Siglfirðingur


Siglfirðingur - 29.08.1931, Qupperneq 1

Siglfirðingur - 29.08.1931, Qupperneq 1
o IV. árg. Siglufirði, Laugardaginn 29. ágúst 1931 40. tbl. Hjermeð færum við okkar hjartans þakklæti öllum þeim nær og fjær, sem sýndu okkur hluttekning, í veikindum og við dauða oklcar elskulegu eiginkoná og móður, Bjargar Sigríðar Sæby. Siglufirði, Ránargata 13, 29. ágúst 3931. Eiginmaður og börn. P i n g 1 o k i n. Fertugasta og fjórða löggjafarþing ísl. þjóðarinnar lauk störfum síðari hluta dags, mánudaginn 24. þ. m. Hafði þingið þá staðið tæparóvik- ur, eða rjettan 41 dag. Er þetta nokkru styttri tími en gengið hefir til undanfarinna þinga, enda þingið aukaþing, og, ef satt skal segja, eitt- hvert gagnslausasta þingið sem háð hefir verið. Ekki verða hjer rakin störf þess, en vera má að blaðið, við tækifæri, flytji ágrip afþeim lögum, sem þing- ið afgreiddi, til þess að gera al- menningi auðveldara að fylgjast þar með. Mjög þóttu störf þingsins ganga hægt allan þingtímann, einkum þó framanaf. Síðasti þingdagurinn var þó undanlekning hjer frá, því þá voru haldnir 6 þingfundir, 2 í efri- deild, 3 í neðrid. og 1 í sam. þingi til þess að afgreiða með afbrigðum frá fundarsköpum nokkur !ög, sem Framsókn ekki vildi aðdöguðu uppi. Als voru haldnir 41 fundur í n.d. 42 í e.d. og 7 í samein. þingi. Á síðasta fundi í sam. þingi fóru fram kosningar ýmsra starfsmanna: Gæslustjóri Söfnunarsjóðs til loka 1935 var kosinn Bjarni Ásgeirsson alþ.m. I verðlaunanefnd gjafar Jóns Sigurðssonar: Hannes Porsteinsson, Ólafur Lárusson og Barði Guð- mundsson. Mentamálaráð íslands: Ragnar Ásgeirsson, Barði Guð- mundsson, lng:bj. H. Bjarnason, Árni Pálsson og Stefán Jóh. Ste- fánsson. í útflutningsnefnd Síldar- einkasölunnar voru kosnir með hlut- fallskosningu: Einar Árnason bóndi á Eyrarlandi, Björn Líndal lögfr. Svalbarði og Böðvar Bjarkan lögfr. Akureyri. Varamenn nefndarinnar eru í sömu röð: Ingimar Eydal, Stefán Jónasson og Porm. Eyólfs- son. Yfirskoðunarmenn landsreikn- inganna voru kosnir: Hannes Jóns- son, Pjetur Pórðarson og Magnús Guðmundsson. P'orseti sam. þings, í stað Ásg. Ásgeirssonar, var kosinn Einar Árnason, Eyrarlandi. Fjárlögin fyrir 1932 voru afgreidd með tæplega 60 þús. kr. tekjuhalla. Merk bók. I haust er væntanleg á bókamark- aðinn ný bók eftir Bjarna prófessor Porsteinsson, prest í Siglufirði, sem heitir: Pjóðlegt sönglif d Islandi að fornu og nýju. Bók þessi er heldur lítil, tæpar 100 blaðsíður. Hún er samin við alþýðuhæfi, þótt visindarit sje, og verður seld við vægu verði. Hjer er því um sjerstaklega hentugt tæki- færi að ræða fyrir alla þá, sem þjóð- legum fræðum unna — og, þá sjer staklega á sviði sönglistarinnar — til þess að afla sjer mikilsog marg- brotins fróðleiks fyrir mjög lítið verð. - Pað má því gera ráð fyrir að bókin seljist upp á skömmum tíma. Pað skal þó tekið fram, að höfund- urinn hefir áður gefið út bók um þetta sama efni, sem heitir „Islenzk þjóðlög" og kom hún út fyrir 25 árum. En bæði er sú bók 25 árum eldri en þessi, og svo er hún það stór og dýr, að hún hefir eVki og verður ekki almennt keyft og lesin af alþýðu manna. En þessari bók, sem nú er að koma út, er ætlað bæta úr þessu. 1 inngangi bókarinnar kemst höf. svo að orði: „Prir verða aðalkaflar rits þessa. Hinn fyrsti er um sönglíf og söng- kennslu á Islandi frá elztu tímum og fram um árið 1900. Annar kafl- Norskt fiskiskip nýtt, 28 smál., 55x15x7, 40 hk. Viktman vjel, 8 mílna hraði, raf- lýst, alt fyrsta flokks, er til sölu. Verð 25,000 Nkr. HANS O. SÆVIK Leinöy pr. Aalesund. inn er um íslenzk þjóðlög yfirleitt, eðli þeirra og einkenni, svo og um hinar sjerstöku tegundir þeirra, svo sem hinn íslenzka tvísöng, gömlu sálmalögin, rímnalögin o. fl. Priðji kaflinn er um hin íslenzku hljóð- færi, fiðluna og langspilið. Að miklu leyti má rit þetta heita frumsamið nú; en að nokkru leyti er það útdráttur úr safni mínu, „íslenzk Pjóðlög", sem gefið var út í Kaupmannahöfn 1906—1909. Pað rit er stórt og umfangsmikið, nærfellt 1000 bls. að stærð og vann jeg 25 ár að söfnun til þess og samningu. Mjer er það hið mesta áhugamál og hefur lengi verið, að þekking manna mætti aukast, bæði utan lands og innan, á íslenzkum þjóðlögum, hve gömul þau eru og góð, hve einkennileg þau eru og rammíslenzk bæði að efni ogformi, og hvílíkan fjársjóð vjer oigum á þessu sviði, ekki síður en á öðrum sviðum þjóðfræða, jafnvel frekar, og því hef jeg samið þessa bók, er hjer liggur fyrir, minni og handhægri en hina, ef ske mætti að bók þessi fengi fleiri kaupendur og fleiri lesendur en hin, og gæti þannig að nokkru rofið þokuna og þögnina, sem enn ríkir um of kring um þetta hugtak: íslenzk Ijóðlög". Önnur blöð eru vinsamlega beð- in að birta grein þessa.

x

Siglfirðingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.