Ný saga - 01.01.1993, Blaðsíða 24

Ný saga - 01.01.1993, Blaðsíða 24
Unntir Björk Lárusdóttir Snorralaug. Áríð 1862varhún aðeins notuð til að skola úrskít- ugum fötum, en enginn lét sér detta í hug að liggja í henni að sið Snorra Sturlusonar forðum daga. Magnús Stephensen leggur hins vegar minni áherslu á þrif fullorðinna. Hann nefnir það reyndar að böö geri fullorðnum tæplega nema gott eitt og þau séu sérlega heilsusamleg ef sjúkleika beri að höndum.17 Vatnið virðist að mati hans og margra annarra hafa styrkjandi á- hrif og nærandi. Þannig telur séra Björn Páls- son að umgangspestir nái lítilli fótfestu í Þing- vallasókn um 1840 vegna „hreina og góða” vatnsins í Þingvallavatni. Að hans mati mundi það „máske draga til sín illskudampa, en frá mönnum.”1" Hann hefur ákveðnar skoðanir á heilnæmi vatnsins og gengur jafnvel svo langt að telja það hina mestu hneisu að menn skuli ekki gera sér jarðböð eða laugar, svo mikið sem sé nú af vatni og hverum á Iandinu. í sama streng tekur Jón Hjaltalín landlæknir, en hann segir: Jeg þori óhœtt að fullyrða það, að ef menn héldu uppi venju forfeðra vorra, og geng/u í laugar að minnsta kosti einusinni í hvörjum mánuði, þá mundu hœði kláiði og aðrir hör- unds kvillar verða lángtum sjaldgœfari á ís- landi; og það er undarlegt, að fólk. ek.k.i skiþtir sér af þessu, jafnvel þó náttúran á mörgum stöðum minni þá á það með heita hveravatn- inu."’ Menn virtust þannig ekkert draga í efa laug- arferðir fornmanna og voru sumir meira að segja á því að slíkt væri ekki aðeins líkaman- um hollt heldur og andanum. Sveinn Páls- son, settur landlæknir, telur áriö 1803 aö: Innflutningur 1840-1872 Sápa, kaffi og tóbak Hreinlœti... [styrki] heilsu manns og skynsemi; ... [auki] hanns náttúrugiœði, glaðsinni og iðiusemi ... í einu orði: hreinlát manneskia einúngis nœr sinni ásköþuðu, há-dýrmœtu fullkomnun, og nýtur lífsins í allri þess yndœl- is og farsœldar fyllingu.1" Sveinn nefnir líka laugarferðir fólks laust tyrir 1800, er liann fjallar um Laugarnes, ann- exíu frá Reykjavíkurdómkirkju. Segir hann menn sækja þar í heita laug við Laugarhól til að javo þvott, en einnig bregði menn sér í laugina og hafi af því mikið gaman. Sú ánægja vildi þó verða lævi blandin því einhverjir eiga að hafa látið lífið af þvi að joeir sátu of lengi í heitu vatninu.21 Snorralaug í „aumkunarverðu ástandi” Gamlar laugar fengu sums staðar að falla sam- an og menn eins og ferðamaðurinn C. W. Shephard hörmuðu örlög þeirra. Hann segir um Snorralaug í Reykholtsdal árið 1862 að hún sé í „aumkunarverðu ástandi ... einungis notuð til aö skafa úr óhreinum fötum.”22 Þaö vorti joví breyttir tímar frá J:>ví að Snorri og aðrir höfðingjar gáfu sér tíma til laugar- ferða, menn máttu varla vera að því að jwo sér. Fólk sparaði vatnsburðinn sem mest það mátti, ef það átti þess ekki kost að leggjast í volga laug, og vísast hafa menn forðaðist sóun 22
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Ný saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.