Siglfirðingur - 19.12.1931, Qupperneq 1
o
VI. árg.
Siglufirði, Laugardaginn 19. des. 1931
52. tbl.
Fyrirlestur um Rússland. Hreinlætisvörur
Frásögn Gísla Sigurðssonar.
Meðal mánaðarkaup 80 kg. af kjöti. — Vínbruggun alstaðar eins og t. d.
á Islandi. — Radiotæki á hverju heimili. — Mætur ísl. borgari telur ó-
lifandi þar vegna skýrlífis kvenna. — Með uppeldinu unnið gegn öllum
trúmáíum. — Ekkert með peningana að gera annað en skemta sjer. —
Það er kunnara en frá þurir að
segja, að einræðisstjórn Kommún-
ista í Rússlandi gerir mikið að því
að útbreiða kenningar sínar meðal
annara þjóða. Eru til þess notaðar
margar aðferðir og misjafnlega heið-
arlegar. Verður hjer að nokkru get-
ið einnar slíkrar „trúboðsaðferðar",
en það eru heimboð hinna svoköll-
uðu sendinefnda.
Pessi auglýsingaraðferð Kommún-
ista er þannig, að einhverju ákveðnu
landi er boðið, eða það beðið, að
senda nefnd manna til Rússlands,
til þess að sjá og kynnast með eig-
in augum ástandinu í landinu.
í fljótu bragði virðist kynningar-
aðferð þessi hlutlaus og hrekklaus.
„Sjón er sögu ríkari”, segja þeir,
og vitnisburður nefndarmanna á eft-
ir, mun verða talinn óyggjandi
sannleikur. — En þetta er nú eitt-
hvað annað, og skal hjer tekið lítið
dæmi, er sannar það.
Hverri einustu þjóð og hverjum
einasta einstakling er það í eðli borið,
að láta minna bera á því, sem mið-
ur má fara, heldur en hinu, sem er
eins og það á að vera. Einkum
verður þessa vart þegar gesti ber
að garði. Við munum hve mikið
var gert til þess fyrir Alþingishátíð-
ina, að þrifa til og fegra þar, sem
frarr.andi menn áttu um að fara. —
Engin húsmóðir er svo mikill sóði,
að hún ekki þurki af og þrifi til,
þegar gesta er von, hvað þá þegar
hún beinlínis býður gestum heim.
Og gestunum er þá aðeins boðið í
bestu stofuna, þar sem þrifað hefir
verið til, en ekki verið að sýna
þeim sóðaskapinn í hinum hluta
íbúðarinnar. Á þennan hált hefir
mörgum erkisóða verið hælt fyrir
þrifnað og hreinlæti. —
Á síðastliðnu sumri fengu íslenskir
Kommúnistar tilmæli um það frá
rússnesku ráðstjórninni, að senda
nefnd manna þangað, til þess að
kynnast kjörum Rússa og ástandi
landsins, Pað getur nú hver sagt
sjer það sjálfur, í hvaða tilgangi þetta
er gert. Pað er gert með það eitt
fyrir augum, að auka fylgi og út-
breiða þá pólitísku stefnu, sem ráð-
ið hefir lögum og lofum að undan-
förnu í Rússlandi. Og ef heim-
sóknin á að bera þennan árangur,
verður að hampa kostum atefnunnar
framaní gestina. Pað verður að
fægja og sópa og sýna aðeins það,
sem hægt er að telja til meðmæla.
Alt það, sem verða má til hnekkis
kenningunni um einræði öreiganna
yfir öllum þeim, sem eitthvað vilja
og eitthvað geta unnið að framþró-
un og viðreisn á eigin spítur, er
vandlega falið fyrir augum gestanna.
Nefndin fór — ög tilganginum
er náð. Fjórir pólitískir flokkar fóru,
en aðeins einn flokkur kemar aftur.
Oll nefndin kemur, að því er virð-
ist, sem eldrauðir Kommúnistar, út-
blásnir og uppþembdir af litbrigð-
um þeim og loftköstulum, sem hið
volduga, rússneska einræði, leiddi
fram fyrir augu þeirra. Peir hafa
látið blekkjast — gleypt agnið. —
Svona langt getur falsið og fláræð-
ið komíst, sje það búið nægilega
þykkum sakleysishjúp. — —
Einn þessara nefndarmanna var
hjeðan úr Siglufirði. Heitir hann
Gísli Sigurðsson og hefir talið sig
Sjálfstæðismann fram að þessu.
Hann er nú kominn hingað, og
auglýsti fyrirlestur í Bíó í fyrrakvöld,
er hann r.efndi: „Hvað eg sá í
Rússlandi". Aðgangur kostaði 50
aura. Húsið var fullt.
mjög vandaðar; svo sem:
Pvottaduft, Fægilögur, Blegsódi,
Blautsápa, Handsápur o. fl. í
Skipaverzluninni.
N ý k o m i ð:
Forstofulampar
Skálar
Balance-lampar
alt cfantalið úr ekta Meisner-
postulíni
Ennfremur:
Ljósakrónur
Borðltmpar
Vegglampar
Náttlampar
Straujárn
Pressujárn
Perur allar stærðir
Philips sparnaðarperur
Rafmagnspúðar
Philips-index
Afgreiðsla aðeins 5—7 e. m.
r
Asgeir Bjarnason,
Nankinsbuxur
handa börnum og unglingum,
með vægu verði.
Skipaverslunin.
Ræðumaður talaði nærri tvo tíma,
og gerði hann ýmist að lesa af
skrifuðum blöðum (sem honum gekk
illa að lesa) eða tala frá eigin brjósti.
Bar fyrirlesturinn allur í heild greini-
leg merki unggæðisháttar og barns-