Siglfirðingur


Siglfirðingur - 24.08.1935, Side 1

Siglfirðingur - 24.08.1935, Side 1
Iflnlegasta þakklæti til allra, fjær og nær, er á einn eða ann- an hátt sýndu mér vinsemd og virðingu á sextíu árá afmæli mínu. Sérstaklega þakka eg söngstjóra og söngfélaginu „Vísi“ og öllum meðlimum hans, fyrir hugulsemina að heiðra mig með söng sínum og ræðum félagsmanna, bæði úti og inni- Guð blessi ykkur öll fyrir þessa ánægjustund. JÓSEP BLÖNDAL. Bjargráð. i. Eins og kunnugt er, hefir öllum þeim er á fiskveiðum lifa brugðizt atvinna sín á þessu ári hörmulegar en dæmi eru til á síðustu árum og þótt lengra væri til jafnað. Einna tilflnnanlegast hefir þetta aflaleysi komið niður á Norðlend- ingum og þó einkum og sér i lagi Siglufirði, sem alla afkomu sína á undir sjávarfangi, einkanlega þó síld- veiðunum. Porskveiðarnar brugðust svo að kalla gjörsamlega hér í vor, síld- veiðin sömuleiðis og eru þá upp- taldir þeir bjargræðisvegir, sem bæj- arbúar byggja á alla afkomu sína. Pað er víst ekki of djarft áætlað þó sagt sé, að Siglfirðingum hafi brugðizt í sumar lífsbjörg er nema mundi hálfri miljón króna. Fjöldi heimila er nú á haustnóttum algjör- lega bjargarlaus og hafa enga mögu- leika til þess að afla sér og sínum nauðsynlegs vetrarforða. Er óhætt að fullyrða, að Siglu- fjörður hafi aldrei átt framunQan jafnískyggilegan vetur og nú, né forráðamenn bæjarins úr alvarlegri vanda að greiða. Petta er bæjarstjórn ljóst, og er hún þegar byrjuð á að athuga og ræða möguleika til bjargráða. Má nærri geta, að slíkt starf er mikið vandaverk og örðugt viðfangs, því að hvortveggja er, að hagur bæjarins var þröngur fyrir fjárhags- lega, sem og þjóðarinnar allrar, og að nú er hart um allar útveganir lána svo að til vandræða horfir, gjaldeyrishömlur og viðskiptaörð- ugleikar meiri og víðtækari en dæmi eru til. Pað er því skylda allra góðra manna að veita bæjarstjórn og öðr- um þeim, er bæjarbúar treysta bezt í þessum vandræðum, alla þá hjálp og aðstoð sem verða má. Verður allt starf við það mun léttara, er allir sameina getu sína og krafta og allir aðilar sýna hverir öðrum velvild og gagnkvæman skilning. Bæjarbúum er kunnugt um það, að bæjarstjórn hefir kosið fjögra manna nefnd af sinni hálfu til þess að vinna að lausn aðsteðjandi vandamála og styrkja aðstöðu bæj- arfulltrúanna til heppilegra úrlausna verkefnanna. Er þar kosinn einn fulltrúi fyrir hvern flokk í bæjar- stjórn og svo til ætlazt, að 4 félög, er mest hafa unnið hér að góð- gerðarstarfsemi og líknarmálum. til- nefni sinn manninn (eða konuna) hvert, en bæjarfógeti verði sjálf kjörinn oddviti nefndarinnar. Má rnikils góðs vænta af starfi nefndar þessarar, og munu nefndar- menn allir einhuga í því, að þetta starf þeirra sé hátt upp hafið yfir allan pólitískan krit og flokkadrátt. II. Tillögur bæjaríulltrúa Fátæranefnd hefir borið fram til- lögur í bæjarstjórn um .10 þús. kr. atvinnubótalán, gegn 20 þús. kr. framlagi bæjarsjóðs í sama skyni, er bæjarsjóður taki að láni, en ríkissjóður ábyrgist lánið. Pá hefir komið fram tillaga frá Póroddi Guðmundssyni um að vinna verði að því að fá 50 þús. kr. lán úr bæjarsjóði, en ríkissjóður leggi til aðrar 50 þúsundir. Pá hefir O. Hertervig borið fram tillögu þess efnis, að fengið sé leyfi ríkisstjórnar til þess að leggja einnar krónu skatt á hvern lítra víns, er hingað flyzt frá Áfengis- verzlun ríkisins, og sé því fé varið til vaxtagreiðslu og afborgana ai lánum þeim er bærinn þarf að taka til að afstýra vfirvofandi vandræð- um. Tillaga þessi er sannarlega sann- gjörn, því að ekki þarf að ætla, að ríkisstjórn fáist til að loka áfengis- útsölunni hér, eins og nú er komið hag ríkissjóðs. Við þetta verður vínið að vísu dýrara, en þeir, sem það kaupa, eru sannarlega ekki ofgóðir tíl að gjalda þennan skatt um leið til þeirra er bágast eiga í bænum. Mundi þessi skattur nema eigi all- litlu fé, sennilega kringum 15 þú». kr. yfir árið. Frá afgreiðslum þessara tillagna í bæjarstjórn verður nánar skýrt annarstaðar í blaðinu í dag. III. Fólkið þarí að fá vinnu! Pað er augljóst mál, að allir, eða meginþorri þeirra er hjálpar þurfa vilja vinna fyrir því fé er þeir fá, enda væri æskilegt að því yrði við komið. Verður þá fyrst að athuga hvað á að gera og þar næst, að það verði bænum til varanlegra hags- bóta — og það eitt verði gert. sem

x

Siglfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.