Siglfirðingur


Siglfirðingur - 07.12.1935, Qupperneq 1

Siglfirðingur - 07.12.1935, Qupperneq 1
Jóla Stjórnardaöblaðið ogTíminn höfðu boðað þau fagnáðartíðindi, að nú hefði stjórnin loksfundið nýjar leið- ir út úr fjáhags-öngþveitinu og kreppunni. Pessi tíðindi voru boð- uð skömmu áður en hin nýja fjár- lagauppsuða var lögð fyrir þingið. Pað ráku margir upp stór augu, er þeir litu þenna óvænta boðskap frá stjómarliJinu, því að enda þótt menn bæri lítið traust til stjórnar- innar um flest eða öll þjóðþrifamál. þá munu menn þó langsizt hafa búizt við, að ættjörðin frelsaðist frá yfirvofandi fjárhagsvoða fyrir tilstilli stjórnarl’ðsins. — Sumir gátu þess þá til, að Jónas hefði, ef til vildi, á síðustu ferðareisu sinni, hitt ein- hvern nýjan eldspýtna-Kruger, sem hefði lofað honum peningum handa Framsóknarríkinu íslenzku, gegn því að fá einkarétt til að byrgja hina nýju eldspýtnaeinkasölu að nægum vöruforða, ellegar þá, að Hambro hefði lofazt til að kaupa einkavíxil af Eysteini, — nú ellegar þá — og það var reyndar ólíklegast, — að Sis hefði boðizt til að sletta í ríkis- kassan'öllu er það hefir hagnazt á skattfrelsinu undanfarin ár. Pað gat líka komið til mála, að bitlingalið stjórnarflokkanna hefði boðizt til að láta „flokkssjóðs prosenturnar” renna til rikisins og „liðsforingjarnir" ætl- uðu að gefa landinu þær tekjur sín- ar, er þeir hafa framyfir þurftarlaun venjulegra verkamanna, — það get- ur margt skeð á slíkum vandræða- tímum, og sízt fyrir að synja hvað „foringjar hinna vinnandi stétta“ vilja þungar fórnir á sig leggja fyrir lýðinn blessaðann — og atkvæði hans á næsta dómsdegi. Pað gat líka vel hugsazt, að Jónas hefði á ferðareisunni komið því til leiðár að A. E. G. ætlaði að gefa allan gróðan af raftækjaeinokuninni. Og ef allt brást, þá var þó allfaf eftir „lífsvenjubreytingin", sem sami Jónas fann eittsinn á einni pílagríms- ferðinni í þágu föðurlandsins. Menn vissu ekkijtil að ”lífsvenjubreytingin“ væri ennþá ”praktiseruð“ almennt. Pað gat svo sem margt komiðtil til málá. Og víst var um það, að sjálfur Jónas hafði boðað alveg spánýjan giundvöll til tekjuöflunar og viðreisnar, sem mundi þykja tíðindum sæta og vekja fögnuð meðal landsins þjökuðu barna. Hin vinnandi stétt gat nú loks- ins rétt úr sér eftir alla áþján „í- haldsins" og hina þrautpíndu at- vinnuvegi var nú hægt að reisa úr rústum. Petta var sannarlega lag- lega af sér vikið. Sannarlegur gleði* boðskapur. Stjórn hinna vinnandi stétta hafði sigrazt á örðugleikunum, borgið heiðri sínum og fezt stór- um í sessi, eins og hennar var von og vísa, og — efnt öll kosningalof- orðin! „Dýrðin! dýrðin !“ sungu bitlinga- herforingjarnir um allt landið. „Dýrðin! dýrðin!“ sungu flokks- blöð stjórnarinnar. Já, það var mikið um dýrðir, enda voru jólin í nánd. Pað var sannarlega eftir þeim, blessuðum, að gefa þjóðinni dýr- lega og fagnaðarríka jólagjöf. Svo kom jólagjöfin. Ekki voru það eldspýtnapening- ar, því að Jónas fann nú engan Kruger á meginlandinu. Ekki var það lán frá Hambro, Eysteinn kvað skulda þar yfrið nóg, þótt eigi sé á bætt. Ekki var það fé frá Sís, því að jafnvel þar er líka kreppa, þrátt fyrir skattfrelsið. Ekki voru það gjafa-prósentur frá bitlingahjörðinni, því að hún heimfar meira fé, og flokksjóðirnir aukinn „ágóðahluta", Ekki voru það peningar frá verkalýðsburgeisunum eða „villu“- íbúum Framsóknar, því að þeir hafa nú flestir verið á flótta með fé sitt út úr landhelginni, í stað þess að leggja það í íslenzkar bankastofnanir. Pað er tryggara. Ekki voru það peningar frá A. E. G., því að það upplýstist við útvarpsumræðurnar að sá „ágóði" væri tekinn i beinni vöruálagningu svona allt upp í 375 prc. Og ekki gat það verið „lífsvenju- breytingin“. Pvi að Hambro kvað þverneita að taka það „experi- ment“ upp í skuldir, sérstaklega at því, að það hefir ennþá aldrei komið til framkvæmda. Og svo eru fyrirliðarnir ennþá gráðugri í fjársöfnunina en nokkru sinni fyr. Pað er í rauninni mynd- uð hér heil stétt, er kalla mætti proletar-aristokrati.* Eru þar í flokki allir mestu auðsafnendur þessarrar þjóðar, en telja sig jafnframt for- ingja og forsvarsmenn öreiganna og vinnandi stéttanna. Dýrðin! dýrðin! „Sjá! Eg flyt yður mikinn fögn- uð!“ segir stjórnin! Dýrðin! dýrðin! Svo kom bjargræðið. Pegar búið var að fletta það umbúðunum — skruminu, komu í Ijós — nýir skattar, nýir h á t o 11 a r — nýtt fjáraflarán — nokkurskonar lögtak á síðasta eyri fátæklingsins. Síðasta öryggistaug atvinnuveganna þverskorin- sundur. Petta var nýja bjargræðið. Petta var hið spánnýja bjargráða- fyrirkomulag stjórnarliðsins. Ráðið til að bæta úr vandræð- unum var í stuttu máli þetta: Tekjuskattur var hækkaður. Nýir tollar lagðir á þvinær allar nauðsynjavörur almennings frá 2 og upp í 25 prc. af söluverði. Petta þýðir almenna verðhækk- un á brýnustu lífsnauðsynjum. *) Þ. e. öreiÉ«-yfirstétt. \

x

Siglfirðingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.