Siglfirðingur


Siglfirðingur - 18.11.1924, Blaðsíða 2

Siglfirðingur - 18.11.1924, Blaðsíða 2
r 158 með eignir bæjarins eða það fjé, sem þeir leggja til almennings þarfa. Að minsta kosti hafa þeir rjett til að láta í Ijós sína skoðun um það, hvort rjett sie að tefla eignum bæj- arins á fremsta hlunn til hagsmuna einstakra manna. Nei! Pégar heili bæjarins er í hæ'itu, þá eru allir eitt. Og nú hafa borgararnir vevið allir eitt. Nú er ekki til nema einn flokkur í bæn- um. Sá flokkur er harðsnúinn og getur ait, sem hann vill. Og hann vill vinna að framförum bæjarins af alhug og án eigin hagsmúna ein- stakra manna. Hann vill hreinsa til í bæjarstjórninni. Og honum skal takast það. Hann hættir elcki fyr en yfir lýkur! Siglfirðingur vill vona, að breyt- ing sú, sem hjer hefir verið gerð að umtalsefni, sje fyrirboði nýrri og betri tíma fyrir Siglufjörð. Hann vill vona, að nú sjeu dagar per- sónulegs rígs og sundrungar taldir. Nú muni friðsamleg vinna að hin- um mörgu aðkallandi umbótaþörfum bæjarins fá að njóta sín. Nú muni ekki framar gæta áhrifa þeirra manna, sem ávalt meta sitt eigið meira en bæjarins. Nú megi bænum auðnast að taka hröðum og varanlegum um- bótum qg sátt og samlyndi ríkja meðal íbúanna. Og þá má með sanni segja um þetta bryggjuleigu-frumhlaup: »Fátt er svo með öllu ílt, að ekki fylgi nokkuð gott«. „Litln yeröur Hinrik feginn“. í síðustu blöðum Framtíðarinnar hefir ritstjórinn aðallega spreytt sig á því, að reyna að ófrægja mig. Síða&t í dag ryður hann úr sjer heilmiktu af ósannindum um mig. Petta gerir hann nú auðvitað af gremju sinni yfir því, að jeg skuli hafa leyft Goodtemplurum leikfimis- húsið til afmælisfagnaðar á morgun. Peir áttu það þó síst skilið af Hinrik, áð hann reyndi til að bola þeim frá því að halda afmælisfagn- að sinn. Pví að hverjir hafa hlíft honum ef ekki þeir? Undaníarna vetur síðan farið var að kenna leikfimi við barnaskólann, hefir leikfimishúsið verið lánað öðru hvoru til samkvæma, en mjög hefir SIGLFIRÐINGUR það verið takmarkað vegna þess, að mjer hefir verið alt lán á því á móti skapi, en ekki sjeð til neins að neita því algerlega, af því að 4 úr skólanefnd og bæjarfógetinn hafa altaf leyft það. Kenslustofurnar hefi jeg þá afíur á móti ekld lánað. í fyrra leyfði þó skólanefnd og bæjarstjórn sjer að taka 2 af þeim til alþingiskosninga, eftir að kensla •var byrjuð. Pá er það, sem jeg bið fræðslu- málastjórann um úrskurð, og er það víst það, sem Hinrik á við, er hann segir, að jeg hafi kært skólanefndina. í þáð skiftið heyrðist ekkert í heilbrigðisnefndinni, og er Hinrik því ósannindamaður að því, er hann segir, að mjer sje kunnugt um, að heilbrigðisnefndin hafi jafnan verið á móti því, að leikfimissalur- inn væri notaður til dansskemíana. Sjálfsagt hefði hún látið til sín heyra bæði í fyrra og áður, ef meiri hlutinn hefði verið vakandi og borið velferð skólans fyrir brjósti hvað þetta snerti. Þegar jeg hefi lánað leikfimishúsið, hefi jeg ætíð gætt þess, að það væri gert vel hreint upp úr sótt- hreinsandi Iög. Petta veit Hinrik vel um, þó að hann sje að tala um r y k, sem fylli lungu barnanna, e f t i r a ð, b ú i ð er að gera vel hreint og sóíthreinsa. Jeg gef ekk- ert fyrir þessa hreinlætisumhyggju Hinriks hvað börnin snertir, því að sjálfur leyfir hann sjer að bjóða bæði þeim og öðrum f Bíóið sitt, þar sem bekkirnir eru flekkóttir af óhreinindum og gólfið stundum loðið af leir og hrákum áður en sýning byrjar. Og nær væri hon- urn að þvo sínar eigin hendur og gera hreint fyrir sínum »austurdyr- um« áður en hann fer að bregða öðrum um óþrifnað. Að jeg hafi hringsnúist og sam- þykki nú það, sem jeg hafi áður hamast á móti, eru alger ósannindi og þvættingur, sem Hinrik er óhætt að kyngja aftur, því að í þetta sinn hefi jeg leyft það sama og jeg hefi gert undanfarna vetur og með al- veg sömu skilyrðum, sem sje þeim: Að húsið yrði sótthreinsað á eftir og að skólanefnd og bæjarfógetinn leyfðu húsið. Siglufirði 8. nóv. 1924. Guðm. Skarphjeðinsson. Erl. símfrjettir. Danski prófessorinn Möllegaard hefir fundið upp nýtt meðal við berklaveiki. Tilraunir með það hafa gefist ágætlega. .Stóriðjuhöidar Frakka og Pjóð- verja hafa samið um, að keppa í fje- Iagi við Bandaríkin í stáliðnaði. Calvin Coolidge kosinn forseti Bandarikjanna til næstu 4 ára. Fjekk hann 371 kjörmann kosinn. John W. Davis fjekk 144 kjörmenn, en La Follette aðeins 16 kjörmenn. Repúblikkanar hafa einnig náð meiri hluta í báðum þingdeildum. Við ensku kosningarnar 29. f. m. fjekk íhaldsflokkurinn 410 þingsæti, verkanienn 151, frjálslyndir 39. — Jafnaðarmannastjórnin varð því að segja af sjer og íhaldsmenn rnynd- uðu, stjórn undir forsæti Stanley Baidwins. Helstu mennirnir í stjórn- inni eru: Curzon lávarður, sem er »lord«-kanslari og forseti efri mál- stofunnar, Austin Chamberlain uian- ríkisráðherra, Birkenhead lávarður Indlandsráðherra og Winston Spen- cer Churchill fjármálaráðherra. Hefir sá síðasttaldi verið einn af fremstu mönnum frjálslynda flokksins að þessu, en hallast að íhaldsmönnum nú orðið. Dr. med. Petrus Beyer, stórmeist- ari Oddfellow-reglunnar í Danmörku og íslandi, er látinn. Millerand fyrv. forseti hefir sfofn- að nýjan stjórnmálaflokk í Frakk- landi, og veitir hann Herriot-sijórn- inni harðsnúna mótstöðu og á hún nú mjög í vök að verjast vegna vaxandi dýrtíðar, sem stafar af versn- andi gengi frankans. Hámarksverð hefir verið sett á saltfisk í Barcelona. Mussolini bannar stjórnmálafundi í Italíu. Mótstöðumönnum hans vex fylgi. Hafa þingmenn þeirra neitað að taka þátt í þingstörfum. Hátíðahöld mikil í París á mið- vikudaginn var í minningu vopna- hljesdagsins. Tuttugu og fimm þús- und farlama hermenn |sendu bænar- skrá til Herriot yfirráðgjafa um bætt Iaunakjör.

x

Siglfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.