli kaupstaða og sýslna.
Reykjavík......20.148
Hafnarfjðrður .... 2.579
ísafjörður...... 2.099
Siglufjörður..... 1.335
Akureyri ...'... 2.871
Seyðisfjörður .... 933
Vcstmanneyjar .... 2.708
Gullbr. og Kjósarsýsla . 4.074
Borgarfjarðarsýsla . . . 2.445
Mýrasysla...... 1.834
Snæfellsnessýsla , . . 3.735
Dalasýsla ....... 1.869
Barðastrandasýsla . . . 3.252
ísafjarðarsýsla .... 6.258
Strandasýsla..... 1,711
Hiinavatnssýsla , . . . 4.200
Skagafjarðarsýsla . . . 4.216
Eyjafjarðarsýsla . . . . 5.117
Þingeyjarsýsla .... 5.594
Noróur-Múlasýsla . . . 2.979
Suður-Múlasýsla . . . 5.464
Austur-Skaftafellssýsla . 1.144
Vestur-SkaftafeHssýsIa . 1.845
Rangárvallásýslu . . . 3.745
Árnessýsla..... 5.603
Samtals á landinu 97.758
. Samkvæmt þessu hefur fólkinu
fjölgað um 1325 maniis árið 1023,
en um 1207 ártð 1922. Afturá móti
hefur fjölgunin 1921 ekki verið nema
536 manns. — Alla fjölgunina, sem
orðið hefur á þessum árum hafa
kaupstaðirnir gleypt, og heldur
meira til, því að fólkinu hefur smá-
fækkað í sýslunum, hjer um bil um
200 manns á ári síðustu árin.
Af rnjann/jöldánum 1923, voru
47.438 kaflar og 50.320 konur.
Hafa þá af hverju þúsundi manna
485 verið karlar, en 515 konur.
F I j ó t f e r ð.
Að morgni hins 17. þ. m. lagði
bæjarstjórnarskipið Sandfoss frá
hafnarvirkjum Ásgeirs Pjeturssonar
þar sem bæjarstjórnin 'hefir haft
flotastöð sína í seinni tíð. Foringi
fararinnar var prokuratör bæjar-
stjórnar og ingeniör, hr. Fióvent.
Ferðin gekk slysalaust eins og menn
geta gert sjer í hugarlund á því,
að hinn 18. þ. m. kl. 6 e. in. var
skipimi lagt að bólverki Kvöldúlfs,
hinu austasta. Síðari hluta leiðar-
innar tók þátt í förinni snjoplæginga-
fræðingur og vara-lngeniör bæjar-,
stjórnar, hr. meðhjálpari og passe-
partout* Bíldahl (með h-i). Hvort
hann hefur átt að taka þátt í för-
inni setn vísindalegur leiðtogi á
haffræðilegu sviði e'%a hvort hann
hefur a'tt að »navigera fartauið«,
veitjeg ekki, en'líklegt er að hann
hafi skroppið þetta sjer til heilsu-
bóta og hressingar eftir kosninga-
ósigurinn, þá er Jörgensen fjell.
Lest skipsins var hinn stórfrægi
hafnainefndar-rafljósa-leðjupramma-
pumpumótor og var þettafyrsti áfang
inn á krossgöngu hans upp á Ijósa-
stöð.Vegalengd sú er skipið fórrí hálf-
um öðrum sólarhring álíst að vera
muni 300 metrar og ef reiknað er með
sama hraða, er óhætt að gera ráð
fyrir að mótorinn verði kominn á
ákvörðunarstaðinn seint á þorra
1925. Og má þá segja að hans
»nedkomst« verði tveim mánuðum
seinna en foreldrarnir reiknuðu.
Heyrst hefir að Flóvent hafi ætlað
að bjóða nágranna sínum Fanndal
með í sæför þessa ásamt Jörgen-
sen, en það færist fyrir af því að
hann lagði á st'að svo tímanlega að
ekki var hægt að ná í »hrút« í
nestið. Halda menn þó að báðir
þeir hefðu haft þess fulla þörf að
*) Passepartout (frambr. passpartú) er
franska og þýðir »alt í öllu«. Svo hjet
þjónn Philiasar Fog hjá Julius Verne í
sögunni Umhyerfis jörðina á 80 dögum.
Höf.
fara slíka sjóferð, því þær eru tald-
ar styrkjandi þeim er nýlega hafa
orðið fyrir taugaveikkm, hvort sem
hún stafar af kosningavonbrigðtim
eða-ekki.
S a i 1 o r.
Frá ísafirði.
Á ísafirði erti bolsevikkar í meiri
hhita í bæjarstjórn. Fyrir nokkru
'keypíu þeir eign afh.f. Hæstakaup-
stað en leigðu hana um leið sama fje-
lagi í 10 ái fyn'r 30 þús. kr. árs-
leigu. Nú hefur fjelagið óskað eftir að
losna viö leigusanininginn og bæj-
arstjórn samþykt það, bótalaust frá
fjelagsins hálfu.
Um þetta segir Vesturland:
»Einkennilegt var að heyrasömu
menn sem hjeldu því fast fram í
fyrra, að hluthafar Hæsta væru svo
efnalega sterkir, að þeir væru full-
trygg ábyrgð fyrir 10 sinnum 30
þúsund krónum, komast svo að
orði um þá nú, að þeir væru »eink-
is virði.
Ekki virðist sjáanleg nema ein
skýring á framkomu meirihlutans
í bæjarstjórn í þessu máli, og er
þess að vænta, að hið opinbera
taki það til rannsóknar, eins og því
að sjálfsögðu ber rjettur og skylda
til að stöðva það, að bærinn sé
þannig fjeflettur.«
Fleiri kveða nú fast að orði en
Siglfirðingur, og fleiri fá þungorða
»kritik« en bæjarfulltrúar Siglufjarð-
arkaupstaðar.
Fyrsti annáll
fyrir 1924.
Það hefir verið merkisár fyrir þetta
larul og eigi síður Siglufjörð en
aðra staði þess. Skulu hjer taldir
fáir atburðið af mörgum er Siglu-
fjörð snerta.
Þann vetur var tíð góð frá árs-
byrjun til fardaga. Á þorra máíti
vel leysa út kýr ef eigi hefði verið
hávetur og jarðbönn sakir snjóa,
svo var þá mild tíð. Pá kom eng-