Siglfirðingur - 14.02.1931, Qupperneq 1
o
Símfregnir frá Rvík,
Einn „bitinn“ enn.
7. febr: Haraldur Guðmundsson
alþm. hefir verið skipaður banka-
stjóri útvegsbankans á Seyðisfirði.
„Frá Spáni.
9. febr.: Frá Madrid er simað að
samkvæmt konungsboðskap sje nú
13. gr. stjórnarskrárinnar aftur í gildi
og þingið kallað saman. Búist er
við að eftirlit með blaðaútgáfu verði
afnumin.
12. febr.: Alsherjar verkfall er
hafið í Cadiz í öllum iðngreinum.
Herstjórnin hefir viðbúnað í Madrid
og nágrenni vegna fundarhalda lýð-
veldissinna.
Fiskútílutningur.
9. febr.: Enskur botnvörpungur er
sem stendur í Keflavík og kaupír
nýjan fisk til útflutnings. ”Ari“ er í
Vestmannaeyjum í sama skyni, og
fleiri skip hafa tekið mótorbátafisk
til útflntnings bæði frá Vestmanna
eyjum og Akranesi.
Frá línubátaeigendum. .
10. febr: Utgerðarmenn Iínubát-
anna sámþyktu á fundi í gærkveldi:
1. að hreyfa ekki línuveiðarana til
útgerðar í vetur fyr en viðunandi
samningar væru fengnir um Iauna-
kjör háseta. Jafnframt samþyktuþeir
að lýsa yfir því að ómögulegt væri
að gera út skipin með þeim kjörum
sem felast í samþykt sjómannafje-
laganna frá 7. þ. m. 2. Með því
að útlit er fyrir að ekki náist sam-
komulag um launakjör háseta á
línubátum lýsa fjelagsmenn sig fúsa
til að leigja sjómannafjelögunum
skipin til þorskveiða i vetur til þess
að skipin ekki þurft að liggja í höfn
í vetur og sjómenn bíði ekki þann-
ig atvinnutjón.
Bandaríkin cg Rússar.
11. febr.: Frá Washington er síin-
að að Bandarikin hafi bannað inn-
flutning á timbri frá ýmsum lönd-
um Rússa, þar sem ranrisökn hafi
leitt í ljós, að fangar sjeu látnir
vinna að framleiðslunni.
Aflasala.
11. febr,: Leiknir 802, Barðinn
871, Hilmir 537, Arinbjörn 838
sterlingspund.
Þingmálafundur
um hjeradsmál og landsmál,
boðaður af fjárhagsnefnd
bSejarins.
Drotningin strandar. /
11. febr.: Dr. Alexandrine rakst
grunn við Kullen í Eyrarsundi kl.
3 í gær í dimnu iðri, losnaði aftur
með flóðinu og kom til Hafnar kl.
5 í morgun. Búist er við að skipið
sje óskemt. Farþegar toru aldrei úr
skipinu.
f
Utflutningur og afli.
12. febr.: Otfluttar vörur í janúar
fyrir kr. 3,435,100. Aflinn 1. febr.
3,616 skpd. Fiskbirgðir á sama tíma
95,725 skpd.
26 skip föst í ís.
12. febr. Frá Helsingfors er sím-
að að 26 skandinavisk gufuskip sjeu
föst í isnúm í Finnlandsflóa og sjeu
skipshafnir matvælalitlar. Rússnesk-
ir ísbrjótar eru farnir á stað til að-
stoðar skipunum.
Vantraust á Einkasöluna.
13. febr: Fjölmennur fundur út-
gerðarmanna var haldinn hjer og
þar lýst megnu vantrausti á stjórn
og rekstri Síldareinkasölunnar, og
færðar fyrir því ýmsar ástæður.
Fiskiveiðabanki i Danmörku.
13. febr: Forsætisráðherra Dana
hefir lagt fyrir þingið frumvarp um
stofnyn fiskiveiðabanka, sem megi
lána alt að 20 miljónir alls til fiski-
veiða gegn 4£ prc. vöxtum til 15
ára Iengst.
Influenza í Færeyjum.
33. febr: Um 2000 manns liggja
nú í influensa í Færeyjum.
Fjárhagsnefnd kaupstaðarins boð-
aði til þingmálafundar fyrir Siglu-
fjörð er haldinn var í Bió í gær-
kveldi. Guðm. Skarphjeðinsson setti
fundinn fyrir hönd nefndarinnar og
valdi sem fundarstjóra Vilhjálm
Hjartarson kaupfjelagsstjóra. Fund-
arskrifarar voru Einar Hermanns-
son og Jóhann Guðmundsson.
Húsið var torðfult, og munu 400
til 500 manns hafa setið fundinn.
Fjárhagsnefnd lagði fram 7 til-
lögur og Jafnaðarmannafjelagið 8.
Pá komu og tillögur fram frá Skip-
stjórafjelaginu og Vjelstjórafjelaginu
og nokkrar frá einstökum mönnum,
Pessi fundur var að því leyti frá-
brugðin þeim þingmála og borgara-
fundum sem hjer hafa oft verið
haldnir og náð hafa því að verða
hjerumbil heimsfrægir, að nokkru
minna var nú látið fjúka af sví-
virðingum og ærumeiðingum um
einstaka menn. Pó urðu all-heitar
umræður um tvö mál: Um þing-
mann fyrir Siglufjörð og um inn-
göngu í Pjóðabandalagið. Stóð hin
t'ámenna Framsókn eiginlega ein
uppi til varnar þeirri fyrirætlun
núverandi stjórnar, að láta lsland
ganga í Bandalagið. Kommúnistar
og Kratar börðust bróðurlega á
móti en Sjálfstæðismenn Ijetu málið
hlutlaust.
Vegna rúmlevsis í blaðinu er ekki
hægt að skýra nánar frá fundinum
í þetta sinn, en fundargerðin verð-
ur væntanlega birt í næsta blaði;
Mikill afli.
13. febr: Snorri Goði fjekk nýlega
4000 körfur af fiski í einni veiðiför
og komst ekki með allan til Eng-
lands.
ELDAVJELAR, svartar og
hvítar. OFNAR, svartir, græn-
ir, brúnir. Vaskar, Vaskarör,
Ofnrör, Prímusar fæst ódýr-
ast hjá
Friðb. Níelssyni.