Siglfirðingur - 13.05.1931, Page 3
SIGLFIRÐINGUR
3
Hænsnaeigendur
í Siglufjarðarkaupstnð aðvarast hjer-
með um að hat’n girt af hænsni sín
fyrir þann 25. þ. m. að viðlagðri
lagarefsingu.
Siglufirði 13. maí 1931.
BÆJARFÓGETINN.
þar 38 þúsund skippund. Hæstur
varð báturinn „Lagarfoss" sem
fjekk 105 þús. fiska, alt á línu.
Hæsti trillubáturinn fjekk 19 þús.
fiska.
í Hafnarfirði var jafnað niður
234 þúsund krónum. Hæðsta út-
svar hefir Einar Rorgilsson. 22 þús.
krónur.
Frambjóðendur í Eyjafjarðarsýslu
eru 8. Frá Sjálfstæðismönnum Ein-
ar Jónasson á Laugalandi í Glæsi-
bæjarhreppi og Garðar Porsteinsson
hæstarj.lögmaður í Rvík. Frá Fram-
sókn þeir sömu og áður. Frá Jafn-
aðarm. Guðm. Skarphjeðinsson og
Halldór Friðjónsson. Frá Kommún-
istum Elísabet Eiríksdóttir og Stein-
grímur Aðalsteinsson.
Frá Spáni berast þær fregnir, að
þar sje alt logandi í óeirðum. Eru
það aðallega konungssinnar sem
mikið láta til sín taka nú fyrir
kosningarnar. Lýðveldisstjórnin hef-
ir orðið að lýsa hernaðarástandi í
Madrid og fleiri borgum og hefir
fyrirskipað að handtaka alla ráðherra
fyrverandi einræðisstjórnar. Eldur
hefir verið borinn í mörg klaustur
og kirkjur og sumar brunnið alveg
en nokkrum hefir tekist að bjarga.
Nánari fregnir hafa nú borist frá
Grænlenska leiðangrinum. Hafa
3 menn fundist vel á sig komnir,
En Wegener og 1 Grænlending
vantar ennþá. Er álitið að þeir
hafi farist,
Rað er ekki ein bára stök fyrir
hinni marghrjáðu óláns Framsókn.
Nú eru 2 menn af hennar flokki
í kjöri í N-Pingeyjarsýslu, þar sem
þó ekki á að kjósa nema einn
mann.
Nýja-Bió
sýnir i kvöld kl. 84- „Skotinn
með gullkúlu” spennandi og við-
burðarík mynd frá Alaska.
Axel Jóhatmssot}
hefir fengið nýjan vjelbát frá
Danmörku, 17 smálestir með 50
hk. Tuxhatnvjel. Hann kostaði
um 30 þús. kr.
m
m
m
m
%
*
m
%
m
m
*
m
m
m
m
«
N
m
Byggingarefni.
Sement, þakjárn, þakpappi, saumur, steypustyrktarjárn.
gólfdúkar, eldfæri, miðstöðvartæki, vatnsleiðslur. bað- og
hreinlætistæki, steinsteypu-hrærivjelar, Sika-þjettiefni o. fl.
Allir sem þurfa að nota byggingarefni ættu sjálfs sín
vegna að spyrjast fyrir um verð hjá oss áður en þeir
festa kaup annarstaðar.
J. Porláksson & Norðmann
Reykjavík, — Símnefni: Jónþorláks.
«
«
m
m
m
m
m
m
m
*
%
*
m
M
m
m
m
M
m
¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥¥
Kaupum alt árið með hæsta
gangverði þorskhausa, hryggi og
úrgangsfisk. Greiðsla við móttöku.
Síldarverksmiðja Dr. Paul.
Á S K O R U N.
Vegna fyrirsjáanlegs atvinnuleysis hjer í vor og sumar þá
er hjermeð skorað á alla atvinnurekendur í bænum að láta
siglfirskan verkalýð sitja fyrir allri vinnu og snúa sjer til
ráðningsskrifstofu hans um fólk ef þá vantar.
Siglufirði 9. maí 1931.
Stjórn Verkamannafjelags Sigluf jarðar.
Pegar raflögnin í íbúðarhúsinu, þarf viðgerðar, þá leitið til-
boða hjá okkur, þess mun yður ekki yðra.
pr. Raftækjaversl. Siglufjarðar.
J. Magnússon Sími 129.
Bifreiðarumferð er alveg bönnuð þangað til öðru vísi verð-
ur ákveðið um Hvanneyrarbraut á móts við Villu B. Weste-
sens og norður eftir. Bann þetta er ákveðið samkv. tillögum
veganefndar og sá, er brýtur bannið verður látinn sæta sektum
altað 1000 kr. og gera við skemdir þær, er hin ólöglega um-
ferð hefir valdið.
Skrifstofu Siglufjarðar 12. maí 1931 •
G. Hannesson.
Siglufjarðarprentsmiðja.