Siglfirðingur - 11.04.1931, Blaðsíða 1
Símfregnir frá Rvík.
Alþing’.
(útdráttur úr símskeytum).
Pað sem einna mesta athygli
lieíir vakið í störfum þingsins und-
tinfarna daga, er það, að Sjálfstæð-
ismenn og Jafnaðarmenn virðast
Itafa tekið höndum saman um það
í báðum deiidum, að koma gegnum
þingið ýmsum merkum lagaákvæð-
i:m gegn óskiftri andstöðu Fram-
• sóknar. — I N.d. flutti meiri hluti
alshn. frumv. um virkjun efra Sogs-
ins og áður hafði þar verið flutt
frv. um fjölgun þingm. í Rvík.
Siðasta mars var leitað atkv. um
það í deildinni samkv. áskorun að
taka bæði þessi mál á dagskrá, var
það samþ. með atkv. Sjálfstæðis-
og Jafnaðarmanna. Frv. um t'jölg-
un þingm. í Rvík upp í 9 var vís-
að til 2. umr. og nefndar. Um
virkjun Sogsins urðu langar og
snarpar umræður, er stóðu yflr í 2
daga. Aðalhugsun frv. er að Rvik,
sem á hálf vatnsrjettindi Sogsins,
byrji á virkjuninni og haldi henni
áfram þar til vatnsfallið er virkjað
að hálfu og selji raforku til nær-
liggjandi hjeraða með kostnaðarverði.
Er talið að allar sýslur sunnanlands
frá Dala- að Skaftafellssýslu verði
aðnjótandi fyrirtækisins. Frv. ráð-
gerir 7 miljón kr. ríkisábyrgð. Með
frv, töluðu J. Ol. Hjeðinn, Magnús
Guðm., Eggertz og margir fleiri, en
Einar og Jónas ráðherrar á móti.
Framsókn reyndi að vísa málinu
til nefndar í von um að fá því
sálgað þar, en það var felt með
sameinuðum atkv. Sjálfstæðis- og
Jafnaðarmanna, enda frv. frambor-
ið af alsherjarnefnd og er slíkum
frv. vanalega ekki visað til nefndar.
— I E.d. flutti stjórnia frv. um
breytingu stjórnarskrárinnar. Fann
7. þ. m. var málið til 2. umræðu
og voru þá samþ. þessar breytingar
með atkv. Sjálfstæðis- og Jafnaðar-
manna en gegn öllum atkv. Fram-
sóknar: 1, Regar umboð landskjör-
inna þingm. fellur niður eftir þing
1932, skal þing rofið og nýjar kosn-
ingar fram fara, 2. Fjölga máþing-
mönnura með einföldum lögum,
3. Efrideildarþingm. sjeu kosnir af
sameinuðu þingi með hlutfallskosn-
ingu, 4. Ákveða má með lögum
hlutfalf.kosningu í öllum kjördæm-
um landsins og að varamenn vetði
kosnir. 5. Peginn sveitastyrkur skal
ekki svifta menn kosningarjetti. —
Fingm.fjölgunin var til 2 umr. í gær
Var bril. frá Magnúsi G. um að
fjölga þ.m. aðeins upp í 5, samþ.
með öllum atkv. Sjálfstæðism. og
Jafnaðarm. og 2—3 atkv. úr Fram-
sókn að viðhöfðu nafnakalti, og
málinu síðan vísað til 3. umræðu.
Fjárlögin koma sennilega til um-
ræðu á mánudaginn. Niðurstöður
á brtl. nefndarinnar eru þéssar: Auk-
in fjárveiting 41628 kr. Hækkun á
áætlun útgj. 511191 kr., samt. 552,
819 kr. Lækkun gjalda 155900 kr.
Hækkun tekna 350000 kr.. samtals
505000 kr. Nettóhækkun gjalda
46919 kr. Verður þá tekjuafg, frumv.
kr. 115462,46 Fessir tekjul. hækkað-
ir: Áfengist. tóbakst. og vínsala um
50 þús. hver, vörutollur og verðt.
100 þús. hver.
Fjárhagsnefnd er klofin um frv.
um ríkisbókhald og endurskoðun
— Guðrún Lárusdóttir flytur frv.
um friðhelgi skírdags. — Fram-
lenging dýrtíðaruppbótar er komin
til N.d. — Frv. um utanfararstyrk
presta hefir verið afgr. sem lög. —
Bjarni og Ottesen flytja frv. um
kartöflukjallara og markaðsskála í
Rvík. — Meiri hluti afshn. E.d.
vill samþ. frv. um Fimtardóm. —
Ingvar flytur frv. um að opinberir
starfsmenn ríkisins skuli skyldir að
flytja árlega í útvarpið minst tvö
fræðandi erindi um stofnun þá eða
starfsgrein, er þeir veita forstöða. —
Frv. um breytingu á lögum um
úrskurðarvald sáttanefnda og breyt-
ing á lögum um tilbúinn áburð,
hafa verið afgr. sem lög. — Frv.
um vitagjald fer í sam. þing vegna
ágreinings milli deildanna. — Frv.
Haraldarum dragnótaveiðar varfelt
í Nd með 14 gegn 7 atkv. — Ás-
geir, Sigurjón og Magnús J. flytja
frv. um br. á lögum um skipun
barnakennara og laun þeirra. —
Pjetur M. flytur eftirt. breytingar
við Fimtardóminn: 1. Rjetturinn
haldi núverandi nafni ella heiti Yfir-
rjettur, 2 Fastadómarar verði 5 en
ekki þrír, 3. Dómaraprófið sem
hæstarjettarlögin ákveða haldist, 4.
Um hækkun launanna eins og í
stj.frv. 1930, 5. Ákvæði um fjelags-
samtök málafl.manna, falli burt.
6. Ákvæði um að Hæstarjett skuli
leggja niður er Fimtardómur tekur
til starfa, falli burt. — Samgmn.
Nd. vill samþ. frv. um veginn aust-
ur með breytingum í þá átt að
bæta sumarleiðina og stytta og
leggja veginn svo. að sem lengst verði
akfær. — Snarpar umr. urðu í fyrra-
dag um frv. Erl. viðvíkjandi lokun
íslandsbanka. Heyrst hefir að stj.
hafi skipað Stefán Jóhann. Pórð
Eyólfsson og Einar Arnórsson í
nefnd til að rannsaka aðdraganda
lokunarinnar, eri það hefir ekki ver-
ið tilkynt opinberlega ennþá. —
Stækkun á lögsagnarumd. Rvíkur
var samþ. í N.d. með 1. atkv.
mismun.
Frá Bretlandi.
Fiugvjelaskipið Gloriaus rakst á
frakkneska línuskipið blorida undan
Gíbraltar. 23 fa^þega vantar afFlor-
ida, sem sennilega hafa druknað.
Gloriaus dró Florida til Malaga.
Mannalát.
Kjartan prófastur Helgason. Pjet-
ur Oddsson kaupm. í Bolungarvík
og Oli P. Blöndal fyrrum póstritari,
eru allir nýlega látnir.
Landhelgisbrot.
Ægir tók 2 enska togara í land-
helgi 4. þ. m. Fjekk annar þeirra
hlerasekt en hinn 12,500 kr. sekt
og alt upptækt.
Maður brjálast.
Aðfaranótt 8. þ. rn. brjálaðist
maður í prívathúsi í Rvík, rjeðist
hann ínn til aldraðra hjóna í hús-
inu og meiddi þau mjög mikið áð-
ur er. hann varð tekinn. Varð að
flytja hjónin á sjúkrahús.
Framhald á 4. síðu.
(