Siglfirðingur


Siglfirðingur - 06.12.1930, Side 1

Siglfirðingur - 06.12.1930, Side 1
BBSM8H—jM830ffiaB^B3E5^8^BH^Si^BaiaæS3aaB^i^^^KaSES8SSa8aBB8iBBSa Fyrir auðsýnda samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför okkar elskaða eiginmanns, föður, fóslurföður og broður, Pjeturs Jóhannessonar verkstjóra, vottum við öllum nær og fjær innilegustu þakkir. Siglufirði 6. des. 1930. Aðstandetidur. Til lesendanna. Með þessu tölublaði hefst 4. ár- gangur „Siglfirðings“. Pað hefir orð- ið að ráðum, að jeg annist ritstjórn blaðsins þennan árgang. Engum er það ljósara en mjer, að mikið vant- ar á að blaðið hafi í mínum hönd- um verið svo úr garði gert, sem átt hefði að vera. Og biðja vil jeg menn að Virða til betri vegar, þó enn kunni nokkuð til að vanta, Pað munu margir skilja, að erfitt verk sje og ekki öfundisvert að halda fram heilbrigðri stjórnmála- stefnu í bæ, þar sem mikill hluti íbúanna er svo andlega blindur, að skaðlegasta stjórnmálastefna h e i m s i n s nær að festa þar rætur. Eri „mikið skal til mikils vinna“. Heill og heiður þjóðarinnar hrópar á hvern góðan dreng til varnargegn þessari skaðræðiskenningu. Pess- vegna er það, að útgefendur „Sigl- firðings" telja sjer skylt, að berjast fyrir heilbrigðustu stjórnmálastefn- unni sem ennþá hefir þekst, sem sje sjálfstæði einstaklingsins í sjer* hverri merhingu þess orðs. Blaðið mun því framvegis sem hingað til stefna að þeirri göíugu hugsjón, að hvert barn þjóðarinnar fái haldið sem fullkomnustu frjáls- ræði til hverskonar athafna og um- bóta, jafnt i atvinnumálum sem stjórnmálum en vinna gegn öllum kúgunarkenningum illa vandra lýðs- skrumara, í hvaða gerfi sem þær koma fram. Pá mun verða lögð áhersla á að flytja sem mest af fijettum, bæði ínnlendum og útlendum, og vera má að ýmsar uthafnir bæjarstjórnar verði nokkru betur athugaðar en gert hefir verið að þessu. Allskonar ylmvötn frá 1 kr til 15. kr. fást i LYFJABÚÐINNI. Símfregnir frá Rvík, Kaupdeila við kolavinnu. 30. nóv: Kolanámueigendur í Rínarbygðum og Westfalen hafa sagt upp launasamningum Pá ára- mótum. 4. des. Kolavinnudeilur standa yf- ir í Englandi og talin hætta á að verkfall verði um alt landið. 5. des: Námumenn hafa fel-t til- lögu um verkfall í öllum koianám* um Englands. Aukakosningar í En^landi, 30, nóv: Ihaldsmenn í Englandi hafa nýlega unnið. sigur við nuka- kosníngar í tveimur kjördæmum. 4. des: Aukakosning í Whitecapel í London hefir vakið qftirtekt vegna þess að hún bendir til þess enn betur en undanfarnar kosningar. að fylgi Mac-Donaldsstjórnarinnar fari rjen- andi. Jafnaðarm. var að vísu kos- inn með 8544 atkv. en Frjáíslyndir fengu 7475, íhafdsmenn 3735 og Kommúnistar 2106. Umframatkvæði voru þannig ekki nema 1006 en voru 9180 víð síðustu kosningar. Stjórnarskifti í Austurríki. 30. nóv; Austurríska stjórnin hefir sagt af sjer. 4. des: Dr. Endal hefir myndað stjórn í Austurríki. Schober er vara- kanslari. Simastöð brennur. 2. des: Aðfaranótt 1. des. var mikið fárviðri í Skaftat'ellssýslu. Símastöðin að Flögu í Skaftártungu brann þá nótt til kaldra kola, og gerðist það með þeim hætti að eld- ingu laust niður í skiftiborðíð, klauf það og stóð húsið þegar í björtu báli. Fólk komst nauðuglega út og misti ait sitt óváírygt. Húsið var vairygt, 8 ara gamalt. suúipart úr timbri og sumpart úr steypu. Ófriðarhætta? 4. des' Frá London er símað að Henderson utanríkisráðherra hafi falið sendiherra Breta í Moskva að mótmæla því, að á þriðjudaginn hafði verið útvarpað frá Moskva tilkynningu á ensku þar sem breskir verkamenn eru eggjaðir til byltingar. Togari hverfur. 4. des: Botnvörpungurlnn Apríl var á heimleið frá Englandi, og var hann 80. hvartmilur undan Vest- mannaeyjum á sutinudagskvöldið. Síðan hefir ekkert frjest af skipinu og eru menn hræddir um að það hafi farist. Á skipinu voru 17 menn. Frá Vestfjörðum 3, des: Hinir árlegu þing- og hjer- aðsmálafundir eru nýafstaðnir. 1 norðursýslunni kom engin van» trauststillaga fram á stjórnina, en nokkrar tillögur sem fólu í sjer á- vítur til stjórnarinnar voru samþ. með 18 fulltrúaatkvæðum gegn 8. í vestursýslunni \ar samþvkt traustsyfirlýsing til stjórnarinnar með 12 fulltrúaatkvæðum gegn 4. Stjórnarskifti í París. 5. des: Stjórnín í París hefir beð- ið ósigur við atkvæðagreiðslu í Sena- tinu með 149 gegn 145 atkv. Tar- dieu bað strax um lausn fyrir ráðu- * neytið. Frá Varsjá. 5. des- Lýðveldisforsetinn hefir útnefnt ráðuneyti. Lr Slavek for- sætisráðherra en Pilsudski hermála- ráðherra.

x

Siglfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.