Siglfirðingur - 18.05.1935, Page 2
2
SIGLFIRÐINGUR
sjálfan sig, heldur og gagnvart t'jöl-
skyldu sinni og allri þjóðar-
heildinni, að stunda íþróltir, þótt
ekki væri það nema einusinni í
viku reglulega. — Auðvitað verður
maðurinn að hafa svo míkinn frí-
tlma frá störfum sínum, að honum
sé kleift að verja tíma til slíkrar
iðkunar, — og ef því er ekki þann-
ig varið, — þá að fá því tafarlaust
þannig fyrirkomið, og þá jafn-
framt að fá gott eftiriit með því,
að unglingar noti þann tíma. sem
þeim er ætlaður til íþróttaiðkunar-
innar, eingöngu til þeirrar mennt-
unar. — — Sérhver maður verður
auðvitað með glöðu geði og af frjáls-
um hvötum, að leggja á sig þessa
skyldu. — Hér má ekki nein þving-
un eiga sér stað, því íþróttirnar
vekja gleði og fjör. Pað vita þeir
sem þegar slunda, og hafa stundað
ýmiskonar íþróttir. Rær eru orðnar
þéim eitthvað ómissandi, — — —
Annars verður það að fara eftir á-
liti læknanna, hvort heilsufari iðk-
andans sé þannig varið, að hann
megi stunda íþróttir, eða þá
að hann fái leiðbeiningar hjá lækn-
inum, hvernig hann eigi að haga
sér við íþróttaiðkanir, lil þess að
þær verði honum til hollustu og
gagns, en ekki til hins gagnstæða.
— — En til þess að þetta verði,
þyrftu læknarnir að vera „aktivir"
meðlimir íþróttastarfseminnar og
hver einasti íþróttamaður að ganga
undir skoðun, hvað heilsufar og þrek
snertir, — og fá leiðbeiningar og
lækningu, ef einhverju er ábótavant.
Meira að segja sagði Kristur, að
mannslíkaminn væri musteri guðs-
andans. — — Ætti það því ekki
að vera sómatilfinning hvers manns
að halda þessu húsi andans sem
hreinustu, fegurstu og í sem beztu
lagi, til þess að andinn sem í því
býr. geti notið sín og starfað í þágu
hins góða. — Til þess að þetta
geti orðið, þarf að vaxa meiri skiln-
ingur hjá þjóðinni fyrir þessum
sannleika. Pví þá myndi ráðast
bót á mörgu því meini, s em nú
þjáir þjóð vora, — svo sem: hinu
gífurlega niðurdrepi afvöldum berkl-
anna pg annara illkynjaðra sjúk-
dóma. — Væri ekki réttar að ríkið
legði meira af mörkum í byggingu
íþróttavalla — húsa og sundlauga,
sem yrði nokkurskonar heilsubrunn-
ar þjóðarinnar, heldur en að sjá
fólkið streyma inn á sjúkrahúsin,
til þess eð leita sár lækninga, þegar
það ef til vill er orðið of seint. —
Og einatt verður ríkið að láta
byggja fleiri og fleiri sjúkrahús,
handa mönnum, sem ef tii vill ekki
hafa haft möguleika eða getu til
þess, að varðveita heilsu sína,
vegna þess, að skilyrðin hefir vant-
að, og þá oft lika af sinni eigin
vanþekkingu, og skilningsleysi með-
bræðra sinna. §— — Pví meðan
maðurinn lifir í líkama hér á
jörðu, — hljóta líkamsæfingar, að
vera aðalþáttur hinnar mannlegu
menntunar. — Óskiljanlegt er það,
að þessi þjálfunarmenning líkamans,
þessi lífsins beilsulind, þessi vernd-
arlærdómur og heilsufræðilega
speki, skuli hafa verið oss svo
lengi dulin. —
Framh.
Fr é t i i r.
r
Utvarpsráðið.
Eins og kunnugt er fóru kosn-
ingar svo, að sinn maðurinn komst
að af hverjum lista.
Pó var listi stjórnarflokkanna
„aumastur allra" eins og vant er
þegar kom til fylgisins. Samfylk-
ingin fékk um fjórðapart atkvæða.
Sameinaðir fá stjórnarflokkarnir
helmingi færri atkvæði en Sjálf-
stæðisflokkurinn. Er það mikil, en
þó eðlileg og makleg afturför frá
seinustu þingkosningum. Stjórnar-
flokkarnir kenna svo hvorir öðrum
um ósigurinn. Formaður útvarps-
ráðs hefir nú verið skipaður Sigfús
Sigurhjartarson, kennari, segja kunn-
ugir, að ekki muni hata verið skift
um til hins betra.
Fulltrúar Alþingis,
þeir, er mæta skulu fyrir þess
hönd á afmælishátíð sænska þings-
ins eru nú allir farnir áleiðis til
Stockholm. Mætir einn fulltrúi
fyrir hvern flokk þingsins, og hafa
flokkarnir sjáifir útnefnt þá. Sjálf-
stæðisflokkurinn sendir Gísla Sveins-
son, sýslumann, Bændaflokkurinn
Hannes Jónsson, Alþýðuflokkurinn
Stefán Jóhann Stefánsson, Fram-
sóknarflokkurinn Jónas Jónsson.
Endurreisn Fisksölu-
sambandsins
er nú á döfinni og hefir verið
það reyndar síðan því voru brugg-
uð banaráðin á þinginu í vetur.
Nú hefir atvinnumálaráðherra
falið Fisksölusambandinu að leita
Enn er nokkuð eftír af
Dragta- og
Káputauum
í verzlun
Sig. Kristjánssonar
4 hjólhestar
til sölu með sérstöku
tækifærisverði.
Friðb. Nielsson.
undirtekta fiskframleiðenda um
málið.
Verði undirtektir þeirra góðar,
sem varla þarf að efa, verður Fisk-
sölusambandið endurreist.
Nú hefir Fiskimálanefnd, samkv.
skipun atvinnumálaráðherra boðað
til fundar í Rvík 23. þ. m. og allir
fiskframleiðendur beðnir að mæta
þar eða senda fulltrúa.
Ríkið
hefir nú keypt síldarbræðsluverk-
smiðjuna á Raufarhöfn af firrnanu
Fdr. Gundersen í Bergen.
Kaupverð er 60 þúsundir króna
og ber seljanda að skila verksmiðj-
unni i rekstrarhæfu standi, svo hún
geti unnið úr 800 síldarmálum á
sólarhring.
Talið er að verðið sé viðunan-
legt, erida þótt búizt sé við, að
miklu þurfi til að kosta, til þess að
verksmiðjan verði starfhæf til
frambúðar.
Karlakór Reykjavíkur
hefir farið hina mestu frægðarför
um Norðurlönd, og allstaðar hlotið
einróma lof og beztu dóma. Poli-
tiken stingur upp á því að Konung-
lega leikhúsið athugi það vel, hvort
ekki sé unnt að bjóða Stefáni Guð-
mundssyni stöðu sem föstum söngv-
ara við leikhúsið.
Norrænt blaðamannamót
er nýafstaðið i Kaupmannahöfn.
Par mættu þessir fulltrúar íslenzkra
blaða.
Tryggvi Sveinbjörnsson, sendi-
herraritari og Páll Jónsson, frétta-
ritari fyrir „Morgunblaðið", Pétur
Hjaltested fyrir „Fálkann" og Pétur
Benediktsson fyrir „Vísi”.