Siglfirðingur - 18.05.1935, Síða 3
SIGLFIRÐINGUR
3
Margt er gott
en allra bezt er einungis
AKRA vitamín-smjörlíki
smrnmmsAft&msm®® ___________
Maánús Torfason
hefir nú hrökklast út úr landhelgi
Bændaflokksins og togar nú á Haia-
miðuni Framsóknar eins og áður.
En þar kvað nú óðum vera að
rýrna uppgripin, því átulítið kvað
nú vera orðið á bitlingamiðum
Ríkissjóðsins.
Nú með því, að Magnús hertr
slitnað þarna aftan úr móðurskip-
inu. þykir sýnt að þingið sé nú
laust við harkamennið, og karl fái
frí frá þingstörfum. Og verði farið
eftir kosningalögunum og stjórnar-
skránni er enginn vafi á þessu. En
verði nú aftur á móti farið eftir
pólitískri þörf stjórnarflokkanna á
þingi, má búast við að Magnús
hangi, og verði áfram eins og áð-
ur sá, er mestu ræður hvert mun-
dangið haliast. Pað liefir nú verið
hlutskipti þessa pólitiska spákaup-
manns að stíga jafnan þeim megin
á metaskálarnar er ver hefir gegnt
fyrir þjóðina. Að lögum réttum er
Magnús nú úr sögunni sem þing-
maður, en við tekur Stefán Stefáns-
son úr Fagraskógi.
En sennilega verður hér ineira
farið eftir hagsmunum stjórnarkiík-
unnaren kosningalögunum ogstjórn-
arskránni, — hún hefir fyr verið
broíin þegar svo hefir ástatt verið
um öryggi stjórnarfylgisins á Alþingi.
Bæjarfréttir.
Mikil vinna
er nú í bænum þó mikið skorti á,
að hún fullnægi vinnuþörfinni og
eru því margir atvinnulausir af bæj-
arbúum. Margir aðkomumenn hafa
komið til bæjarins í atvinnuleit og
í von um að fá eitthvert starf. Vit-
anlega stafar atvinnuleysið mest af
aflaieysinu. Undanfarin allmörg vor
hafa verið hér gnægtir vinnu við
fiskaðgerð og önnur störf í sambandi
við útgerðina, en nú er allt, sem
sjáfarútvegi viðkemur í kaldakoli
sakir aflaleysisins.
Jarðarför
Sigríðar Kristínar Gunnarsdóttur fór
fram á föstudaginn. Jarðarförin var
fjölmenn. Sigríður lézt héi á sjúkra-
húsinu úr afleiðingum inflúensunn-
ar. Hún var fædd hér og uppalin.
Hún lætur eftir sig 5 börn öll á
ungum aldri. Páll Pétursson, er hún
Hænsnagirðingarnet
Nokkrar rúllur enn
óseldar.
Einar Jóhannsson & Co.
Tv isia u
Morgunkjólatau
margar tegundir
nýkomið í verzlun
Sig. Kristjánssonar.
bjó með, stefidur nú einn uppi með
allan hópinn, er saknar móðurum-
hyggjunnar sem hún veitti þeim af
ailri sál sinni og öllum mætti þess
þroska, er henni var áskapaður.
Hún var ein af þeim er litið bar á
í þjóðfélaginu og litlar kröfurgerði,
en störf sín vann hún eftir beztu
getu og snöggt um betur en margir,
sem meira berast á og við bjartari
lífskjör búa.
Páll og þau bæði stunduðu jafn-
an heimili sitt eftir beztu getu.
Fiskilaust
er enn fyrir öllu Norðurlandi. Hef-
ir nú verið leitað á öllum miðum
frá Húnaflóa til Kolbeinseyjar og
hvergi orðið fiskvart svo teljandi sé.
Allur er fiskurinn gjörsamlega æris-
laus, og ekki vel feitur. Lítur út
fyrir að átugöngur séu nú ekki til
Fegurðarvörur:
Púður
Krem
Naglalakk
Handáburður
Hárolía
Tannburstar
Tannkrem o. fl.
bezt og ódýrast í
Verzlun
Sig. Kristjánssonar.
Beztu fuglaskotin
eru hin þýzku
„Auerhahn“
fást aðeins í
Lyfjabúðinni.
Stærst úrval af
Manchetskyrtum
er í verzlun
SIG. KRISTJÁNSSONAR.
hér norðanlands, af hverju sem það
stafar. Kenna ýmsir um óhentugum
sjáfarhita.
Og vel á minnzt — væri ekki
ráðlegt að fiskifélagsdeildin hér