Siglfirðingur - 08.08.1931, Síða 1
N
A1 þingi.
Störf þingsins ganga'fremur hægt
ennþá, „þumlungast áfram sinn
vana gang“. Nokkuð hefir það þó
flýtt fyrir, að fjárveitinganefnd Nd.
var miklu fljótari að athuga fjárlaga-
frumv. heldur en venjulega, vegna
þess að það var svo að segja sam-
hljóða þvi frumv. sem var fyrir þing-
inu í vetur. Hefir 3. umræða fjárl.
í Nd. staðið yfir meirihluta þessar-
ar viku, og lauk henni í fyrri nótt.
Um 130 brt.tl. höfðu komið fram
við þessa umræðu. Samþyktar voru
allar till. fjárv.n. um hækkun á tekj-
unum, samtals 860 þús. kr. Pá var
samþ. till. sömu nefndar um 90
þús. kr. hækkun á áætlaðri vaxta-
greiðslu. Styrkur til Eimskip var
hækkaður úr 85 þús. kr. uppí 150
þús. kr. með því skilyrði, að ríkis-
stjórnin hafi rjett til að athuga rekst-
ur þess etc., og er þessi viðbótar-
klausa frá Tr. P., nú fjármálaráðh.
Pá var og samþ. að ábyrgjast lán
til Síldareinkasölunnar.
Eins og fjárlögin liggja nú fyrir, eru
tekjurnar kr. 11,266,348 en gjöldin
kr. 10,455,577. En þegar frá eru
dregnar fyrningar etc., verður sjóðs-
afgangur kr. 20,568. Pannig voru
fjárlögin afgr. til Ed. með öllum
atkv. gegn 5. Pessir voru á móti:
Haraldur, Hjeðinn, Jóh. Jósefsson,
Magnús Jónsson og Vilmundur.
Við umræður fjárlaganna hefir
það vakið einna mesta athygli, að
fjárveitinganefnd hafði borist um það
upplýsingar frá stjórninni, að hin
„jtarlega^ og glögga" yfirlitsskýrsla
Einars Arnasonar á þinginu í vetur,
hefði ekki reynst rjett. Hann gerði
þar ráð fyrir rúml. 80 þús kr. tekju-
afgangi, en varð um ein milj. kr.
halli auk þeirra 5—6 miljóna, sem
greidd voru með lánum.
Pað verður ekki um það deilt, að
þessi raunalega útkoma hjá hinum
raunalega ráðherra er að mestu fyr-
ir alskonar misnotkun á ríkisfjenu,
sem þingið hefir enga heimild veitt
til. Pessvegna fluttu Sjálfstæðismenn
fjárv.n. Magnús Jónsson og Pjetur
Ottesen, svohljóðandi brt.tillögu:
„Aftan við 24. gr. fjárl. komi ný
grein er hljóði svo: Allar gjalda-
heimildir laga þessara eru hámarks
ákvæði, og er óheimilt, nema um
óvænta og bersýnilega nauðsyn sje
að ræða, að fara fram úr þeim,
nema greiðslan fari fram samkv.
öðrum heimildum eða fram sje tek-
ið, að fjárveitingin sje áætluð“. En
þessa tillögu, eins sjálfsögð og hún
virðist vera, steindrap Framsókn við
2. umræðu fjárlaganna. Aftur á móti
var samþ. við 3. umræðu svohljóð-
andi ákvæði frá Tr. P: „Ef horfur eru
á því, að tekjur ríkissjóðs verði lægri
en áætlað er, veitist ríkisstjórninni
heimild til að draga úr þeim greiðsl-
um, sem ekki eru lögum eða samn-
ingum bundnar, alt að 20 prc.“ Er
bersýnilegt, að stjórnin er með til-
lögu þessari að skapá sjer einskon-
ar útgöngudyr til þess að geta ráð-
ið ríkissjóðnum að eigin vild eins
hjereftir sem hingað til. Enlangter
nú gengið í því, að traðka lögum og
venjum, ef þingið má ekki lengur
ráða því, hvernig tekjum ríkisinser
varið.
Við þessa umræðu upplýsti M.
Guðm., að stjórnin hefði á þessu
ári orið að taka \ miljón kr. lán
til þess að standast útgjöld frá degi
til dags. — Sami þm. upplýsti, að
fyrstu 6 mánuði ársins hefði útgjöld
ríkissjóðs orðið rúmlega 6 miljónir
kr., en tekjur á sanxa tíma 4\ milj.
kr. En ef reikningar síðasta árs væru
rjettir, þá hefði átt að vera um 4,-J
milj. kr. í sjóði, og hefði þá stjórn-
in átt að hafa rúmlega 9 miljónir
kr. handbærar til þess að standast
6 milj. kr. útgjöld án þess að taka
lán. Eitthvað væri nú bogið við
þessa sjóðsreikninga, úr því stjórn-
in þyrfti að taka lán þegarnógætli
að vera í sjóði.
Ein lög hafa verið afgreidd. Eru
þau um heimild kauptúna og sveita
til að setja hjá sjer lögreglusam-
þyktir.
BALL! BALL!
Kvenfjelagshúsið fæst leigt fyr-
ir Böll og fundarhöld.
Veitingur ú stoðnum.
Upplýsingar í síma 85.
A ð v ö run.
Skuldir frá uppboði mínu
frá 24. febrúar verða teknar
lögtaki að 8 dögúm liðnum.
Porst. Pjetursson.
N.d. hefir afgreitt til E.d. frumv.
um Ríkisveðbanka Islands, um
stækkun lögsagnarumd. Rvíkur, um
innfl. á sauðfje til sláturfjárbóta, um
heimild til að ákveða mánaðaraf-
borgun útsvara.
Pá hefir E.d. afgreitt til Neðrid.
till. um ábyrgð á Rússavíxlum og
um Iækkun á síldartolli úr kr. 1,50
niður í 1,00 af tn.
Miklar umræður urðu um hina
merku þingsál.tillögu Jóns Porláks-
sonar, um Grænland. Var málinu
vísað til utanríkismálanefndar þings-
ins og umræðum frestað. Forsætis-
ráðherra og forseti sam. þings lof-
uðu því báðir, að tillögunni skyldi
ekki verða stungið uncjir stól.
Pa er. komið nefndarálit um til-
lögu stjórnarinnar um milliþinga-
nefnd til þess að athuga skipun Al-
þingis og kjördæmaskipunina. Legg-
ur nefndin til að hún verði samþ.,
þó þannig, að milliþinganefndin
verði skipuð, en ekki kosin afAl-
þingi, og skal 1 skipaður eftir till.
Alþýðusambandsins, 2 eftir tillögu
miðstj. Framsóknar og 2 eftir tiH.
miðstj. Sjálfstæðisflokksins. Með
þessu móti má gera ráð fyrir að
eitthvert gagn kunni að verða af
starfi nefndarinnar, en eins og nefnd-
in fyrst átt að vera til orðin, var
víst lítil von til slíks.
J