Siglfirðingur - 13.05.1931, Síða 2
2
SIGLFIRÐINGUR
SIGLFIRÐINGUR
kemur 'út á laugnrdögum. Kostarinn-
anlands 4 kr. árgangur, minnst 52
tbl. 10 au. blaðió í lausasölu. Utan-
lands 5 kr. árgangurinn. Auglýsinga-
taxti: 1 kr. 9entimeter dálksbreiddar.
Afsláttur ef mikið «r auglýst.
Utgefandi:
Sjálfstæðismannafjelag Siglufjarðar.
Ritstjóri og afgreiðslum.:
Friðb. Níelsson
Póstbólf 118. Sími 13
eintóman óþarfa, það er ekkert smá-
ræði. — Svona er það stundum, að
heggur sá er hlýfa skildi. — Pá var
það eitt í ræðu Eysteins, sem gerir
hann beran að biekkingatilraun við
þjóðina. Hann tók það fram, og
lagði mikla áherslu þar á, að ef „í-
haldið“ hefði ekki skilið við 12
miljón kr. skuldir 1927, þá hefði
verið hægt að verja 1|- miljón kr.
meira á ári til verklegra fram-
kvæmda, en gert hefir verið. „í-
haldið“ hafði með þessu haft 1|
milj. kr. árlegar framkvæmdir af
landsmónnum, og væri það ekki
fyrirgefandi. Vextir þessara 12 milj.
væri blóðtaka af þjóðinni. — En
svo játaði hann, að nú væru vextir
og afborganir ríkisskuldanna hækk-
aðir um helming, nú væru þeir
þrjár miljónir krótia. En nú vortt
þeir ekki lengur ófyrirgefanleg blóð-
taka. Nú var afsökun fyrir hendi.
Framkvæmdirnar bera margfaldan
ávöxt — segir Eysteinn — og gefa
landsmönnum 2 peninga fyrir 1. —
En í alvöru: Er Eysteinti þessi svo
grænn að álíta að óhætt sje að segja
þjóðinni, að vextir af 12 miljónum
sje ófyrirgefanleg blóðtaka, en vext-
ir af 25 miljónum gefi tvöfaldan
hagnað? Nei, það getur ekki verið.
Hjer er þvi um venjulega Fram-
sóknar-blekking að ræða, sem ftjóðitt
lætur ekki bjóða sjer til lengdar.
Sá sem þetta skrifar, heyrði ekki
nema litinn hluta af ræðu Olafs
Thors, en eftir því sem skilorðir
menn segja, mun hann hafa saum-
að all óvægilega að stjórnir.ni, og
þó einkum hinum uppfiosnaða dóms-
málaráðherra. Að minsta kosti stóðst
hann ekki mátið og fjekk eftirgefinn
part af ræðutíma Eysteins, til þess
að hella úr skálum reiði sinnaryfir
Ólaf. Var það auðvitað ekkerf ann-
að en ærumeiðandi skammir, upp-
lognar frá rótum. Varð Ólafur að
lýsa því yfir í útvarpið, að hann
myndi höfða meiðyrðamál gegn
Öll bílauroferð er hjermeð bönnuð
um Fjarðarve£inn, frá á móts við Hlíðarhús og suðureftir, fyrst
um sinn og þangað til öðruvisi verður ákveðið, samkv. tillög-
um veganefndar. Bann þetta gildir unz tilkynt verður, að það
sje numið úr gildi. Hver sem brýtur bann þetta verður látinn
sæta sektum allt að 1000 kr. og gera við þær skemdir, sem
hin ólöglega umferð hefir valdið.
Skrifstofu Siglufjarðar 11. maí 1931
Bæjarfógetinn.
Jónasi fyrir ummælin. Svona fór
það nú. — Eitt af því glæpsam-
legasta, sem borið hefir verið á
stjórnina, er það, að hún noti ríkis-
sjóðinn sem flokkssjóð, noti hann
til þess að vinna Framsóknarflokkn-
um fylgis meðal þjóðarinnar. Pessu
hefir stjórnin jafnan neitað. En eitt
af því marga sem Tryggvi Pór-
hallsson lofaði ótilkvaddur, þegar
hann var að kaupa á sig frið útaf
þingrofinu, var það. að hann skyldi
ekki misnota aðstöðu sína til ríkis-
valdsins við kosningarnar. Með
þessari yfirlýsingu var fengin óbein
játning hans fyrir því, að svo hefði
verið að undanförnu. — Ólafur
Thors sagði nú þjóðinni frá því, að
Jón Porl. og M. Guðioundsson
hefðu farið á furid Tr, R., og spurt
með hverju liann ætlaði að sanna
þetta loforð sitt. Fyrsta svar ráðh.
var að skýra frá því, að nú væri
hann búinn að selja það sem eftir
var af lofgjörðinni um Kaupfjelag
Eyfirðinga, sem gefin var út fyrir
ríkisfje, og andvirðið endurgreitt
ríkissjóði. Annað: Bókin „verkin
tala“ sem nú er fullprentuð í 10000
eintökum fyrir ríkisfje og búið að
skrifa utaná 3000 eintök, skal ekki
verða send út fyrir kosningar. Rriðja:
Hin svokallaða „Bláabók" (um and-
stæðinga stjórnarinnar) skal aldrei
verða send út. — Með þessum svör-
um hefir Tr. P. beinlínis játað, að
Framsókn hafi notað fje ríkissjóðs í
þágu flokksins að undanförnu. En
það er einmitt talið eitt af höfuð-
glæpum hverrar stjórnar. Svona eru
þá altaf að smá sannast þau um-
mæli, sem Sjálfstæðismenn hafa haft
um stjórnina. Og áður en likur
mun alt það reynast rjett, sem þeir
hafa um hana sagt — því miður.
Ræða Stefáns Jóhanns gefur ekki
tilefni til umtals hjer. Hún vareins
og meinlaus suða í baunapotti, þar
sem að vísu altaf síður, en þó al-
drei svo, að út úr skvettist.
(Meira).
F r j e 11 i r.
Aukaútsvör á Isafirði eru kr. 215,
000 kr. Hæstu gjaldendur eru: Sam-
vinnufjelagið 9000. Raflýsingafje-
lagið 7000 Nathan & Olsen 7000.
Togarafjelag Isfirðinga 6500. Kaup-
fjelagið 5950, Jón Edvalds 5600.
íshúsfj. ísf. 4700. Olíuverslun íslands
4500. — A Seyðisfirði eru útsvör-
in 50,640 kr.
Forseta Finnlands, Svinhufvud,
hefir verið afhent ávarp, undirskrif-
að af 158.000 konum, þarsemþær
skora á hann að gangast fyrir af-
námi bannlaganna. Hefir forsetinn
látið svo um mælt, að óhjákvæmi-
legt verði að taka tillit til þessa á-
varps við væntanlega endurskoðun
bannlaganna.
í Bredstrup í Danmörku hefir
sparisjóðshaldari nokkur verið tekin
fastur fyrir 162 þús kr. sjóðþurð,
sem er til orðin fyrir eintóma góð-
semi hans. Hafði hann hjálpað
ýmsum mönnum með því að borga
fyrir þá vextina, og gerði það með
sínu eigin fje meðan til vanst. En
'er það þraut, tók hann af inneign-
u>n annara og faldi það lengi vel
með einlægum millifærslum. En
loks komst alt upp, og var þá upp-
hæðin orðin 162 þúsund. Hann
hefir lagt fram bók, þar sem ná-
kvæmlega eru tilfærðar þessar fjár-
tökur, og telja menn að honum hafi
gengið gott eitt til. Og ekki rann
neitt af þessu til hans sjálfs.
Aðal bankinn í New-York hefir
lækkað forvexti sína úr 2 prc. nið-
ur í 1£ prc.
Við skráningu atvinnulausra
manna í Rvik i byrjun maí, gáfu
65 menn sig fram, sem ekki höfðu
fasta atvinnu.
íþróttasambandi íslands hefir ver-
ið boðin þáttaka í íþróttamóti einu
miklu í London í sumar.
Vertíðinni er nú lokið í Vest-
mannaeyjum. Alls varð þorskaflinn