Siglfirðingur


Siglfirðingur - 13.04.1935, Blaðsíða 1

Siglfirðingur - 13.04.1935, Blaðsíða 1
VIII. árg. Siglufirði, Laugardaginn 13. apríl 1935 8. tbl. Kjötbúð Siglufj arða r Sími 74. Til páskanna: Nautakjöt í buff og steik. Dilkakjöt Svínakjöt Hangikjöt Rjúpur Svið Vinarpylsur Miðdagspylsur Kjötfars Hakkabuff. Alegg Pylsur allskonar Egg Smjör Tólg Ostar Hviikál Rauðkái Gulrætur Kartöflur Rauðbeður Laukur Asíur S e n t h e i m ! Kjötbúð Siglufjarðar. Útgerðar- og málningarvörur Firma, sem getur tekiö að sér (am síldveiðitímann og í sumar og framvegis) umboðssöiu á útgerðar- og málningarvörum á Siglufirði fyrir wiig — erfis^og firma Sören Goos að undanförnu — snúi sér góðfúslega til mín hið fyrsta. ATH. Gótt búðarpláss við aðalgötu fbæjarins eða sem næst henni og fagkunnátta nauðsynleg. O. ELLINGSEN. Símnefni: Ellingsen, Reykjavík. Reykjavík. Sý kin g. Niðurl. Jafnótt. eða pó óðara en þessir skuggar vaxa, gerast æ háværari kröfurnar um hærra kaup, styttri vinnutíma og meiri lífsþægindi „hinna vinnandi stétta“. — Hafa menn íhugað hið napra háð, sem felst í bví, þegar verið er að hampa því orði? Eins og vér íslendingar séuirj annað en ein vinnar.di stétt allir saman, nema ef undan væru teknar gorkúlurnar, sem vaxið hafa á sorphaugum þjóðarinnar, þeim, sem ekki voru til fyrir mannsaldri, og sem nú hreykja sér þar hátt og gala, eða telja sig vera að gala, fyrir „hinar vinnandi stéttir", sem I eir ekki tilheyra og hafa aldrei tilheyrt, sökum leti og ómennsku. Væri það ekki dálítið skoplegt, ef hásetarnir á bátnum sem marir i hálfu kafi eftir áfall, færu að heimta sérstakt kaup, fyrir að ausa hani'? Eg held að oss beri öllum skylda til, að ausa hina sökkvandi þjóðarskútu, eftír áfallið, ,ekki til að bjarga formanninum, heldur til að bjarga lífi sjálfra vor. Sannleikurinn er sá, að þjóð vor er orðin sýkt. — Listasmekkur þjóð- arinnar í bókmenntum er sjáanlega óheilbrigður, þegar alþýða manna kýs heldur að lesa bækur eins og Úrskurð hjartans og Miljónaþjófinn Pétur Voss, heldur en íslendinga- sögurnar eða fræðibækur, Og þó játa eg það skárra að lesa fyriöldu bækurnar, en að veriá tímanum tii annars enn verra. Og sýkingin kemur enn glöggar fram í því, hvernig allur þoiri þjóðarinnarlæt- ur sig fljóta sofandi að feigðarósi, á hinu sökkvandi þjóðarfleyi, án þess að renna huganum til hætt- unnar sem við blasir. Rennum húganum til ástandsins, sem hér ríkir á Siglufirði. — ^Hér er — og ekki um skör fram, kvart- að um atvinnuleysi og erfiðleika, en samtímis er mér sagt, að yfir fyrsta mánuðinn, eftir að hin þráðu sterlcu vín héldu hér innreið sína, hafa hér selzt vín fyrir nær 30 þús. krónur og ailir vita að Siglufjörður setti metið í sölu sterku vínanna fyrsta daginn sem þau voru seld. — Hér eru d.msleikir, Bíósýningar, sjónleikir og allskonar skemmtanir svo að segja á hverju kvöldi; — hingað safnast trúðar og daðurdrós- ir frá öllum hornum landslns til að afla hér fjár. Allt kostar þetta bæjarbúa offjár. — tugþúsundr, en menningarleg eftirtekja af því er engin. — Og svona er allsstaðar. — Ungir menn, hraustir og fullfærir, sem höfðu góða sumaratvinnu, liggja nú í vetur upp á fátækum foreldrum, eftir að hafa eylt sumar- atvinnunni í vín, dans og dufl, klæðast þá fyrst, er iðjusamir menn eru um það bil að Ijúka dagsverki sínu og hátta kl. 5—6 að morgni. Pjóðin er orðin nautnasjúk, og það á að mjög miklu leyti rót sina í kommúnista glamrinu. Hér er al- varleg hælta á ferðum. Fyr en varir, úrlcynjast þjóðstofn vor og þá

x

Siglfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.