Siglfirðingur


Siglfirðingur - 12.12.1931, Side 1

Siglfirðingur - 12.12.1931, Side 1
o VI. árg. Siglufirði, Laugardaginn 12. des. 1931 Síldareinkasala íslands „skorin niður við trog“. Lögþvinguðu fargi Ijett af einstaklingsframtaki þjóðarinnar. Allur þorri Siglfirðinga mun enn- þá minnast þess, er einn af leið- andi stjórnmálamönnum bæjarins sagði það á opinberum fundi, að alla síldarsaltendur — sem hann kallaði „leppa“, — ætti að „skera niður við trog“. Petta var þegar verið var að hamra í gegn Einkasölu þá á síld- inni, sem bót átti að ráða á öllum göllum þessa atvinnuvegar. Og þessi illa sögðu orð rættust, að því leyti, að Einkasalan tók strax að kvelja lífið úr öJlum síldveið- endum og síldarsaltendum, efnalega sjeð, og æ því meir sem lengra leið. Og á yfirstandandi ári má segja, að útvegúrinn og allir að- standendur hans hafi þegar verið komnir að hinu stóra skurðartrogi En — „á skamri stund skipast veður í lofti“. Framsóknarstjórnin okkar, blessuð, sem mest hefir gumað af því, að hún hafi „bjargað síldarútgérðinni" með því að „skipuleggja" hana. þ. e. setja Einkasöluna á stofn, verð- ur nú til þess með óvanalegri rögg- semi, að skera Einkasöluna niður við trog, umsvifalaust og fyrirvara- laust, að kalla má. Aðdragandi þessara merkilegu at- burða er sem hjer segir: A þinginu i sumar tókst þingm. Sjálfstæðisflokksi ns, með tilstyrk nokkurra Frainsóknarþm., að koma fram breytingu á Einkasölulögunum. Samkvæmt þeim breytingum var haldinn nokkurskonar fulltrúaráðs- fundur í Rvík í háust, þar sem mætt- ir voru 14 þar til kjörnir fulltrúar, og hófst fundurinn mánudaginn 30. nóv. s.l. Síðan fundur þessi hófst, má segja að hver stórviðburðurinn hafi rekið annan í þessu máli. Tryggvi Pórhallsson setti fundinn, en fundarstjóri var kosinn Erlingur Friðjónsson. Ráðherran gat þess, að hann hefði tvívegis skorað á Pjetur Ölafsson, aðalframkvæmdarstjóra Einkasölunnar, að koma á fundinn, en hann kom eígi -að heldur, og' vakti þetta mikla athygli. Annar fundur þessarar ráðstefnu var haldinn 2. desember. Var þá lögð fram og les'in efnahags-skýrsla, er Pjetur Olafsson hafði samið og sent, og sem því miður ekki er hægt að birta hjer í blaðinu. í þessari skýrslu kemur það fram, að skuldir Einkasölunnar eru meira en 2 miljónir króna, en eignir, aðrar en síld, innan við hálfa miljón kr. Óseld síld er talin 109009 tunnur, og geíur víst enginn maðurum það sagt, hve mikils virði hún er, eða mikið kann að fást fyrir hana. Umræður urðu miklar um. þessa skýrslu, og upplýstist undir þeim, að skýrslan væri að ýmsu leyti röng eða villandi. Kom það skýrt fram að skuldirnar væru taldar um 100 þús. kr. lægri en þær væru í raua og veru, og ýmsar eignir væru alt of hátt metnar. Að þessum umræðum loknum flutti Sveinn Benediktsson og Haf- steinn Bergþórsson svohlj. tillögu: „Par sem ljóst er af bráðabirgða uppgjöri Síldareinkasölunnar, að fyrirtækið á ekki líkt því fyrir skuld- um, þegar tekjð er tillit til þess, að síldarbirgðir eru áætlaðar langtum hærra verði, en þær eru seljanlegar fyrir og stórum útgjaldaliðum slept, þá leggur fundurinn til við lands- stjórnina, að hún þegar í stað hlut- ist til um, að Einkasalan gefi sig upp og bú hennar verði tekið til skiftameðferðar, sem gjaldþrota." Önnur tillaga kom fram frá Frið- rik Steinssyni. Var hún á þá leið, að þar serii Síldareinkasalan væri 51. tbl. N ýkomið: Forstofulampar_ Skálar Balance-lampar alt ofantalið úr ekta Meissner- postulini. Enítfremur: Ljósakrónur Borðlampar Vegglampar Náttlampar Straujárn Pressujárn Perur allar stærðir Afgreiðsla aðeins 5—7 e. m. r Asgeir Bjarnason. sannanlega svo illa stæð, að síldar- útvegurinn væri dauðacæmdur ef hún hjeidi áfram, þá ályktaði fund- urinn: 1. að skora á ríkisstjórnina að hlutast til um að Einkasalan yrði gerð upp. 2. Að sjá um að rekstur Einka- sölunnar i ár komi ekki niður á næsta ár. 3. að skipa þriggja manna nefnd til aðstoðar við uppgerðina og leggja fyrir næsta Alþing tillögur um framtíðarskipulag síldarútgerðar- innar. Pegar fundarstjóri hafði lesið upp þessar tillögur, flutti hann svohljóð- andi rökstudda dagskrá: „Út af framkomnum tillögum um að bú Sildareinkasöíu íslands verði tekið til skiftameðferðar, lýsir fund- urinn yfir því, að þar sem fjárhag- ur Einkasölunnar er eingöngu í höndum núverandi úiflutningsnefnd- ar til næsta nýjárs, telur fundurinn ekki ástæðu til samþyktar í þessum efnum og tekur því fyrir næsta mál á dagskrá." Dagskrá þessi var sam- þykkt með 9 atkv. gegn 5.

x

Siglfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.