Siglfirðingur


Siglfirðingur - 22.08.1931, Síða 1

Siglfirðingur - 22.08.1931, Síða 1
/ N ý s t j ó r n. Kl, 1 í gær var í báðum þing- deildum tilkynt opinberlega að nú væri ný ríkisstjórn tekin við völd- um: Tryggvi Pórhallsson forsætis- og atvinnumálaráðherra Jónas Jóns- spn dóm- og kirkjumálaráðherra og Asgeir Ásgeirsson fjármálaráðherra. Jón Porláksson lýsti því yfir, að Sjálfstæðisflokkurinn liti svo á, að þessi stjórn væri minnihlutastjórn, starfandi aðeins til bráðabyrgða. Jón Baldvinsson lýsti andstöðu síns flokks við stjórnina. Nokkrar fleiri umræður urðu um þetta í báðum deildum, og fjekk stjórnin áreiðanlega kaldari viðtök- ur, en nokkur ný stjórn hefir áður fengið. Kjördæmamálið Sjáltstæðismenn verða að no'ca þvingunarráðstafanir til þess að stjórnarskrár- nefnd efri deildar haldi fund. Strax í þingbyrjun var kosin stjórnarskrárnefnd í efri deild. Eiga sæti í henni 3 FramsóknarmÆnn og 2 Sjálfstæðismenn. Nefnd þessi fjekk snemma í þinginu 2 mál til meðferðar: Stjórnarskrárbreytingu Sjálfstæðismannna og þingsályktun- artillögu Tryggva Fórhallssonar, um skipun milliþinganefndar í kjör- dæmamálinu. Búast hefði mátt við því, að nefnd sem skipuð er Framsóknarmönnum að meirihluta, hefði ekki látið undir höfuð leggjast að athuga tillögu frá sjálfum forsætisráðherranum. En svo liðu dagar og vikur, að nefnd- in hjelt engan fund. Fór þá Sjálf- stæðismönnum að skiljast það, að með tillögu Tr. P. hefði aidrei ver- ið meint neitt annað en það, að hampa því framan í kjósendur, að h a n n hefði borið slíka tillögu íram. Pað var með hverjum deginum sem leið ljósara og ijósara, að nefndin ætlaði hvorugt málið að athuga eða afgreiða. Pá var það að Sjálfstæðismenn tóku til sinna ráða. Hjeldu þeir verðtollsfrumvarpinu föstu við 3ju umræðu í efrid. og hótuðu að fella það, eí stjórnarskrárnefndin tæki ekki til starfa og gengi inná rjett- látar breytingar á tillögu forsætis- ráðherrans. Stjórnin hafði eins og kunnugt er, lagt það til að Framsókn legði til 4 af 5 mönnum í milíiþinga- nefndina. Petta vissu Sjálfstæðis- menn að var nákvæmlega það sama eins og því væri slegið föstu fyrir- fram, að nefndin skyldi verða gagns- laus. Auðvitað hefði Framsókn aldrei flutt rjettlátar tiilögur í kjör- dæmamálinu. Og stjórnin, sem undir engum kringumstæðum þóttist geta komist af fyrir utan verðtollinn, gekk inná að stjórnarskrárnefndin tæki til starfa, og Framsóknin í nefndinni gekk inn á gagngerða breytingu á þingsályktunartillögu forsætisráð- herrans. Tillögur nefndarinnar ganga út á það, að miHiþinganefndin verði skipuð 1. Alþýðuflokksm. 2 Sjálf- stæðismönnum og 2 Framsóknar- mönnum, Má því gera ráð fyrír, ef nokkur hugur fylgir máli hjá Alþýðuflokknum um rjettlátt fyrir- komuiag á kjördæmaskiftingunní, að nefndin muni fyrir næsta þing skila róttækum og rjettlátum breyt- ingartillögum í þessu mikla mann- rjettindarmáli. Pessi tilhögun á milliþinganefnd- inni hefir nú farið gegnum báðar deildir þingsins, og verið afgreidd til stjórnarínnar sem ályktun Al- þingis. Er þess að vænta að stjórn- in láti ekki lengi dragasta að skipa nefndina, svo henni geti unníst tími til þess að ljúka störfum fyrir næsta þing. í þessu sambandi má geta þess, að ef Jón Baldvinsson ekki hetði skorist úr leik og svikið bæói flokk sinn og þjóöina alia í kjördæma- Norskt ftskiskip nýtt, 28 smál., 55x15x7, 40 hk. Viktman vjel, 8 mílna hraði, raf- lýstur, alt fyrsta flokks, er til sölu. Verð 25,000 Nkr. HANS O. SÆVIK Leinöy pr. Aalesund. Lióma-Smiörliki Ljóma-Jurtafeiti er það besta sem framleitt er nú hjer á landi. Fæst í flestum stærri verslun- um bæjarins. — Umboðsmaður fyrir Siglufjörð: Páll S. Dalraar. BALL! BALL! Kvenfjelagshúsið fæst leigt fyr- ir böxi og fundarhöld. Veitingar á staðnum. Upplýsingar í síma 85. Bryggj uljósaperur ÁSGEIR BJARNASON. H e r b e r g i til leigu frá 1. oki. til 14. maí ódýr leiga. R. v. á. Rafljósaperur fást hjá Guóbirni. málinu, þá hefðu Sjálfstæðismenn getað knúð fram stjórnarskrárbreyt- ingu sína. En þegar það ekki fjekkst, var sú leið farin, sem lýst hefir verið hjer að framan. Hafa Sjálfstæðismenn hjer sem oftar bjargað góðu máli í höfn með fyrirhyggju sinni og rjettlæti.

x

Siglfirðingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.