Siglfirðingur - 01.03.1931, Page 1
o
IV. árg.
Siglufirði, Laugardaginn 1. marz 1931
13. tbl.
Símfregnir frá Rvík,
Alþingi.
23. febr: M. Torfason, Jörundur,
Porleifur og Hákon flytja þingsál.
er skorar á stjórnina að hlutast til
um að Laiidsbankinn Iækki vexti
hið fyrsta. — Fjármálaráðherra
skýrði frá því í framsöguræðu sinni
við fyrstu umræðu fjárlaganna, að
tekjur ríkissjóðs 1930 hefðu farið
langt fram úr áætlun. sem var 11,
929,600 kr., en eftir bráðabyrgða-
uppgjöri væru þær orðnar 17,247,
943 kr. Útgiöldin sagði hann að
hefðu orðið 17,166,010 kr„ eða 5,
285,886 kr. umfram það sem áætlað
var. Tessir tekjuliðir hafa farið mest
framúr áætlun: Víneinkasalan 800
þús. kr. Tekju- og eignaskattur 534
þús. kr. Verðtollur 768 þús. kr.
Vörutollur 601 þús. kr. Símatekjur
443 þús. kr. ÁfengistoIIur 400 þús.
kr. Tóbakstollur 337 þús. kr. Hæstu
gjaldaliðir umfram áætlun urðu:
Samgöngumál 1243 þús. kr. Dóm-
gæslu- og lögreglustjórn 506 þús. kr.
Verkleg fyrirtæki 337 þús. kr. Vext-
ir og afborganir 228 þús. kr. Óviss
úigjöld 280 þús. kr. — Samkvæmt
heildaryfirliti yfir skuldir rikissjóðs
árin 1921-1930 voru þær:
1921 kr. 26,768,775.
1925 - 20,995,457.
1930 - 40,210.000.
Allsnarpar umræður urðu eftir
ræðu fjárm.ráðherra í sambandi við
fyrirkomulag á útvarpí frá Alþingi.
Við þær umræður kröfðust Sjálf-
stæðismenn og Jafnaðarmenn að
flokkunum yrði gert jafnt undir
höfði með útvarp þingræðna.
24. febr: Samskonar frumvörp eru
fram komin, eins og í fyr'ra, um
hafnargerð á Akranesi og Sauðar-
króki.
27. febr: Tessi ný mál hafa ver-
ið lögð fyrir þingið. Um hafnar-
gerð á Dalvík, flm. Bernharð. Um
verðfesting pappírsgjaldeyris, flm.
B. Kr. og Jón Torl, Um forkaups-
rjett kaupstaða á hafnarmannvirkjum
flm. Erl. og Jón Baldv. Um lækk-
un á kaffi- og sykurtolli, flm.H. G.
Frv. til ábúðarlaga og um ágang
búfjár, fl.m. Jörundur. Um Háskóla
Islands, stj.frv. Um rekstrarlánafje-
lög til bátaútgerðar fl.m. 7 sjálfstæð-
ismenn. Pál. um ríkisábyrgð' á við-
skiftum við Rússland, fl,m. Erling-
ur og J. Baldv. Um lax og silungs-
veiði fl.m. Jörundur.
Inflúensan.
23. febr.: Inflúensan breyðist ört
út. Samkomubann auglýst hjcr frá
og með deginum í dag vegna in-
flúensu.
Á Akureyri, ísafirði, Vestmanna-
eyjum, Súgandafirði, Önundarfirði
og Borgarfirði eystra hefir verið ákveð
ið að verjast inflúensunni. Auk þess
allmargir hreppar.
Húsbrunar.
3 menn brenna inni.
23. febr,: Prestssetrið (Skinnastað-
ur brann tll kaldra kola í gærkveldi.
Fólk bjargaðist.
25. febr. 1 morgun laust fyrir kl.
9 varð elds vart í svokölluðu Sigl-
firðingahúsi í Hafnarfirði. og varð
húsið alelda á mjög skammri stundu
og brann til kaldra kola. Öldruð
hjón ásamt sonarsyni sínum brunnu
inni. Húsið var stærsta íveruhúsið
í Hafnarnrði og bjuggu í því 10
fjölskyldur.
26. febr. Hjónin sem brunnu inni
í Hafnarfirði hjetu Elías G. Arna-
son, 74 ára og Vilborg Vigfúsdóttir
66 ára. Drengurinn hjet Dagbjartur
Vigfússon 6 ára. Líkin fundust í
brunarústunum í gær. 36 manns var
búandi í húsinu, alt fátækt fólk og
brunnu allar eigur þeirra óvátrygð-
ar. Samskot eru hafin í Rvík og
Hafnarfirði.
27. febr.: Upptök eldsins voru
þau, að ofn sprakk þegar verið var
að kveykja upp um morguninn, og
varð herbergið alelda á augnabliki.
Frá Spáni.
23. febr. Á ráðherrafundi í dag
verður tekin ákvörðun um 3 þýð-
ingarmestu málin: launahækkunar-
kröfur járnbrautarmanna, opnun há-
Fjelag Sjálf-
stæðismanna
á Siglufirði,
heldur fund i Brúarfoss kl. 4
á morgun (sunnudag.)
FUNDAREFNI:
Frjettir af Landsfundinum o. fl.
Stjórnin.
skólanna og ótnefningar fylkisstjór-
anna. Jafnaðarmenn á Spáni hafa
ákveðið að taka ekki þátt í þing-
kosningunum.
Kröfugöngur.
24. febr. Kommúnistar ætla að
hefja kröfugöngur í öllum Skand-
inavíulöndum á mörgun, samkv.
undirlagi frá Moskva, gegn atvinnu-
leysinu í heiminum. 1 sambandi
við þessa fyrirhuguðu kröfugöngu
hefir lögreglan í Höfn handtekið
marga menn, sakaða um að ætla að
sprengja ráðhús borgarinnar í lopt
upp, „Ekstrabl." fjekk og hótun um
að bygging þess yrði sprengd upp.
26. febr. Kommúnistar fóru kröfu-
göngur víða í álfunni í gær eftir skip-
un frá Moskva til mótmæla atvinnu
leysinu. Lítilfjörleg þátttaka víðast
og litlar óeirðir nema í Leipzig, þar
biðu 4 kröfugöngumenn bana og
nokkrir særðust.
Aflasala.
24. febr: Venus 2578, Tryggvi
gamli 2174. Ólafur 1130 stpd.
Konur móti banni.
26. febr: Frá Helsingfors er sím-
að að ýms helstu kvenfjelög Finn-
lands sjeu að safna undirskriftum
undir ávörp til forsetans um afnám
bannlaganna.
Frá Moskva.
27. febr.: Fjórtán af umboðsmönn-
um stjórnarinnar hafa verið kærðir
fyrir landráð. Rjettarhöld yfir þeim
hefjast 1. marz.