Siglfirðingur - 10.08.1935, Blaðsíða 1
Síldveiðarnar.
Afleiðin£ar þeirra ráðstafana, að
hefja síldarsöltun alltof seint, þrátt
fyrir ótvíræð gæði síldarinnar,
eru þegar farnar að gera vart við
, sig og munu valda enn alvarlegri
eftirköstum, ef ekki rætist úr hið
bráðasta.
Greinin í síðasta Siglfirðingi, þar
sem vítt er sú ráðstöfun að salta
ekki fyr sílciina í ár en gert var,
hefir vakið afarmikla athygli fólks.
Menn sjá það alltaf betur og betur,
að slíkar ráðstafanir sem þessar eru
með öllu óverjandi þegar síldin á
annað borð er orðin vel söltunar-
hæf. Petta er samskonar „búhnykk-
ur“ og ef bóndinn tæki upp á því
að slá ekki tún sín og engi fyr en
grasið væri farið að falla og fölna.
Nú er svo komið, að farið er að
salta þróarsíld til útflutnings, en áð-
ur (í júlí) var ágætri spriklandi og
gijáandi fyrsta flokks söltunarsíld
dembt í bræðsluþrærnar.
Nú segja Sviarnir: „Síldin er á-
gæt, prima vara enda þótt hún sé
orðin .,slöpp“! — bara hún súrni
ekkill í tunnunum." Ber ekki þetta
vott um eindæma þekkingu á vöru-
vöndun?! En vitringarnir sænsku
eru þó ekki alveg frá því að kunni
að hlaupa hálfgerður koppakeimur
í þessa dæmalausu „þróarfram-
leiðslu" þeirra!
F*að skal staðhæft, að menn munu
sjaldan eða aldrei hafa séðsaltaðan
verri „skít“ að útliti en þann, er
hrúgað hefir verið í tunnurnar þessa
síðustu og verstu daga. — Jú, bara
þetta súrni nú ekki!
Hvað hefir verkafólkið í landi,
sjómennirnir, útgerðarmennirnir,
Siglufjarðarkaupstaðar og landið í
heild tapað miklu fé á þessari ráð-
stöfun í ár?
Hver vill svara því?
Hvað bíður þessa fólks, og allra
þeirra, er hér eiga hlut að máli um
fjárhagslega afkomu og lífsbjörg á
komandi vetri, ef ekki rætist úr?
Hver vill svara því?
Er ekki ástæða til nú þegar að
fara að gera einhverjar ráðstafanir
til bjargar?
Pví enda þótt komi nú mikið
síldarhlaup, er nýttist skaplega, þá
yrði undir öllum kringum6tæðum
atvinnutekjur fjöldans svo rírar, og
afkomuhorfurnar svo ískyggilegar
eigi að síður, að tæplega yrði kom-
izt hjá alveg óvanalega gagngerðum
og yfirgripsmiklum viðreisnar og
hjálparráðstöfunum.
Menn munu vafalaust, sumir
hverjir, segja sem svo: „Pað er lít-
ill vandi að sjá þetta allt saman
eftir á!“ En oss er spurn: Er ekki
mikil ástæða til að óttast um mink-
andi veiði eftir því sem síldarmagn-
ið er meira og skarpara í fyrstu
göngunni?
Jú, vissulega?
En hitt er annað mál — það
Framhald á 4. síðu.
E G G. E G G.
Kaupið aðeins stimpluð egg með merkinu
(innan í hring), það tryggir yður glæný egg.
Egg vor fást að jafnaði í
Verzl. Sveins Hjartarsonar.
Gests Fanndals.
Egils Stefánssonar.
Kaupfélagi Siglfirðinga.
Verzlunarfélagi Siglufjarðar.
H. Thorarensen.