Siglfirðingur


Siglfirðingur - 02.05.1931, Side 1

Siglfirðingur - 02.05.1931, Side 1
 IV. árg. Siglufirði, Laugardaginn 2. maí 1931 21. tbl. Avarp til Islendinga. h ú s Pað er nú öllum kunnugt orðið, að landsstjórnin hefir, með því að misbeita konunásvaldinu, felt úr gildi fyrirvaralaust umboð hinna kjör- dæma kosnu þingmanna, einmitt á þeirri stundu, er hún vissi, að hún var orðin í minni hluta í þinginu. og einmilt á þeirri stundu, er byrja átti að ræða um vantranststillögu til hennar, sem vitað var, að yrði samþykt. Ofbeldisverk þetta gegn hinu 1000 ára gamla Alþingi þjóðar vorrar, er alveg eins dæmi. Það er skýlaust stjórnarskrárbrot samkvæmt áliti þess eina lögfaæðings, háskólakennarans í stjórnlagafræði við Háskóla íslands, sem um þetta hafði ritað, áður en deila þessi hófst, og þess vegna hlaut að líta hlutdrægnislaust á málið. Pað er algert hrot á þingræðisreglum. Pað var undirbúið með algerðri leynd, og framkvæmt að þinginu alveg óvöru, til þess að engum mótmælum yrði við koinið, og er þetta einræð- isfull misbeiting konungsvaldsins. Pað bakar ríkissjóði og þjóðinni stórtjón, með því að alþingiskostnaði þeim, sem þegar er fallinn, er áglækastað. Pingflokkur Sjálfstæðismanna hefir undanfarna viku reynt með öllu löglegu móti að fá ráðna bót á þessu gerræði landsljórnarinnar, þannig. að Alþingi fengi að halda áfram störfum, en þar hefir strandað á því, að forsætisráðherra hefir neitað að víkja, þrátt fyrir endurteknar áskoranir meíri hluta þingfulltrúa og fjölmennra funda víðsvegar um land. Hann hefir metið sinn vilja meira en vilja meiri hluta þingfulltrúa og mikils meiri hluta kjósenda í iandinu. Pað hefir þó unnist á, að hann hefir neyðst til að losa sig við báða ráðherra sína. Auk þess hefir hann lofað, að ríkisvaldinu skuii ekki misbeitt í kosningabaráttu þeirri, sem í hönd fer. — — Sjálfstæðisfiokknum dylst það ekki, að í þessu málí -hefir það komið greinilega í Ijós, hvílíkir gallar eru á núverandi skipulagi æðstu stjórnar landsins, þar sem gerræðisfullur forsætisráðherra getur notað sjer ókunn- ugleika konungs í fjarlægu landi til slíks atferlis gegn þingi þjóðarinnar. Lítar flokkurinn því svo á, að ekki verði hjá því komist, að gera breyt- ingu á þessu, svo fljótt sem auðis er að koma þvi í framkvæmd á stjórn- skipulegan hátt, En þar sem fiokkurinn vill halda sjer á grundvelli stjórn- arskrárinnar og landslaga, telur hann, að eins og nú er komið, sje ekki önnur leið fyrir hendi til rjettingar þessara mála en sú, að kjósendur landsins reki af höndum sjer, vúð alþingiskosningarnar 12. júní næstkom- andi, þá stjórn, sem svo freklega hefir misbeitt valdi sínu, og þá þingmenn, sem hafa veitt henni stuðning til þess. Með þessum kosningum verður þjóðin jafnframt að kveða upp harð- an áfellisdóm yfir stjórninni fyrir það, að hún hefir hleypt fjárhag ríkis- sjóðs í meira öngþveiti en þekst hefir áður, þrátt fyrir afar-háa skatta, góðæri og geysilegar tekjur, svo og misbeitt valdi sínu á margvíslegan annan hátt, landi og lýð til tjóns og minkunar. Reykjavik, 21. aþril 1931 Jón Þorlákssoti. Björn Kristjánssou. Eittar Jónsson. Guðrún Lárusdóttir. Hákon Kristófer.sson. Halldór Sleinsson. Jóhantt Jósefsson, Jóhannes Jóhannesson, Jón A. Jónsson. Jón Olafsson, Jón Sigurðsson. Magnús Guðtnundsson, Magnús Jónsson, Ól. 'l'hors, Pjetur Magnússon, Pjetur Ottesen, Sig. Eggerz. til sölu á besta stað í bænum, ágætt til verslunar eða veitinga. Óbygð lóð, áföst við, £etur fyl£t. Upplýsingar gefur Siéurður Kristjánsson Aðalgötu 24. Útvarpið næstu viku. Alla daga vikunnar: 19,25 Hljóm- leikar, 19,30 Veðurfregnir. Ennfr. 3. maí: Kl. 12 Árni Sig: Messa í Fríkirkjunni (ferming). 19,35 Póra Árnadóttir: Barnasögur. 19,55 Óákv. 20,10 Hljóml. 20.30 Sig: Norðdal: Meistari Jón. 20,50 Óákv. 21 Frjettir 21.20 Hljóml. 4. maí: Kl. 19,35 F'rjettir. 20—22 Stjórnmálaumræður. 5. maí: Kl. 19,35 Frjettir 20—22 Stjórnmálaumræður. 6. maí: Kl. 19,35 Frjettir 20-22 Stjórnmálaumræður. 7. maí: Kl. 19,35 Guðjón Guð- jónsson: Uppl. 19,50 Grammófónn 20 Pýska I. fl. 30,20 Grammófónn 20,30 Pálmi Hannesson: Einkenni lifsins og uppruni. 20,50 Óákv. 21 Frjettir. 21,20 Orgelhljóml. 8. maí: 18,30 Páll Sophaniasson: Sauðburður: R. Ásgeirsson: Kar- töflurækt 19,35 Ingunn Einarsd: Uppl. 19.50 Óákv. 20 Enska I. fl. 20,20 Hljóml. 20,30 Ólafur Ólafs- son: Hallgerður langbrók. 20,50 Ó- ákv. 21 Frjettir 21,20 Guðrún Á- gústsdóttir Einsöngur. 21,40 Dagskrá næstu viku. 9. maí: Kl. 19.35 Fr. Hallgríms- son: Barnasögur 19,50 Hljórnl. 20 Pýska I. fl. 20,20 Hljóml. 20,30 Ólafur Ólafsson: Hallgerður lang- brók. 20,50 Óákv. 21. Frjettir 21,20 Páll Stefánsson: Kvæðalög. 21,35 Dansmúsik. Siglfirðingur kemur aftur út á miðvikudag

x

Siglfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.