Siglfirðingur


Siglfirðingur - 11.04.1936, Blaðsíða 3

Siglfirðingur - 11.04.1936, Blaðsíða 3
SIGLFIRÐINGUR 3 TILKYNNIN G um síldarloforð til Síldarverksmiðja rikisins. Peir, sem vilja lofa síld til vinnslu í Síldarverksmiðjur ríkisins á næst- komandi sumri, skulu, innan 15. maí n. k„ hafa sent stjórn verksmiðj- anna símleiðis eða skriflega tilkynningu um það. Ulgerðarmaður skal til- kynna hvaða skip hann ætlar að nota til veiðanna, einnig hvort hann vill skuldbinda sig til þess að afhenda verksmiðjunum alla bræðslusíldar- veiði skips síns eða skipa. eða aðeins hluta veiðinnar, eða alla síldveið skips eða skipa. F*au skip, sem afhenda verksmiðjunum alla veiði sína, eða alla bræðslusíldarveiði sína, ganga að jafnaði fyrir þeim skipum með samninga og afgreiðslu, sem aðeins hafa verið skuldbundin til að afhenda hluta af bræðslusíldarveiði sinni, eða hafa enga samninga gert fyrirfram. Verði meira framboð á síld, en stjórn verksmiðjanna telur sýnilegt að verksmiðjurnar geti unnið úr, hefir stjórnin óbundnar hendur til að á- kveða, af hve mörgum skipum verksmiðjurnar taki síld til vinnslu. Ef um framboð á síld til vinnslu er að ræða frá öðrum en eigendum veiði- skipa, skal sá, er býður síldina fram til vinnslu, láta skilríki fylgja fyrir því, að hann hafi umráðarétt á skipinu yfir síldveiðitímann. Stjórn verksmiðjanna tilkynnir fyrir 1. júní n. k. þeim, sem boðið hafa fram síld til vinnslu í verksmiðjurnar, hvort hægt verði að veita síldinni móttöku, og skulu allir þeir, sem lofað hafa síld til verksmiðjanna, og stjórnin hefir ákveðið að taka síld af, hafa innan 20. júní n. k. gertsamn- ing við stjórn verksmiðjanna um afhendingu síldarinnar. Að öðrum kosti er verksmiðjunum ekki skylt að taka á móti lofaðri síld. Siglufirði, 8. apríl 1936. Stjórn Síldarverksmiðja ríkisins. Pormóður Eyólfsson, p. t. formaður. Skattaskráin. Skrá yfir tekju- og eignaskatt i Siglufjarðarkaupstað fyrir árið 1935, liggur frammi — almenningi til sýnis — á skrif- stofu bæjarfógeta næstu tvær vikur. Á sama stað og tíma liggur frammi skrá yfir iðgjöld til Lífeyrissjóðs íslands, samkv. lögum nr. 26. 1. febr. 1936. Kærur yfir skattinum eða iðgjaldinu skulu vera komnar á skrifstofu bæjargjaldkera fyrir kl. 12 á hádegi laugardaginn 25. þ. m. Siglufirði, 10. apríl 1936. Skattanefndin. Spegillinn etn>r til happdrættis í tilefni af 10 ára afmæli sínu. Síðasta blað Spegils var lölusett happdrættisnúmerum og gildir sem happdrættismiði. Hæsti vinningur er allir 10 árg. Spegilsins frá upphafi. Sjálfum sér líkir. Á síðasta bæjarstjómafundi var samþykkt, að ganga í allt að 210 þús. króna bakábyrgð ríkissjóðs fyrir s.f. Tunnugerð Sigluíjarðar, með nán- ar settu skilyrðum. Komu fram tvær tillögur þess efnis, ein frá Fram- sóknarmönnum, er var samþykkt og önnur frá Sjálfstæðismönnum, er var felld. — Pað var »rauða samfylking- in« en ekki sú „svarta", sem þarna var að verki, en eftir á mun það orðið flestum Ijóst. að tillaga Sjálf- stæðismanna var mun betri í garð tunnuverksmiðjunnar. Á fundi þessum var rætt fram og aftur um skilyrði fyrir tunnusmíði hér í bæ. Voru flestir bæjarfulltrúar sammála um, að gera allt er í bæjar- arins valdi stendur til þess að hlynna að aukinni tunnusmíði, enda ekki ó- hugsandi, að hægt verði, að smíða tunnur handa saltendum utan bæjarins, þegar rafveitumálin hér eru komin í í gott horf og jafnvel fyr. Það vakti því talsverða undrun, þegar fulltrúi Alþýðuflokksins Jóhann Guðmundsson bar fram eftirfarandi tiilögu: „Bæjarstjórn samþykktir, að beita sér fyrir því, að ekki verði reist hér önnur tunnuverksmiðja á staðnum fyr en tunnuverksmiðja sú, sem þegar er fyrir er starf- rækt með fullum krafti og reynd er fengin fyrir því, að frekari tunnusmíði sé hagkvæmt frá sjónarsviði verkamanna.* Þegar þrír fulltrúar, hver úr sínum flokki, höfðu sýnt fram á, með auð- fundnum rökum, hvílík fjarstæða það væri, að samþykka aðra eins tillögu og þessa, kom varafulltrúinn flutn- ingsmanni til hjálpar og dró tillöguna til baka. Það er erfitt að sjá, hvað vakað hefir fyrir fulltrúa Alþýðuflokksins, þess ftokks, sem sí og æ er að hampa * Leturbreyting mín. A. S.

x

Siglfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.