Siglfirðingur - 27.06.1931, Side 1
Alþingiskosningarnar
Fullnaðarúrslit.
25508 kjósendur fá 15 þin£-
menn en 13,843 kjósendur fá
21 þingmann.
í síðasta tölublaði var skýrt frá
úrslitum kosninganna nema í Eyja-
fjarðarkjördæmi. Par fjeliu kosn-
ingar þannig:
Bernharð Stefánsson 1309
Einar Arnason 1297
Garðar Porsteinsson 552
Einar Jónasson 529
Guðm. Skarphjeðinsson 307
Halldór Friðjónsson 202
Elísabet Eiriksdóttir 141
Steingr. Aðalsteinsson 129.
Samtals hafa þá verið greidd 39.
351 gild atkvæði á öllu landinu
en 32,000 við kosningarnar 1927.
Kjósendurnir og þingmennirnir skifr-
ast þannig á milli tlokkanna:
Kjósendur
Sjálfstæðisflokkurinn 17,162^
Framsóknarfl. 13,843
Alþýðuflokkurinn 6,206$
Kommúnistafl. 1,161
Utanflokka 978
39,351
f’ingm.
12
21
3
36
Til jafnaðar hafa þá flokkyrnir
þurft hver um sig eftirgr. kjósenda-
tölu tii þess að koma að þingm:
Framsóknarflokkurinn 660
Sjálfstæðisflokkurinn 1430
Alþýðuflokkurinn 2070
En þegar tölu þeirra kjósenda,
sem greitt hafa gild atkvæði, er skift
á milli þingmannanna, þá koma
1093 kjósendur á hvern þingmann.
Með núverandi kjördæmaskipun fær
Framsókn þau ranglátu hlunnindi, að
þurfa ekki nema 660 kjósendur á
hvern þingmann, eða 433 fyrir neð-
an meðaltal. Sjálfslæðisflokkurinn
verður aftur á móti fyrir þvi rang-
læti, að þurfa 1430 kjósendur á
hvern þingmann, eða 337 umfram
meðaltal og 770 umfram Framsókn.
En Alþýðufl. verður þó verst úti.
Hann þarf 2070 kjósendur á hvern
Leikfjelag Reykjavíkur
sýnir sjónleikinn
„HALLSTEINN OG DÓRA“
eftir EINAR H. KVARAN
á Akureyri
miðvikudag, fimtudag, laugardag og sunnudag 1. 2. 4. og 5. júlí.
Aðgöngumiðar á 2 og 3 kr. fást í samkomuhúsinu alla sýningardagana
eftir kl. 1. Pantanir í síma 73.
þingmann, eða 977 umfram meðal-
tal og er það meira en 3 atkvæði
á móti hverju einu hjá Framsókn.
Parna sjá'menn núverandi kjör-
dæmaskipun í rjettu ljósi. Parna
er fengin sönnun fyrir því, hvers-
vegna Framsókn ekki vill breyta
kjördæmaskipuninni. Hún vill við-
halda rangindunum af því hún hagn-
ast sjálf á þeim.
Ef kjósendur allra flokka hef3u
fengið að njóta jafnrjettis við kosn-
ingarnar, þá hefðu flokkurnir fengið
) þingm. fyrir hverja 1093 kjósend-
ur, sem greitt hafa gild atkvæði.
Og þá hefðu þingmennirnir skifst
þannig:
Sjálfstæðismenn hefðu fengið 15£
Framsókn — — 12£
Alþýðumenn — — 6
Kommúnistar og utanfl. — 2
Framsókn héfir þannig fengið 8|-.
þingmann umfram það sem kjós-
endur þess flokks hafa rjett tíl. En
Sjálfstæðisflokkinn vantar 3|- þing-
mann, Alþýðuflokkinn 3 og Komm-
únistar og Utanfl. vantar 2.
Um þessa ranglátu kjördæma-
skiftingu hefir nokkuð verið skrifað
að undanförnu, og ýmsar tillögur
komið fram. En þegar Framsókn*
var með frumv. um afnám lands-
kjörsins í þinginu í vetur, fluttu
Sjálfstæðismenn tillögu um heimild
til að kjósa þingmenn með hlut-
fallskosningu. — Ef hlutfallskosning
hefði nú verið viðhöfð í öllum tví-
menningskjördæmunum, þá hefði
Sjálfstæðisflokkurinn fengið annan
manninn í báðum Múlasýslunum
og sennilega annan í Árnessýslu,
eða als 15 þingmenn en Framsókn
Ódýrastar
Prjónasilkikjólar.
Ui C3 Golftreyjur silki
C/3 'OX) Vinnusloppar < O:
Buxur stakar 7 kr. c
E Með Goðafoss kemur
alsk. Barnafatatau.
FATABÚÐINNI.
18. VTar það nokkur rjettarbót frá
því ' sem nú er, en þó hvergi nærri
fullnægjandi.
Tiliögur hafa heyrst um það, að
landið alt ætti að vera eitt kjör-
dæmi, ogkosningin hlutfallskosning.
Færu þá kosningar fram alveg á
sama hátt og landskjörið nú, nema
þá yrðu kosnir 36 menn í einu í
stað 3 við landskjörið. — Ef kosið
hefði verið á þennan hátt nú, þá
hefðu allir flokkar haft jafna að-
stöðu til þess að koma mönnum á
þing, í rjettu hlutfalli við kjósenda-
fylgi. Og þá hefðu Sjálfstæðismenn
fengið 16 þingm. Framsókn 13,
Alþýðufl. 6 og Kommúnistar 1.
Af greiddum atkvæðum hefir
Sjálfstæðisflokkurinn fengið ca. 45
prc., Framsókn 36 prc., Alþýðufl.
16 prc. og Komrnúnistar 3 prc.
Sjest af þessu hve frálei'tt það er,
að Framsókn haft unnið kosning-
arnar og hafi rjett til að halda á-
fram að stjórna landinu.
9
%