Siglfirðingur - 28.03.1931, Blaðsíða 1
IV. árá.
Siglufirði, Laugardaginn 28. marz 1931
17. tbl.
Símfregnir frá Rvík,
Alþingi.
22. mars: Fjármálaráðherra svar-
aði í gær fyrirspurn Jóns Porláks-
sonar og var margt áheyrenda. Fyr-
irspyrjandi hjelt langa og mjög ítar-
lega ræðu og skýrði fyrirspurnirnar.
Svar fjárm.ráðh. var í stuttu máli
þetta: a-liður: Petta er fyrirfram-
greiðsla sem oft áður heúr tíðkast
þjnnig; t'járgreiðslur sem áætlaðar
eru til næsta árs en úlbnrgaðar strax.
Tilnefndi sem dæmi veg í Dala- og
Skaftafellssýslum. b og c-liður: Hjelt
fram að upphæðirnar sem þar eru
greiddar ættu ekki að koma rekst-
ursreikningi ríkisins við; tilnefndi
útgjöld vegna byggingar sem ekki
væri talin í yfirliti fjárm.ráðh. 1924
nje landsreikningi 1923. Annars væri
þetta aðeins formsatriði sem hvorki
hann eða J. Porl. væri fær um að
greiða atkvæði um. d-liður: Er varla
svaraverður. Að ræðu fjárm.ráðh.
lokinni töluðu þeir Jón Porl. og
Jón Baldvinsson, taldi J. P. svar
tjármálaráðh. ófullnægjandi að ýmsu
leyti og tók fram, að með því að
ráðh. hefði alls ekki hnekt þeim töl-
um, sem fyrirspurn sín væri bygð
á, væri fullvíst að einnig væru rjett-
ar þær ályktanir, er hann hafði af
þeim dregið. — Pjetur M. ílytur
þ.á.l. um endurnýjun á útvarpsleyfi
Arthurs Gook á Akureyri. — M.
Jónsson flytur 2 fyrírspurnir til
stjórnarinnar. 1. Hve miklu fje hefir
verið varið til útgáfu á sögu Kaup-
fjelags Evfirðinga, með hvaða heim-
ild hefir stjórnin tekið peninga til
þess af opinberu fje; er það satt að
nú sje í prentun saga um afreks-
verk stjórnaririnar. 2. Af hvaða á-
stæðum hætti stjórnin við að segja
upp samningi „Mikla norræna“ og
koma upp stuttbylgjustöð til þess að
annast sambandið við útlönd.
24. mars: Mótmæli hafa Alþingi
borist frá Norðfirðingum, Húsvík-
ingum og Skagfirðingum gegn drag-
nótarveiðabreytingum Haraldar. Felt
var með 13 gegn 12 atkv. að vísa
frv. til sjávarútv.n., taldi flm. það
óþarft að frv, færi í nefnd, það hefði
verið í nefndum svo oft áður.
26. mars: Ekki búist við 2. um-
ræðu fjárlaganna fyr en eftir páska.
— Jóh. Jósefsson ber fram breyt-
ingu á útfl.gj. á síld svohlj.: Af fyrstu
170 þús. tn. verkaðrar síldar útflutt-
um ár hvert skal greiða 150 aura
af hverri tn. 108 —120 lítra, af því
sem útilutt 'er þar fram yfir skal
greiða 1-J- prc. af verði síldarinnar.
— J. Porl., J. Baldv. og Jóhannes
flytja breytingu við stjórnarskrár-
frumvarpið, svohlj.: Umboð allra
þingmanna fellur niður að loknu
reglulegu Alþingi 1932 og fara þá
fram almennar kosningar til Alþing-
is. Stjórnarskrárnefndin mælir öll
með færslu aldurstakmarksins í 21
ár, en öðru leyti hafa allir nefndar-
menn, nema framsóknarmenn, á-
skilið sjer rjett til að bera fram
breytingartillögur. — Frv. J. Ól. og
Haraldar um Útvegsbankann vartil
umræðu í gær og urðu umræður
snarpastar það sem af er þessu
þingi. Aðal nýmæli frumvarpsins er
ríkisáb. á innstæðufje og tilsiökun á
innlausnarskyldu seðlanna, þannig,
að bankinn megi draga þá inn á
10 árum. Íslandsbankamálíð komst
allmjög inn í umræðurnar, auk
frsm. J. Ólafssonar töluðu M. Guð-
mundsson, Sig. Eggerts, O. Thors,
Haraldur, fjárm.ráðh., forsætisráðh.
o. fl. — Fyrstu lög frá þinginu eru
um aukatekjur ríkissjóðs. — Erl.
flytur frv. um merkingu útfl. fiski.
— J. Baldv. og Erl. flytja frv. til
framfærslulaga.
Togara náð út.
24. mars: „Ægir” hefir náð út
togaranum „Lord Beaconsfield", sem
strandaði austan Kúðafljóts. Hafa
skip aldrei náðst út af söndum þess-
um fyr.
Milliríkjasamningur.
24. mars: Pýskaland og Austur-
ríki hafa gert viðskiftabandalag um
afnám út- og irinflutningstolla inn-
byrðis, sömuleiðis að gera ekki
nema í sameiningu samninga við
landbúnaðarríki Suðaustur-Evrópu.
26. mars: Pýsk-Austuríska , sam-
Jarðarför mannsins míns, Jakobs
Björnssonar, er ákveðin miðviku-
dagínn 1. apríl n. k. og hefst með
húskveðju á heimili okkar kl. 1 e. h.
Svalbarðseyri 26. mars 1931
Sigríður Björnsson.
komulagið er mest umrædda málið
í álfunni og virðist ætla að sæta öfl-
ugri mótspyrnu annara ríkja.
Asigling.
24. mars: Enskur togari sigldi á
færeysku skútuna „Lillie". sem kom
til Vestmannaeyja mikið brotin.
Togarinn hafði engu skeytt um merki
skútunnar, sem vafalaust hefði sokk-
ið ef nokkuð het'ði verið að veðri.
Skútan náði númeri togarans.
Verkföll
24. mars: Rafmagnsm.verkfall stend-
ur yfir í London og kolaverkfall
yfirvofandi í Frakklandi. Fjelag
skipaeigenda í Noregi hefir tdkynt
12 prc. kauplækkun frá 14 apríl,
búist við verkfalli út af því, sem
nái til 30 þús. manna.
Skipsstrand
24. mars: Stór franskur botnvörp-
ungur strandaði í Grindavík kl. 3 í
nótt í þoku. Skipsnöfnin, 38 menn,
bjargaðist. Skipið sokkið. Menn úr
landi gátu skotið línu út í skipið og
björguðu þannig skipsmönnum inn-
an 2 tíma. Ef Slysavarnarfjelagið
hefði ekki haft tæki þarna, er talið
víst að allir mennirnir hefðu farist.
Ýms tíðindi.
24. mars: Afli góður í Vestmanna-
eyjum. Útflutningur nýs fiskja/ held-
ur áfram þar. — í búatala Islands
ca. 108,500. — Hermála- og stú-
dentaóeirðir á Sáni.
27. mars: Atvinnuleysi minkandi
í Bretlandi en vaxandi í Pýska-
landi, þar eru nú nærri 5 milj. at-
vinnulausir. — Lýsisverð hefirhækk-
að allmikið og horfur á fisksölu
heldur batnandi.
Húsbruni.
26. mars: Eldur kom í nótt upp
í húsinu Nýhöfn við Kafnarfirði
og var hann slöktur á klukk.ustund.
Efri hæðin er mikið skemd, Fólk
bjargaðist nauðuglega og varð að
bjarga einni stúlku út um glugga.
Kviknað mun hafa í eldhúsinu.