Siglfirðingur


Siglfirðingur - 05.10.1935, Side 1

Siglfirðingur - 05.10.1935, Side 1
Síldarútvegsnefnd svarar fyrir sig. Síldarútvegsnefnd hefir nd tekið rögg á sig og sent flestum íslenzk- blöðum grein til birtingar þar sem hún ber sig sérstaklega upp undan því, að á sig hafi verið ráðizt ómak- lega í sumar í blöðum Sjálfstæðis- flokksins. Kveður hdn sér þar hafa aðal- lega verið fundið til foráttu þetta tvennt: 1. Að h d n hafi látið hefja sölt- un alltof seint í sumar og skaðað með þvi alla þá, er við síldveiði og síldarsöltun hafa fengizt í ár og þar með þjóðina í heild. 2. Að hdn seinni.hluta sumars hafi haldið niðri fersksíldarverðinu til stórtjóns fyrir sjómenn og dt- gerðarmenn. Það skal tekið hér íram strax, að Siglfirðingur sá eigi ástæðu til að eyða takmörkuðu rdmi sínu undir grein þessa sakir þess, að bæði stjórnarblöðin hér munu birta hana og er hdn þegar komin dt í mál- gagni Alþýðuflokksins hér. Munu bæjarbdar fá nóg af að lesa hana í tveim blöðum, þótt þeir eigi fái þriðja samritið prentað í Siglfirðingi. Pað sem einkennir grein þessa fyrst og fremst er það, hve ein- kennilega hörundsár nefndin er, og hve sárlega hdn ber sig undan á- rásum. Siglfirðingur verður að játa það. að hann hefir eigi átt kost á að lesa öll blöð og ekki einu sinni öll blöð Sjálfstæðisflokksins, en þau fáu blöð er hann hefir séð og á síldarmál þessi hafa rninnzt, man hann ekki til að hafi birt qeinar árásir í því sambandi á nefndina, að minnsta kosti ekki, að henni sé sérstaklega kennt um að eigi var hafin síldarsöltun fyr en raun varð á, enda þótt nefndin ákvæði fyrsta leyfilegan söltunardag. Pau einu orð í þessu sambandi, er nefndin gæti hengt hatt sinn á og ráðið út dr árás á sig í Sigl* firðingi eru þessi orð í niðurlagi greinar í 23. tbl. Siglfirðings frá 3. ágdst: „Ráðstöfun þessi í ár að salta ekki fyr en 25. júlí (sem varð þó 22.) mun vera einn þáttur í ndverandi allsherjarskipulagi hinna ráðandi flokka.” Liggur nærri að halda að sam- vizkan sé verri en mann hetði grunað um þetta atriði, fyrst hdn hefur upp slíkt harmakvein yfir árás í þessu efni, sem reynist svo að vera tómir orar og ímyndun. Var lika þessi ráðstöfun einn þátt- ur „skipulagsins". Pegar Siglfirðingur hafði heiður- inn af því að deila á þann ósið, að láta almanakið eitt saman ráða um söltunarhæfni síldarinnar, var langt frá því, að „auðséð“ væri að síldveiði mundi bregð- ast, svo sem raun varð á, þó nefndin vilji nú svo vera láta, því að greinin var skrifuð á ijórða degi frá því er söltun var leyfð og birtist í blaðinu 3. ágúst eða rdmri viku eftir að söltun hófst. Og má því til sanns vegar færa að greinarhöf. hafi þarna reynzt meiri spámaður en hinar stjórnstimpluðu síldarforsjónir í nefndinni. Er ökki iaust við að kenni all- mikillar drýldni og óþarflega fyrir- ferðamikillar mikilmennsku í skrifi þeirra. Munu margir þeir, er skrif- að hafa um síldarmálin á þessu sumri, hafa fullkomlega eins mikið vit á síld og síldarverzlun eins og sumir nefndarmanna og mun meiri reynslu í þeim efnum. Ættu því hinir háttvirtu nefnd- armenn að leggja sér fast á minni, að það er ekki einhlítt til allrar vizku, þótt þeir hafi orðið fyrir þeim vafasama heiðri að vera fyrir tilhlutun ndverandi óstjórnar til þess kjörnir að standa fyrir einok- un á einni af verðmætustu fram- leiðsluvörum þjóðarinnar. Peir verða líka að hafa það hug* fast, að enda þótt allt sé nd í kalda koli um at'komu síldardtvegsins, þá kostar nefndin og allt þetta „skipulagsumstang" svo mikið té, sem beinlínis er dregiðfrá litilum ágóða dtgerðar og sjómanna, að þess er fastlega vænzt, að störf nefndarinnar sé til meira en lítils hagræðis fyrir þenna þrautpínda atvinnuveg. Og það skal sízt dregið í efa að Frá og naeð 1. þ. m. verður skövinnustofum okkar lokað kl. 6 e. h. alla virka daga nema laugardaga kl. 4 e. h. — Ennfremur hættum við öllum útlánum frá og með deginum í dag. Siglufirði, 1. okt. 1935. Finnur Níelsson. Sumarliði Guðmundsson. Guðlaugur Sigurðsson. \

x

Siglfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.