Siglfirðingur - 11.11.1935, Síða 1
>
VIII. árg.
Sigluíírði, mánudaginn 11. nóv 1935.
36. tbl.
MATTHÍAS JOCHUMSSON.
1835 —11. nóvember — 1935.
Matthías 35 ára.
Matthías 80 ára.
I.
TRLJARSKÁLD.
Eftir séra 'ÓSKAR J. PORLÁKSSON.
Fáir, sem ort hafa sálma 04 trúarljóð á íslenzka
tungu, hafa verið ástsælli meðal almennings en séra
Matthías Jochumsson.
Minnin.í hans sem trúarskálds verður áreiðanlega
ofarlega í hugum margra nú á 100 ára afmæli hans,
og margir munu í anda færa honum innilegar þakkir
fyrir þá hugsvölun og blessun, sem sálmar hans og
trúarljóð hafa veitt þeim.
Séra Matthías var heitur og einlægur trúmaður, er.da
eru sálmár hane framúrskarandi innilegir og andríkir.
Idinar ytri trúarskoðanir hans voru þó mjög mismun-
andi á ýmsum tímum æfi hans. Eftir því sem árin
liðu óx frjálslyndi hans og víðsýni, Mótuðust guðfræði
hugmyndir hans mjög af skoðunum nýguðfræðinga og
unitara. Sérstaklega varð hann fyrir miklum áhrifum
af ritum hins unitariska spekings Dr. Channings, og
taldi hann beztan allra guðfræðinga. Séra Matthías stóð
lengi, því nær einn uppi með skoðanir sínar í ís-
lenzku kirkjunni, og þótti sumum sem honum væri
ofaukið í prestsstöðu, en nú er svo komið, að mikill
hluti íslenzkra presta og íslenzku kirkjunnar hneygist
mjög að slíkum skoðunum og þeim, er hann hafði.
Pessi þróun í trúarskoðunum séra Matthíasar kem-
ur bæði beint og óbeint, fram í sálmum hans og trú-
arljóðum, og þó að trúarlíf hans hafi orðið fyrir áhrif-
um frá öðrum, einkum erlendum guðfræðingum, þá
er hann algjörlega frumlegur sem sálmaskáld.
Mest ber á einlægni og trúarhita í sálmum hans, og
allstaðar slær hið tilfinningarríka hjarta hans. Peir
lýsa auðmýkt hans og lotningu fyrir skaparanum og
sköpunarverkinu. Peir lýsa gleði hans og hrifningu yf-
ir lífinu, sorgum þess og vonbrigðum og eru þrungn-
ir af kjarki og karlmennsku.
Tiltölulega lítið ber á trúfræðilegum skoðunum í
sálmum séra Matthíasar. Mann leggur guðfræðina að
mestu á hilluna, þegar hann yrkir. Hann yrkir aftrú-
arþörf, það er hið einlæga samband hans við Guð,
sem kemur svo vel fram í sálmum hans, og þessvegna
ná þeir svo vel til hjartans. Petta er einn af höfuð-
kostunum við sálrn^ séra Matthíasar. Vegna þess, hve
lausir þeir eru við alla trúfræði, sem sífelt er að
breytast, munu þeir lifa frá einni kynslóð til annarar
og svala trúarþrá manna, því þótt guðfræðin breytist,
þá er trúarþel mannsins gagnvart Guði æ hið sama,
aðeins mismunandi einlægt og þróttmikið.
Að þessu leyti eru sálmar séra Matthíasar einstakir
í sinni röð meðal íslenzks sálmakveðskapar, og eiga
því víst langlífi meðal þjóðar vorrar.