Siglfirðingur - 12.06.1931, Page 3
SIGLFIRÐINGUR
3
Kosningaskrifstofa Sjálfstœðismanna
í Brúarfoss, er opin í allan dag
„Alfrýðubókiti“
er trúarbók Framsóknar og hefir
æskulýður flokksins verið ámintur
um að kynna sjer sem best til ef(-
írbreytni kenningar höfundar. —
Höfundur bókarinnar er hinn al-
kunni Kommúnisti, Halldór Kiljan
Laxness. Vegna þess að Framsókn
mælir mjög með bók þessari íTím-
anum, og hvetur æskulýð sinn til
að lesa hana sjer til lærdóms og
sáluhjálpar, þykir rjett að tilfæra
hjer lítinn kafla úr bókinni, en hann
er um ástir manns og konu:
„ — Konur hinnar betri borgara-
stjettar kunna ekki neitt, geta ekki
neitt, vilja ekki neitt, vita ekki neitt,
hugsa ekki neitt, — í einu orði
sagt: eru ekki nema kynferðisáhöld,
gripir, sem ræktaðir eru til þess að
svala frygð samviskulausra bílifis-
manna af rániðjustjett." — „Má af
þessu sjá, að fullkomin frú hinnar
betri borgarastjettar er hin hrein-
ræktaðasta skækjutegund, sem tekist
hefir að framleiða á jörðu hjer“.
Petta eru kenningar Kommúnista
um hjónabandið. Og Framsókn
leggur blessun sina yfir ummælin,
hvetur æskulýðinn til að lifa eftir
þeim og setur höfundinn á föst
laun.
Vilja kjósendur styðja þennan ó-
sóma með atkvæði sínu?
F r j e 11 i r.
Frá Pýskalandi er símað að rík-
isstjórnin hafi gefið út viðaukafjár-
lög að upphæð 1800 milj. marka
og sent um leið út ávarp til þjóð-
arinnar um hinn erfiða fjárhag rík-
isins. — Tveir af ráðherrunum fóru
til Englands núna í vikunni og sátu
á ráðstefnu með ráðherrum Englands.
Ekki er kunnugt um hvað þeim
hefir farið á milli.
Mesti landskjálfti sem dæmi eru
til kom á mánudagsmorgunin á
Stóra-Bretlandi. Varð hans og vart
um allan norðurhluta Frakklands
í Belgíu og Noregi. Engar alvar-
legar skemdir urðu en mikill ótti
greyp fólkið.
27. maí hófst alþjóðaráðstefna út-
varpsmanna í Kaupmannahöfn. 25
Kaupum hæsta verði, þurra
o£ blauta þorskhausa og hryggi,
alt árið.
Sören Goos.
Kaupum alt árið með hæsta
gangverði þorskhausa, hryggi og
úrgangsfisk. Greiðsla við móttöku.
Síldarverksmiðja Dr. Paul.
H Ú S I Ð Lækjargata 13
er til sölu.
höluðmál liggja fyrir ráðstefnu þess-
ari auk margra smámála.
Ritstjóri Tímans hefir veriðdæmd-
ur í 150 kr. sekt fyrir ummæli sín
í blaðinu um Flygeringsmálið, og
ummælirr dæmd dauð og ómerk.
Ægir tók enskan togara nálægt
Vestmannaeyjum 9. þ. m. og fór
með hann til Eyja. En hann var
sýknaður af ákærum varðskipsins
vegna ónógra sannana.
Siglufjarðarprentsmiðja.
Ódýrastar
Milliskyrtur 3,75
Sokkar 0,75
Treflar 3,50
Peysur hrúnar 8,50
Alpahúfur 1,00
Vasaklútar 0,30
FATABÚÐINNI.
SKIPAVERSLUN
Siglufjarðar
Tenfjords-línuspil
Bahco-mótorlampar — skrúf-
lyklar rörtengur o. fl.
Alafoss ullarteppi, doppur og
/
buxur. Islenskur olíufatnaður.
Mjög ódýr nærfatnaður. Vinnu-
föt, sokkar og vetlingar.
Skipaverslun Siglufjarðar.
Stofa til leigu.
R. v. á.
Jarðarför
Janobínu Jensdóttur, fer fram á
morgun.