Siglfirðingur - 14.03.1931, Síða 1
Símfregnir írá Rvík.
Alþingi.
5. mars: Talsverðar umræður
urðu i n.d. í gær um tollamálin.
Hjeðinn og Haraldur voru annars-
vegar enn Sjáifstæðismenn og Fram-
sókn á móti, sem eiga samleið í
þessum málum. — Ný mál: Um
vjelstjóraskóla á Ak„ um stækkun
lögsagnarumd. Rvikur, um jöfnunar-
sjóð, um verslunarnám, um atvinnu-
rj. verslunarm. um sveitargjöld, um
sölu víðtækja, um lækkun á síldar-
gjaldi til flugmálasjóðs.
10. mars: Ný mál: Frv. um sjó-
veitu í Vestm. Um opínbera vinnu,
um sauðfjármörk. Guðrún L. flytur
frv. unrbreytingu á fátækralögunum,
um að banna fátækraflutning eldri
manna en 65 ára. Stjórnin flytur
frv. um verðfestingu ísl. gjaldeyris.
12. mars: Lækkun Haraldar á
feaffi og sykurtolli feld. Ný mál:
Um innh. útsvara í Rvík, um að
heimila rikisstj. að verja 50 þús. kr.
til að gera að ári tilraun með nýjar
veíðiaðferðir og veiðarfæri, um
heimild tíl stj. að styðja að útflutn-
ingi nýs fiskjar, um heimild til að
kaupa eða leigja kæliskip og halda
uppi reglubundnum hraðferðum með
kældan fisk. — Nefndarálit um á-
byrgð rikisins á rússavíxlunum er
komið fram, vill Ingvar að ríkið
ábyrgist 2 miljónir skilyrðislaust en
Jón Porláksson vill að til komi
gagnábyrgð Einkasölunnar.
13. mars: I n.d. voru harðar um-
ræður í gær um frv. stjórnarinnar
um vitagjald, er það var til 3 umr.
Er með frv. gert ráð fyrir að vita-
gjaldið hækki um það sem gengisvið-
aukanum á aðflutningsgjaldi nemur,
en að hann falli niður, Sjáfarút-
vegsnefnd ber fram tillögu um að
gjaldinu verði öllu varið til vita-
mála og annars þess, er tryggi ör-
yggi á siglingaleiðinni með strönd-
um fram. En sú- tillaga fjell með
14 gegn 10 atkv. eftir 3ja stunda
rimmu. — Ingvar ber fram frv. um
fimtardóm, að tilhlutun dómsmála-
ráðherra. — Jón Porláksson flytur
svohljóðandi fyrirspurn til fjármála-
ráðh: Hversvegna hefir fjmráðh. í
bráðabyrgðauppgerð þeirri um tekj-
ur og gjöld ríkissjóðs árið 1930,
sem hann lagði fram við 1. umr.
fjárlaganna 21. f. m.: a. talið gjöld
til vega- og símamála samtals 550
þús. kr. lægri en þau vitanlega eru;
b. undanfelt með öllu að telja gjalda-
megin kostnaðinn við nokkrar verk-
legár framkvæmdir ríkissjóðs 1930
er virðast hafa kostað 4þ miljón
kr. samtals, þar á meðal til bygg-
ingar sildarbræðslustöðvar, lands-
spítala, landsimastöðvar, skrifstofu-
byggingar og til kaupa á Súðinni;
c undanfelt einnig með öllu að telja
til útgjalda það fje, sem varið hefir
verið á árinu til kaupa á hluta-
brjefum í Útvegsbankanum, þar á
meðal sjerstaklega 1| miljón kr.
sem beinlínis var útborguð vegna
þessara hlutabrefakaupa; d. talið
tekjuafgang kr. 81,933 í stað þess
að greiðsluhalli hefir sjáanlega orð-
ið yfir 6þ miijón kr, sem jafnaður
hefir verið með lántökum.
Mál Dr. Helga Tómassonar.
6. mars: Dómur fallinn í máli
Helga Tómassonar gegn ríkisstj.
sem er dæmd að greiða Helga
missiriskaup auk þóknunar fyrir
húsnæði ljós og hita jafnlangan
tima.
11. mars: Dómur er fallinn í
meiðyrðamáli Helga þannig: Har.
Guðm. 75 kr' sekt 94 kr. málslc.
Halldór Laxness 150 kr. sekt 75
kr. málsk. Guðbr. áfengisforstjóri,
Hannes dýral. og Gunnar Árnason
75 kr. sekt og 100 kr. málskostn.
hver, Halldór Stefánsson 100 kr.
sekt 94 kr. málsk.
Frá Frakklandi.
10. mars: Námuverkfall er yfir-
vofandi í öllu Frakklandi, orsök:
launalækkunartilraunir.
11. mars: Tilr^iunir til að knýja
fram launalækkanir standa yfir í
helstu löndum álfunnar. Deilurnar
alvarlegastar í Frakklandi og búist
við alsherjarverkfalli 16. mars:
Skattanefndin
skorar á þá sem ekki hafa sent
skattframtal, að koma þvi til
skattanefndar í Vetrarbraut 14
fyrir næstkomandi miðvikudag
18. mars. Eftir þann tíma tek-
ur skattanefndin ekki móti
skattaskýrslum.
Frá Vestmmannaeyjum.
11. mars: Bátar fóru á sjó í gær
og fyrradag efttir 5 daga landlegu,
afli altað 2700 þorskar. Tveir
þýskir og 1. ísl. togari taka nýjan
fisk til útflutnings. „Lordtalbot“,
sem fór til Englands 2. febr. kom
til Eyja i gær, hafði fengið 2000
lúður.
Frá Englandi.
11. mars: Taugaveiki virðist vera
að útbreiðast iskyggilega í Englandi.
Um 400 hafa fengið veikina og eru
margir þegar dánir.
Prófesscrsembættið.
13. mars: Dómnefndin hefir á-
kveðið að Árni Pálsson og Porkell
Jóhannesson skuli einir halda áfram
samkeppninni um prófessorembættið
við háskólann.
G. Hannesson
bæjarfógeti, verður 50 ára 17.
þ. m.
ÓlöJ Éinarsdóttir
(Heímannssonar) er nýlaga látin
á spítala í Rvík.
Karlakóriö
„Vísir“ æfir nú söng af míklu
kappi og mun væntanlega halda hjer
söngskemtun bráðlega.
Einkasalan.
Sjálfstæðismenn í sjáfarútvegs-
nefnd flytja frupivarp um gagngerða
breytingu á stjórn Einkasölunnar.
Verður þessara markverðu breyt-
inga ,^etið í næsta blaði.