Siglfirðingur


Siglfirðingur - 09.03.1935, Page 1

Siglfirðingur - 09.03.1935, Page 1
„ Handjárn Eru Jafnaðar- og Framsóknarmenn Siglu- fjarðar komnir undir handjárna-okið? Síðastliðið ár hefir Sverre Tynes gengt byggingafulltrúaslarfi bæjarins. Hinn 17. jan. s.l. lagði hann upp- sögn sína fyrir byggingarnefnd. Pótti ýmsum eftirsjá að Sverre, því hann var starfi sínu vel vax- inn á marga lund og vann að því með trúmennsku og reglusemi. Síðastliðið haust kom til orða meða.l bæjarfulltrúanna, að æskilegt væri, að ráðinn yrði maður, er hefði með höndum allar verklegar framkvæmdir bæjarins og stjórnaði þeim og annaðist jafnframt áhalda- vörzlu fyrir bæinn. Vakti Jóh. F. Guðmundsson bæj- arfulltrúi fyrstur máls á þessu, og benti þá á, að völ mundi á ágæt- Iega hæfum manni til starfans, en það var þáverandi verkstjóri við byggingu Ríkisverskm., Karl Frið- riksson. Fékk mál þetta beztu undirtektir meðal bæjarfulltrúanna. Pegar Sverre Tynes sagði upp starfa sínum, var mál þetta upp tekið að nýju, og samþvkktu þá hafnarnefnd, bygginganefnd, vega- nefnd og fjárhagsnefnd að sameina í eittembætti störf byggingarfulltrúa, verkstjóra hafnar og bæjar ög skyldi starfsmaður þessi auk þess gegna áþaldavörzlu hafnar og bæjar| Pótti sýnt, að með þessu mundi sparazt mikið fé. Varð það svo að ráði bæjar- stjórnarað starfinn skyldi auglýstur laus til umsóknarog launin ákveðin 4U00 kr. á ári, Starfi þessi var svo auglýslur til umsóknar 26. jan. og skyldi um- sóknarfresturinn vera til 20 febr. Prír menn sóttu um stöðu þessa, þeir Lúðvik Kemp, vegaverkstjóri, Páll Jónsson, trésmiður (búsetlur hér í Siglufirði) og Karl Friðriksson, sá er fyr getur. Pess má geta hér, að ýmsir fleíri mætir menn ætluðu að sækja um stöðuna, en hættu við það sakir þess, að allir töldu víst að flestall- ir bæjarfulltrúarnir væru ákveðnir í þvi að greiða Karli atkvæði, og væri honum því staðan vís. Pað höfðu líka ýmsir bæjarfull- trúar — og varafulltrúar — látið ótvírætt í ljósi, að þeir væru ráðn- ir í því, að greiða Karli atkvæði, þar á meðal þeir Hannes og Jóh. F. Guðm., enda hafði sá síðar- nefndi frá öndverðu barizt fyrir því, að Karli yrði veitt staðan, og fullyrt við hann sjálfan, að svo mundi fara. En þegar líður að bæjarstjórnar- fundi þeim, er veita skyldi stöðuna, heldur Jafnaðarmannafélagið fund um málið, og mun á þeim fundi hafa verið fast ákveðið og svo fyrir skipað, að vinna að því, að Páll en eigi Karl yrði kosinn. 1 sambandi við þetta hafa gengið ýmsar sögur um bæinn, og þætti mér gaman að fá að vita hvort slíkar sögur séu sannar — t. d: Hvort Jóh. F. Guðm. hafi verið hótað brottrekstri úr Jafnaðarm, fél. ef hann kysi Karl. Hversvegna Kristj, Sigurðsson mætti á bæjarstjórnarfundi í stað Jóhanns, enda þótt Jóhann væri í bænum og eigi forfallaður svo vitað væri? Hversvegna Hannes greiddi ekki atkv. með Karli, eins og hann hafði áður lýst yfir að hann mundi gera? Pvi fullvíst má telja, að svo hafi eigi verið. þrátt fyrir það þótt kosningin væri „leynileg". Var þarna beitt „handjárna-aga" stjórnarklíkanna til þess að bola frá embætti pólitískum andstæð- ingi? Öllum þes.sum spurningum væri fróðlegt að fá svarað. Pað er mik- ill fjöldi bæjarbúa undrandi yfir afgreiðslu þessa máls. Pað skal þó greinilega tekið fram, að greinarkorn þetta er alls ekki skrifað í þeim tilgangi. að vekja varitraust á Páli, þvi fer fjarri. En hitt er heldur, að þessi em- bættisveiting stappar nærri að sé allmörgum bæjarfulltrúunum til stórrar hneysu, vegna þess, að meirihluti bæjarfulltrúanna mun hafa lofað fylgi sínu við Karl, og hefði hann því óumflýjanlega hlotið slarfann, ef þeir hinir sömu hefðu ekki hvikað frá loforðum sínum (og sannfæringu?) Par að auki má geta þess, að Karl, sem mun hafa — og ekki að ástæðulausu — talið sér stöðuna vísa, samkvæmt fullyrðingum um meirihlutafylgi, hefir lagt á sig all- þung fjárhagsleg útgjöld og mikla fyrirhöfn til þess að búa sig undir starfann. Auk þessa varð þessi 'von hans um þetta embætti þess valdandi, að hann setti sig úr færi að taka tilboði um vel launaðan starfa, er honum bauðst frá vegamálastjórn- inni. Pessi veiting e r því pólitísk — ámóta og veitingarnar á embættum þeim, er nýverið eru veitt af stjórn Ríkisverksmiðjanna. En þess ber að gæta að í báðum tilfellum mun stjórnarliðið hafa þótzt nauðbeygt til að fara nákvæmlega! ettir 32. gr. „Fjögra ára áætlunarinnar" (Málefnasamningsins“) sem kratarn- ir gáfu út fyrir kosningarnar s.l. sumar. Áætlun þessi heitir „íslenzk 4 ára áætlun 1935—39“ og þar stendur þetta á bls. 13, 32, gr.: Flokkarnir ætla „...sðvinna að því, aðöllum verði gefin jöfn aðstaða til að keppa um stöður við hverskonar opinberar stofnanir og að eingöngu verði valið í stöð- urnar eftir hæfileikum um- sækjenda." Petta væri og er gullvæg regla,

x

Siglfirðingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.