Siglfirðingur - 20.06.1931, Blaðsíða 2
2
SIGLFIRÐINGUR
Aðalfundur
íshúsfjelags Siglufjarðar h.f.
verður haldinn í. Kvennfje'l'agshús-
inu kl. 8 siðd. laugardaginn ll.júlí
1931.
1. Lagðir fram endurskoðaðir reikn-
ingar fjelagsins fyrir siðastliðið
ár til samþyktar.
2. Gerð grein fyrir starfsemi fjel.
síðastliðið ár.
3. Skifting ársarðsins.
4. Kosin stjórn og endurskoðendur
til næsta árs.
5. Onnur mál sem upp kunna að
verða borin.
S t j ö r n i n.
ísleifur Högnason, 220
Hallgrímur Jónassou, 34
Rangárvallasýsla:
Jón Olafsson, bankastj. 761
Sveinbjörti Högnason, 603
Skúli Thorarensen, 581
Páll Zophaniasson 557
Gunnar Sigurðsson, 237
Arnessýsla:
Jprundur Brynjólfsson, 974
Magmís Torfason, 904
Eiríkur Einarsson, 642
Ludvig Norðdal, 546
Einar Magnússon, 211
Felix Guðmundsson, 137
Eru þá komnar fregnir úr 26
kjördæmum með 34 þingmönnum.
Eftir er þá aðeíns Eyjafjarðarkjör-
dæmi, en þaðan eru úrslit væntan-
leg í kvöld.
I þessum 26 kjördæmum hafa
verið greidd 37475 gild atkv. og skift-
ast þau þannig á milli flokkanna:
Sjálfstæðisflokkurinn 1680)
Framsóknarflokkurinn 12718
Alþýðuflokkurinn 5952
Kommúnistaflokkurinn 1026
Utanflokka 879
En þingmennirnir, sem þessir
kjósendur hafa fengið, skiftast
þannig:
Sjálfstæðismenn 12
Framsóknarmenn 19
Alþýðuflokksmenn 3
Pað sem fyrstvekur undrun manna
við þessi kosninga úrslít, er það, að
sá flokkurinn, sem flesta helir kjós-
endurna, skuli ekki einnig hafa
flesta þingmenn, jafn sjálfsagt eins
og það þó virðist vera í iandi, þar
sam lýðræði er viðurkent. — En
það vantar mikið til að svo sje.
Ef kjósendur landsins hefðu jafn-
an rjett til þess að ráða um val
þingmanna sinna, sem þeir auðvit*
að ættu að hafa ef lýðræðið væri
nokkuð annað en nafnið tómt, þá
kæmi 1 þingm. á hverj 1102
kjósendur, sem greitt hafa atkvæði.
Með satna mælikvarða hefðu þing-
mennirnir skifst þannig milli flokk'
anna:
Sjálfstæðismenn 15
Framsóknarmenn llf
Alþýðuflokksmenn 5-i-
Kommúnistar 1
Utanflokka 1
Af þessu er það ljóst, að hjer er
um hin herfilegustu rangindi að
ræða. Hjer er als ekki neitt lýðræði,
heldur hreinasta stjettavald.
Petta kemur enn betur í Ijós þeg-
ar það er athugað, hve margir kjós-
endur nú standa að baki hverjum
þingmanni í hverjum flokki. En það
er eins og hjer segir:
1 Framsóknarfiokknum 669
í Sjálfstæðisflokknum 1400
í Alþýðuflokknum 1983
Hjer er því um svo mikil rang-
indi að ræða gagnvart þeim kjós-
endum, sem teljast til Sjálfstæðis-
flokksins og Alþýðuflokksins, að ó-
hugsanlegt er að þjóðin geti þolað
það til lengdar.
Pví hefir verið haldið fram af
Framsóknarmönnum, sem halda
vilja i þessi ranglátu rjettindi sín,
að íhaldsflokkurinn hefði getað breitt
kjördæmaskipuninni meðan hann
var í þingmeirihl. fyrir kosningarnar
1927. En því er til þess að svara,
að fram til 1927 var hinn mesti glund
roði á allri flokkaskipun, og komu
þvi aldrei fram svo hreinar línur
viðkosningar, að ranglætis kjördæma
skipunarinnar yrði verulega vart,
nema þá helst í garð Jafnaðar-
manna.
Misrjetti það, sem kjördæmaskip-
unin orsakar, hefir komið æ
betur og betur i ljós, eftir því sem
línurnar hafa orðið hreinni milli
flokkanna, og eykst með hverju
ári, vegna tilfærslu kjósendanna
sjálfra úr einu kjördæmi í annað.
Pegar maður athugar kjósenda-
fjölda hinna ýmsu kjördæma, og af-
stöðu þeirra til að koma manni á
þing, þá rekur maður sig á svo
hróplegt misrjetti, að mann furðar
á því að slíkt skuli geta átt sjer
stað. Verða hjer tilfærð nokkur
dæmi:
Á Seyðisfirði fá 274 Alþýðuflokks-
menn þingmann, en í Hafnarfirði
fá 679 Alþýðuflokksmenn engan
þirigmann, og í Rvík fál234Fram-
LÖTAK
fer fram að 8 dögum liðnum
á gjaldkræfum hluta útsvar-
anna til Siglufjarðarkaupstaðar
1931,þinggjöldum 1931, ógoldn-
um rafljósagjöldum og vatns-
skatti, og öðrum gjaldkræfum
bæjargjöldum.
Skrifstofu Siglufjarðarkaupstaðar 16. júní 1931
G. Hannesson.
Allt það fólk,
konur sem karlar, sem búsett
er hér á Siglufirði og hefir
hugsað sér að fá atvinnu hjá
mér í sumar, finni mig á skrif-
stofu minni næstu daga.
Halldór Guðmundss.
sóknarmenn engan þíngmann. — í
V-Húnavatnssýslu fá 345 Framsókn-
atmenn þingmann en 546 Sjálf-
stæðismenn í Árnessýslu fá engan
þingmann. — í N-Múlasýslu fá
619 Framsóknarmenn TVO þm.
en 675 Sjálfstæðismenn í næstu
sýslu fá engan. — 1 Rvík fá
1860 Sjálfstæðismenn ekki nema
1 þingm. en 1939 Framsóknarmenn
i V-Húnavatns- V- Skaftafells- N-
Múla- og Dalasýslu fá FIMM þing-
menn. Og svona mætti lengi telja.
Hjer er því alvarlegt umhugsun-
arefni fyrir alla þá, sem unna vilja
jafnrjetti þegnanna. Sjálfstæðisflokk-
urinn er sá eini flokkur, sem vill
að hinar ýmsu stjettir þjóðfjelags-
ins, hafi jafna aðstöðu til þátttöku í
hinni pólitísku starfsemi. Hinir
flokkarnir allir eru stjettaflokkar,
sem una því vel, að þeirra stjett
hafi betri aðstöðu og gangi þannig
á rjett annara stjetta. Framsókn
er stjettaflokkur og heldur þess-
vegna dauðahaldi í tvöfaldan rjett
fámennra sýslna á þessu sviði, á
móts við þau hjeruð, sem fleiri hafa
kjósendur.
En slíkt misrjetti mun íslenska
þjóðin ekki þola mjög lengi, eftir
að henni er orðið það fyllilega ljóst.
íslendingar eru yfirleitt seinir að
átta sig, en þeim mun ákveðnari
þegar til kastanna kemur. Peir
munu ekki búa mörg ár við þann
mismun á rjetti einstaklinganna sem