Siglfirðingur - 10.01.1931, Síða 1
K O K S,
sjerstakleáá gott til raiðstöðva uaar,
til söiu íyrst um sinn.
Sören Goos.
Símfregnir frá Rvík.
Kommúnistauppþotið.
5. jan: Á lauáardagskvöldið var
haldinn fundur i vcrkainaanafje-
laginu „Daásbrún" í Breiðfjörðshúsi,
var hýsfyllir og margt manna úti-
fyrir er fundinum sleit laust eftir
miðnætti. Að fundi loknum sóttu
nokkrir menn rauðan fána og fór
hópur manna, ekki stór, undir fán-
anum að bústað forsætisráðherra, en
mesti fjötdi fylgdi á eftir fyrir í'ur-
vitnissakir. Kröfugöngumenn voru
flestir ungir menn, hjeldu þeir stutt-
ar ræður á götunni fram an við hús-
ið, en ráðherrann var ekki sagður
heima. Síðan sneri mannfjöldinn
upp að gatnamótum Hverfisgótu og
Ingólfsstrætis, voru þar nokkrar
ræour fluttar en eftir það dreifðist
hópurinn. Lögreglan ijet þetta af-
skiftalaust en hafði 40—50 auka-
menn á gamlárskvöld, mun þetta
lið verða til taks ef á þarfað'halda
til aðstoðar lögreglunni við upp-
hlaup eða óspekrir. — Alþýðublað-
ið segir að Dagsbrúnarfundurinn
hafi samþykt mótmæli ,egn hand-
töku kommúnistanna an undangeng-
innar rannsóknar sem óþarfri, en
frestað að svo stöddu að taka frek-
ari ákvarðanir. Fundurinn fól fjel-
agsstjórninni allar framkvæmdir í
alvinnubótamálinu. — Ymiskonar
lausafregnir um hótunarbrjef til rik-
isstjórnarinnar, bæjarstjórnar og iög-
reglustjóra hafa reynst uppspuni.
7. jan: Rannsókn í máli hiuna
fjögurra handteknu er lokið. Var
þeiin tilkynt í gær að rnálsókn yrði
hafin á hendur þeim og voru þeir
síðan látnir iausir úr varðhaldi.
f
Aætlun Rvíkur afgreidd.
7. jan: Bæjarstjórnarfundur var
haldinn í dag, sá fyrsti eftir upp-
hlaupið.
8. jan: Áætlun urn tekjur og gjöld
bæjarsjóðs var afgreidd í gær, eru
útsvörin áætluð kr. 2,157,303,59, en
að meðtaldri hlutdeiid i útsvörum
frá öðrum sveitarfjelögum, skatti sam-
vinnufjelaga og annara samkvæmt
sjerstökum iögum alls kr. 2.204.
303,59. Samþykt var að taka hálfrar
miljón kr. lán til ýmsra framkv. og
ennfr. samþ. tillaga um að bæta úr
atvinnuleysinu í bænum,
Frá Berlin.
7. jau: Pýska þingið áformar að
styrkja atvinnurekendur landsins ,í
hlutfalli við það hve mörgum þeir
veita atvinnu, á þetta að koma í
stað atvinnuleysisstyrkja.
Vinnustöðvun í Englandi.
8. jan: Fimm hundruð vefarar í
bómullariðnaði hafu hætt vinnu,
Búist við að hálf miljón manna
missi atvinnu vegna hótunar at-
vinnurekenöa ef vefararnir slaka ekki
á kröfum sínum.
Parísarflug.
8. jan: Frá New-York er símað
að flugmennirnir Hoot og Mocleon
sjeu komnir ti! Bermuda. Peir eru
á leið til Parísar.
Landhelgisbrot.
8. jan: „Ægir“ kom með þýskan
botnvörpung sem hann tók í gær
við veiðar undan Höfnum.
Kristneshæli
skémmist mikið af eldi.
Klukkan að ganga 8 á miðviku-
dagshvöldið kviknaði í.þakinu á Krist-
nesliæli í Eyjafirði, og varð eldur-
ann ekki slökktur til fulls fyr en kl.
1 um nóttina. Á efri hæð hússins
A ð a 1 f u n d
heldur Borgarafjelag Siélftfjarðar
í Brúarfoss flmtudaginn 15, þ.
m. kl. 8| e. h.
Dagskrá samkv. fjelagslögum.
Skorað er á meðliiui fjel-
agsins að fjölmenna.
Siglufirði, ó.^jan. 1931.
Stjörnin.
bjó stárfsfólkið og þar voru geymd
föt sjúklinga og lyf, Ekkert bjargað-
ist úr herbergjum hjúkrunarkvenn-
anna — reyndi ein þeirra árang-
urslaust að bjarga dót: og
brendist allmikið við pa mraun.
Neðri hæð hússins og húsgögn
skemdust rnikið af vatui og reyk.
Sjúklingarnir, um 70 að tölu, voru
mjög róiegir, enda litið veilcir. Verða
þerr ekkt íluttir af hælinu, komist
hitaleiðslur tijótt í lag, en þær bil-
uðu við brunann. Ovíst er um upp-
tök eldsins. Læknir hæiisins hefir
áætlað tjónið ca 50 þús. kr.
Einar Olgeirsson
tók „Verkamanninn" af Erlingi
Friðjónssyni núna í vikunni, eða
rak hann frá blaðinu, og Ijet þá
hótun tylgja að hánn skyldi aldrei
fá að skrifa í blaðið framar, I rit-
stjórn blaðsins hafa verið Einar,
Jón GuSxnann og Erlingur. Nú um
liríð liafa þeir Einar og Erli ngur
verið í hárinu hver á öðrum — og
endirinn varð þessi.
Siglufjarðarprentsmiðja.