Ný saga - 01.01.1988, Síða 25

Ný saga - 01.01.1988, Síða 25
TOGARAÚTGERÐ Á TÍMAMÓTUM skyndileg viðbrögð við óvæntu áhugaleysi þess árið 1945, heldur aðgerðir byggðar á áratuga reynslu. Loks skipti búsetuþróunin í landinu undanfarna áratugi verulegu máli. Stöðugur straumur fólks úr sveitum og sjávarplássum hafði legið til þéttbýlisstaða við Faxaflóa, fyrst og fremst Reykjavíkur. Fólksflutningarnir höfðu mikil áhrif á aðgerðir sveitar- stjórna úti á landi. Almennt var álitið, að togaraútgerð væri kröftugasta meðalið gegn flóttanum til suðvesturhorns- ins. Um það vitna m.a. fjölda- mörg þingmál, einkum frá sjötta áratugnum, þegar tog- ararnir voru orðnir sannköll- uð „óskabörn" byggðastefn- unnar í landinu.38 Bœjarútgerð Reykjavíkur var auðvitað ekki stofnuð til að stöðva fólksflóttann af landsbyggð- inni, en engu að síður út frá sömu forsendum og önnur út- gerðarfyrirtæki sveitarfélaga. Bæjarfélagið vildi stuðla að öflugu atvinnulífi og bættum lífskjörum bæjarbúum til handa. VARANLEG UMSKIPTI A næstu árum kom í ljós að breytingarnar á togaraútgerð- inni voru engin tilviljun. Stjórn Stefáns Jóhanns Stef- ánssonar hélt áfram uppbygg- ingu togaraflotans og samdi um kaup á tíu togurum í Bret- landi árið 1948. Þeir komu til landsins á árunum 1951— 1952. Fyrirtæki sveitarfélaga keyptu átta, en einkafyrirtæki aðeins tvo. Arið 1953 var svo komið, að bæjarútgerðir áttu hvorki meira né minna en nítján togara og hlutafélög í meirihlutaeigu sveitarfélaga níu. Aðeins sautján togarar voru gerðir út á vegum einka- fyrirtækja.39 Ríkisvaldið og sveitarfélög- in höfðu tekið upp nýja stefnu. Einkaframtakið var ekki eitt um það lengur, að byggja upp og reka undir- stöðuatvinnuveg þjóðarinnar. Því var ekki treyst til þess, að axla þá ábyrgð á árunum eftir stríð. Og frammistaða einka- framtaksins, a. m. k. í togara- útgerðinni, gaf ástæðu til að ætla, að hin nýja stefna mikilla opinberra afskipta væri á rök- um reist.40 Togarar gerðir út árið 1953. Rekstrarform og dreifing um landið. Heimild: Þorleifur Óskarsson: Þættir úr sögu íslenskrar togaraútgerðar 1945-1970. Kandídatsritgerð í sagnfræði, H.í. 1987, 212. Saga undanfarinna áratuga hafði leitt í Ijós, að einkaaðilar væru ekki einfærir um að tryggja nægilega festu og öryggi í atvinnumálum. Einkaframtakið var ekki eitt um það lengur, að byggja upp og reka undirstöðuatvinnuveg þjóðarinnar. 23
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Ný saga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.