Alþýðublaðið - 27.10.1923, Page 1
Fylgiblað Alþýðublaðsins 27. okt. 1923.
Spumingar og svör.
Gerið svo vel að lesa til enda!
Eins og kunnugt er, þá hefir framkvæmjdanefnd Stórstúku íslands sent
ut um alt land prentaðar fyrirspurnir, er Alþingiskjósendur, hverjir í sínu
kjördæmi,' hafa svo gert að sínum og lagt fyrir frambjóðendur kjördæmanna.
Hér í Reykjavík voru þessar fyrirspurnir, sem og annarsstaðar, lagðar
jram fyrir þingframbjóðendur og þeir beðnir að gefa við þeim skrifleg svör
fyrir 28. s.l. sept. Svörin áttu að sendast Pétri Zóphoníassyni, -sem er um-
sjónarmaður kosninganna af hálfu framkvæmdanefndar Stórstúkunnar. Allir
frambjóðendurnir munu fyrir hinn ákveðna dag hafa sent honum svör sin, en
þau — svörin — hafa þó enn ekki verið birt almenningi. Tel eg það illa far-
ið, því enginn vafi er á þvi, að þau hefðu getað orðið einskonar leiðarstjarna
mörgum þeim er að kosningaborðinu ganga í dag. Eg birti hér með svör Héð-
ins Valdimarssonar með því að öllum árum hefir verið að því róið, að rægja
hann sem bindindis- og bannvin, þá tek eg hér upp spurningarnar og svör
hans við þeim, svo almenningur fái að vita afstöðu hans til þessa máls.
Spurningarnar hljóða svo: Viljið þér, ef þér verðið kosnir á Alþingi,
vinna að því með atkvæði yðar og á annan hátt
1. að landið verði losað undan erlendum áhrifum á áfengislöggjöf vora,
meðal annars með því, að varið sé fé til að styrkja ríflega tilraunir til fisk-
sölu á nýjum markaðsstöðum.
Svar 1: Já. Álít heppilegustu leið til þess ríkiseinkasölu á fiski, sem
mundi verja miklu fé til. fisksölutilrauna á nýjum mörkuðum. Vil vinna að því
að sagt sé upp samningnum við Spánverja og nýs samnings leitað á grund-
velli fulls forræðis íslendinga yflr löggjöf sinni, svo fljótt sem uppsagnarákvæði
samningsins leyfa. Páist þessu ekki framgengt vil eg bera fram tillögu á al-
þingi um þjóðaratkvæðagreiðslu um málið.
2. að bindindisstarfsemi, I. 0. G. T., sé styrkt með ríflegum fjárfram-
lögum.
Svar 2: Já, auknum.