Siglfirðingur - 26.09.1931, Blaðsíða 1
o
Ú T S A L A .
Allar vörur verslunarinnar verða seldar með 15 — 30 prc.
afslætti aðeins næstu viku.
Notið þetta ágæta tækifæri.
VersL BERLÍN.
Atvinnubæturnar.
Omakleg og ósönn ummæli
„Verkamannsins“.
Alt frá því að verklýðsfjelögin
í lanuinu klofnuðu í fyrra, hafa
• Kommúnistar unnið dyggilega að
því að sá sundrung og tortryggni
meða! íslenskrar alþýðu. Eru þá ó-
spart notuð slagorð og æsandi frá-
sagnir til þess að reyna að vekja
hjá sem allra destum óánægiu með
lífskjör sín. Jafnve! er ekki hikað
við að flytja blákalda lýgi í þessu
skyni.
Ein af þessum rakalausu ósann-
indum er í „Verkamanninum" 12.
þ. m. Er þar grein með yfirskrift-
inni: „Fra' Siglufirði. Borgaraðokk.
arnir Ihuld og Framsókn i bcejar-
stjórn Siglufjarðar, neita verkamönn-
um um atvinnubœtur."
Grein þessi er löng og full af
öfgum, illgirni og ósannindum að
því leyti sem hún ekki er persónu-
legar svívirðingar um einn bæjar-
fulltrúann (P. E.).
Vegna þess að hjer er um alvöru
mál að ræða á alvarlegum tímum,
verður ekki hjá því komist að fara
nokkrum orðum um aðgerðir- bæj-
arstjórnar í þessu máli, og benda á
helstu fjarstæður þessarar „Verka-
manns“ greinar.
Bæjarstjórn Siglufjarðar hefir rætt
hið svokallaða atvinnubótamál á 2
fundum. Á fyrw fundinum kom
fram tiilaga frá O. J., S. F. og H.
E. um atvinnubætur fyrir 120 þús.
krónur. Samkvæmt lögum þeim frá
síðasta þingi, sem gera ráð' fyrir
ríkisstyrk til atvinnubóta, þarf að
koma tvöfalt framlag frá viðkomandi
hjeraði, á móti styrk ríkissjóðs. í
þessari tillögu fólst því ósk um 40
þús. kr. beinan ríkisstyrk og 80 þús.
kr. lán eða lánsábyrgð.
Nú er svo fyrirmælt í áðurnefnd-
um lögum, að til þess að koma ti!
greina við úthlutun styrkslns, þurfi
viðkomandi bæjarfjelög: l.aðsanna
að atvinnubótanna sje þérf, 2. að
skýra greinilega frá til hvers eigi að
verja fjenu og 3. láta fylgja kostn-
aðaráætlun verksins. Ekkert afþessu
var fyrir hendi á þessum bæjar-
stjórnarfundi.
Pegar svo þess er ennfremur gætt,
að allur sá styrkur, sem ríkisstjórnin
hefir til umráða, eru einar 300 þús.
kr., þá var augljóst hverjum þeim,
er sanngjarn vildi vera, að ekki gat
komið til mála að Siglufjörður fengi
40 þús. í sinn hlut. Eví enda þótt
við höfum reynt ríkisstjórn Fram-
sóknar að margháttaðri ósanngirni,
var þó valt að treysta því að rang-
læti hennar næði svo langt, að hún
Ijeti Siglfirðinga fá svona míkið.
Pegar af þessum ástæðum má
það vera hverjum matini ljóst, að
bæjarstjórnin gat ekki samþykt þess-
ar tillögur þá þegar á fundinum,
þar sem fyrst og fremst allan und-
irbúning vantaði og hinsvegar eng-
in von til svo n ikils styrks. Enda
kom það strax í ljós, þegar talað
var við formann atvinnunefndar
landsins, að í hlut Siglufjarðar gæti
aldrei komið meira en 10—15 þús.
kr. Pað hefði því verið fjarstæða ein
og auk þess alfgerð blekking gagn-
vart verkamönnum, að samþykkja
svo og svo miklar vinnubætur, vit-
andi þó að ekki var hægt aðkoma
þeim á. Enda var samþykt með
öllutn atkv. annara en Kommúnista,
að vísa málinu til atvinnubótanefnd-
ar bæjarias og að halda um það
annan bæjarstjórnarfund eftir nokkra
daga.
Petta er það sem „Verkamaður-
inn“ kallar að „neita verkamönnum
um vinnu“ og sjá allir hve mikil
Ljóma-Smjörliki
Ábyrgð er tekin á, að í þessu
smjörlíki eru fleiri tegundir af
fjörefni (vitamin) heldur en í
venjulegu smjöri.
Notið Ljóma-smjörlíki!
Umboðsm. Páll S. Dalmar.
ósannindi það eru.
Atvinnubótanefnd bæjarins notaði
svo þennan frest til þess fyrst og
fremst að rannsaka hverra fram-
kvæmda væri mest þörf fyrir bæ-
inn, og svo til að leyta upplýsinga
hjá atvinnunefnd ríkisins. Og þegar
full vissa var fengin fyrir því, að
ekki væri hærri styrks þaðan að
vænta en 10 til 15 þús. kr. hæðst,
þá var um leið kveðinn upp dauða-
dómur yfir tillögum Kommúnista.
Á síðari bæjarstjórnarfundinum,
sem haldinn varum þetta mál, komu
fram tillögur atvinnubótanefndar um
að taka lán, tvöfalt á við þann styrk,
sem frekast var væntanlegur, og
verður hjer ekki gerð nánari grein
fyrir því, hvernig bæjarstjórnin sam-
þykti að verja fjenu, enda var nokk-
ur ágreiningur þar um. En að öðru
leyti varenginn ágreiningur um það,
innan bæjarstjórnar, að bærinn tæki
lán til atvinnubóta, tvöfalt á móti
þeim styrk, sem fást kynni.
Sannleikurinn í þessu atvinnubóta-
máli er sá, að allir (fjórir) flokkar í
bæjarstjórn hafa samþykt að stofna
hjer til atvinnubóta, og verja til
þess svo iniklu fje, sern frekast má
gera ráð fyrir að styrkur fáist á móti.