Morgunblaðið - 25.03.2011, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MARS 2011
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Páll E. Winkel, forstjóri Fangelsis-
málastofnunar, er algjörlega andvíg-
ur því að nýju fangelsi verði fundinn
staður í gamla Sjafnarhúsinu á Ak-
ureyri. Í minnisblaði sem hann sendi
innanríkisráðherra fyrir skemmstu
bendir hann á að fangar eigi rétt á
lágmarks mannréttindum og verði
ekki „vistaðir sem hver annar búpen-
ingur“.
Í Morgunblaðinu í gær kom fram
að eigendur Sjafnarhússins hafa ósk-
að eftir viðræðum við innan-
ríkisráðuneytið um hugsanlega leigu
á húsinu undir fangelsi.
„Ég nenni varla að taka þátt í þess-
ari umræðu lengur. Það þarf að
standa faglega að þessu og byggja
sérhannað fangelsi. Ekki taka í notk-
un gamla ísbrjóta, gáma eða annað
húsnæði langt frá höfuðborgarsvæð-
inu,“ sagði Páll um þessa hugmynd.
Hann benti á að nýbúið væri að end-
urnýja fangelsið á Akureyri en það
gæti tekið á móti öllum föngum af
Norðurlandi.
Mikill kostnaður við breytingar
Hugmynd um að nota gamlar
vinnubúðir Alcoa á Reyðarfirði sem
fangelsi voru kynntar fyrir innan-
ríkisráðuneytinu fyrir skömmu. Af
því tilefni sendi Páll minnisblað til
innanríkisráðherra þar sem rök gegn
því eru tíunduð í tólf liðum en hann
sagði að þau ættu að mestu einnig við
um Sjafnarhúsið.
Í minnisblaðinu er m.a. bent á
kostnað vegna ferða til og frá Austur-
landi, að á Austurlandi séu engir
menntaðir fangaverðir og ekki liggi
fyrir hvort nægilega margir myndu
sækjast eftir slíku starfi. Við bætist
að flestir lögmenn séu á höfuðborg-
arsvæðinu en málskostnaðarliður
vegna ferða lögmanna myndi marg-
faldast ef þeir þyrftu að eyða heilu
dögunum í ferðalög vegna þjónustu
við fanga. Kostnaður við breytingar á
eldra húsnæði væri mjög hár og
nefndi Páll sem dæmi að áður en
Bitra var tekin í notkun sem bráða-
birgðafangelsi þurfti að breyta bygg-
ingunni fyrir sem svarar einni milljón
á hvert fangarými. Páll benti einnig á
að um 80% fanga kæmu af höfuðborg-
arsvæðinu. Það væri mat Fangelsis-
málastofnunar að það væri gróft brot
á mannréttindum fanga ef þeim yrði
gert að afplána svo langt frá fjölskyld-
um sínum. Konur sem eru í afplánun
fái margar hverjar börn sín reglulega
í heimsókn og í vissum tilvikum feður
einnig. Óhægara yrði um vik fyrir
barnaverndaryfirvöld að flytja börn
reglulega til Reyðarfjarðar til að eiga
samvistir við foreldra undir eftirliti.
Kostnaður barnaverndaryfirvalda
myndi að auki hækka verulega og
sömuleiðis kostnaður aðstandenda við
heimsóknir. Það væri til þess fallið að
minnka samskipti fanga við fjölskyld-
ur sínar, sem gengi þvert gegn mark-
miðum stofnunarinnar.
Fangar eru ekki búpeningur
Fangelsismálastjóri vill ekki að fangelsi verði tekið í notkun í eldra húsnæði
langt frá höfuðborgarsvæðinu Dregur úr samskiptum fanga við fjölskyldur
„Fangar eiga rétt
á tilteknum lág-
marksmannrétt-
indum“
Páll Winkel
Gísli Örn Garðarsson, leikari og leikstjóri, hlaut í gær
Íslensku bjartsýnisverðlaunin fyrir árið 2010. Frú Vig-
dís Finnbogadóttir, formaður dómnefndar, afhenti
verðlaunin við hátíðlega athöfn í Iðnó og færði hún
Gísla Erni áletraðan verðlaunagrip úr áli og verð-
launafé að upphæð ein milljón króna.
Aðrir í dómnefndinni voru Rannveig Rist, Sveinn
Einarsson og Örnólfur Thorsson. Bjartsýnisverðlaunin
voru fyrst afhent árið 1981 en Alcan á Íslandi hefur
verið bakhjarl þeirra frá árinu 2000.
Forseti Íslands hefur frá upphafi verið verndari
þeirra.
Gísli Örn hlaut bjartsýnisverðlaunin
Morgunblaðið/Sigurgeir S
Veitingarekstur við Austurvöll virðist ganga brösulega
þessi misserin. Hafa að minnsta kosti þrír staðir þar ver-
ið teknir til gjaldþrotaskipta frá því í nóvember í fyrra.
Hinn 16. mars úrskurðaði Héraðsdómur Reykjavíkur
að Eignarhaldsfélag Miðborgar, sem átti Kaffi París, yrði
tekið til gjaldþrotaskipta. Að sögn Grétars Berndsens,
veitingastjóra staðarins, var reksturinn keyptur af nýju
félagi, LIDUS-veitingum, um mitt síðasta ár.
Þá voru Veitingahúsið Austurvelli Reykjavík, sem rak
Óðal, og Nasaveitingar, sem ráku skemmtistaðinn Nasa,
einnig tekin til gjaldþrotaskipta í nóvember og janúar.
Gengur víða illa í miðborginni
Það er ekki bara við Austurvöll sem veitingarekstur
hefur gengið erfiðlega. Hinn 16. febrúar voru skemmti-
staðirnir Hverfisbarinn við Hverfisgötu og Glaumbar við
Tryggvagötu báðir teknir til gjaldþrotaskipta. Í stað
þeirra eru komnir skemmtistaðurinn Bankinn bar og
tónleika- og skemmtistaðurinn Risið.
Þá var félagið Espresso ehf., sem áður átti kaffihúsið
Segafredo við Lækjartorg, tekið til gjaldþrotaskipta í
byrjun mars. Hafði reksturinn tvisvar skipt um eigendur
frá því að Espresso átti hann. Síðasti rekstraraðili kaffi-
hússins, Norðurbrú, var tekinn til gjaldþrotaskipta 4.
mars. Engin starfsemi er eins og er þar sem kaffihúsið
var til húsa á Lækjartorgi 5. kjartan@mbl.is
Veitingarekstur við Aust-
urvöll gengur misjafnlega
Morgunblaðið/Frikki
Kaffihús Vinsælt er á sumardögum að sitja úti við Aust-
urvöll. Þó eru nokkur veitingahús þar nú gjaldþrota.
Margir staðir teknir til
gjaldþrotaskipta undanfarið
Frá og með aprílmánuði munu allir
viðskiptavinir Vodafone sem hafa
myndlykil frá Digital Ísland greiða
svokallað grunngjald sjónvarps-
þjónustu. Hingað til hafa þeir
áskrifendur sem kaupa áskrift hjá
Skjá einum eða 365 miðlum ekki
þurft að greiða sérstaklega fyrir
lykilinn en aðrir, sem nota lykilinn
fyrir aðra þjónustu en innlendar
áskriftarstöðvar, greitt 797 krónur
á mánuði fyrir.
Við þessa breytingu lækkar
grunngjaldið í 549 krónur en að
sögn Hrannars Péturssonar, upp-
lýsingafulltrúa hjá Vodafone, er til-
gangur breytingarinnar m.a. sá að
koma á jafnræði meðal viskiptavina.
Þessum tekjum sé ætlað að standa
undir rekstri og endurnýjun á kerf-
inu og ekki sé sanngjarnt að al-
mennir notendur, sem kaupi ekki
áskrift hjá sjónvarpsstöðvunum,
greiði niður notkun hinna.
Síminn tók upp samskonar
grunngjald 1. febrúar og greiða
notendur Sjónvarps Símans 435
krónur á mánuði fyrir þá þjónustu.
Bæði Síminn og Vodafone eru með
dreifisamninga við íslensku sjón-
varpsstöðvarnar en samkvæmt upp-
lýsingum frá Skjá einum og 365
miðlum hefur upptaka grunngjalds-
ins engin áhrif á þá samninga.
Áskrifendur Skjás eins eru um
25 þúsund og skiptir um það bil
helmingur við hvort símfyrirtæki.
Því má gera ráð fyrir að tekjur
Símans af innheimtu gjaldsins frá
viðskiptavinum Skjásins verði um
5,4 milljónir á mánuði og tekjur
Vodafone um 6,8 milljónir. Sam-
kvæmt upplýsingum frá 365 miðl-
um hefur um helmingur lands-
manna aðgang að læstri dagskrá en
þeir gefa ekki upp áskrifendafjölda
né liggur það fyrir hversu margir
viðskiptavina þeirra skipta við
hvort símfyrirtæki.
holmfridur@mbl.is
Innheimta
gjald fyrir
myndlykla
Símfyrirtækin taka
upp grunngjald
Morgunblaðið/ÞÖK
Önnur kynslóð iPad-spjaldtölv-
unnar frá Apple kemur fyrir sjónir
Íslendinga í dag, en eftir klukkan
17 gefst áhugasömum færi á að
kynna sér hana í verslun Epli.is við
Laugaveg. Langir biðlistar mynd-
uðust um allan heim eftir að Steve
Jobs, forstjóri Apple, kynnti iPad 2
fyrir nokkrum vikum. Íslendingar
eru þar engir eftirbátar, og ljóst að
eftirvæntingin er nokkuð mikil.
Hin nýja tölva er töluvert full-
komnari en hinn upprunalegi iPad,
sem kom á markað á fyrri hluta síð-
asta árs. Á meðal breytinga má
nefna tilkomu myndavéla að fram-
an og aftan auk þess sem tölvan er
búin tveggja kjarna A5-örgjörva,
sem eykur vinnsluhraða til muna.
Þrátt fyrir aukin afköst og notk-
unarmöguleika er tölvan um þriðj-
ungi þynnri en fyrsta útgáfan var
og nokkru léttari. Skjástærð er
hins vegar sú sama. Uppgefin raf-
hlöðuending iPad 2 í notkun er um
tíu klukkustundir, sem er sambæri-
legt við það sem fyrir var.
iPad 2-spjaldtölvan
afhjúpuð í dag
iPad Nýja útgáfan býður meðal
annars upp á myndsamtöl.
Holtagörðum 2. hæð • Sími 512 6800 • www.dorma.is
25%
afsláttur
Ilmur
mánaðarins