Siglfirðingur - 25.03.1955, Síða 4
4
SIGLFIRÐINGUR
Opið svarbréf
til hr. Vigfúsar Friðjánssonar
Það fór sem mig grunaði, Vig-
fús, að það varð lítið úr rök-
semdafærslunni hjá þér í seinasta
bréfi, sem þú birtir í ,,Mjölni“, og
tel ég litla ástæðu til þess að fara
að svara vaðli þínum þar, enda
ert þú nú fallinn frá öllum stóru
orðunum, sem að þú skrifar í
bréfinu til bæjarstjórnarinnar.
Þó langar mig aðeins til þess
að leiðrétta hjá þér tvennt, sem
kemur fram, og sem þú segir, að
ég fari rangt með. f fyrra tilfell-
inu er það um umsókn þína um
atvinnubótafé, sem að þú segist
hafa sótt um löngu fyrr en ég
tilgreini. Samt er það nú svona,
að umsókn þín fyrir meðmælum
með atvinnubótafé fyrir þeim bát,
sem þú ert búinn að fá leyfi til
að kaupa frá útlöndum, kom ekki
fyrr en 10 dögum eftir að bæjar-
ráð hafði samþykkt samhljóða að
mæla ekki með frekari umsóknum
en komnar voru. Þetta getur þú
fengið að sjá í bókum bæjarins,
og því verður ekki haggað. Hitt
er svo annað mál, að þú hefir
verið sí mjálmandi um atvinnu-
bótafé og meðmæli til þeirra, út á
allskonar hluti, en ég man ekki
hvenær þú hófst þau viðskipti.
Þá er hitt atriðið, sem þú telur
mig fara rangt með, og er um
skilyrðabréf þitt til bæjarstjórnar-
innar og hlutaf járframlag þitt í
væntanlegum togarakaupum. Þar
sagði ég, að eitt skilyrðið væri, að
þú ákveðir sjálfur hvað hlutaféð
verði mikið í væntanlegu hlutafé-
lagi. Þú ert svo tillitssamur við
mig að prenta upp skilyrðabréfið,
og segir ■ þar í 2. grein orðrétt:
,,Að hlutafjárupphæð væntanlegs
tógarafélags verði ekki hærri en
hlutafélag þess, sem kaupir b.v.
Vilborgu Herjólfsdóttur". Þessa
grein telur þú nauðsynlegt að hafa
til þess að ég og bæjarstjóri gæt-
um ekki haft það sem afsökun
síðar, að hlutaféð væri alltof lágt,
og því ekki hægt að fá togara
keyptan, og notað þannig þetta
nauðsynjamál í blekkingaskyni.
Hver skilur svona málflutning, og
í hvaða tilgangi er hann framsett-
ur. Það verður að minnsta kosti
að ætlast til þess af þér, að þú
skrifir þannig, að úr setningum
fáist heil hugsun, en ekki mót-
sagnakenndur vaðall. En mér. er
nær að halda, að tilgátan í bréfi
mínu um daginn sé rétt, að þú
hafir strax verið kominn á stað
með að tryggja þér meirihlutavald
í fyrirhuguðu hlutafélagi.
Þar sem við erum farnir að
skrifast á, þá langar mig til að
forvitnast ósköp lítið um hjá þér,
Vigfús minn, og gætir þá fyrst
þess ótsöðuglyndis sem ég verð
var við hjá þér, eða að þú ert
alltaf á eilífum hlaupum úr einu
í annað. Einu sinni byrjaðir þú
t.d. að kaupa saltfisk og verkaðir
hann hér á staðnum í þurrkhúsi
þínu, en ekki leið á löngu þar til
að þú gafst upp á þeim atvinnu-
vegi. Þá fórstu að kaupa hjalla
og herða fisk í stórum stíl, en
það fór á sömu leið, og hjallana
seldir þú. Eitt sinn varstu kom-
inn í fiskkaupafélag með kunningj
um þínum, virtist það blómgast
og dafna vel, en einn góðan veður-
dag heyrði maður, að það væri
lagt niður. Vel á minnst, keyptir
þú ekki einu sinni bát, Vigfús,
sem að þú svo stofnaðir um hluta-
félag með félögum þínum ein-
hverjum. Báti þessum var lítið
róið, en þegar hann hafði legið
bundinn sem fastast við bryggju
í lengri tíma, þá sást þú þér þann
hag vænstan að láta auglýsa hann
í Lögbirtingablaðinu til uppboðs
fyrir einhverjum lítilsháttar kröf-
um, sem þú áttir hjá þínu eigin
félagi. Bátur þessi var seldur á
uppboði, og nú heyri ég sagt, að
hann sé kominn í hendur dugn-
aðarmanna, sem róa honum til
fiskjar af mikilli hörku og fyrir-
hyggju. Eg vona, að hinir nýju
eigendur séu ánægðir með kaupin
í 3. tölubl. Mjölnis reynir ein-
hver Skuggasveinn, bersýnilega
fremur af vilja en mætti, að snúa
út úr ummælum, sem ég lét falla
á sameiginlegum fundi iSjálfstæðis
félaganna í janúar s.l. í sambandi
við rekstur togara bæjarútgerðar-
innar hér. Á fundi þessum stað-
hæfði ég og staðhæfi enn, að eins
og nú standa sakir sé ekki önnur
leið til, til áframhaldandi rekst-
ur bæjartogaranna en að fela
hann S.R. svo sem verið hefur
síðan vorið 1953. Það þarf áreið-
anlega ekki að lýsa því enn einu
sinni fyrir Siglfirðingum, hvers-
vegna rekstur skipanna var falinn
S.R. á sínum tíma og hversvegna
svo er enn. En ef ,,Skuggi“ er
óvenjulega illa að sér um þessi
efni, svo sem hann virðist vera,
eftir skrifum hans að dæma, þá
get ég sagt honum, að fjárhagur
Bæjarútgerðar Siglufjarðar var
árið 1953 orðinn svo þröngur, að
leita varð á náðir ríkisstjórnar-
innar um aðstoð til þess að ekki
yrði þá þegar í stað gengið að
skipum útgerðarinnar og þau seld
úr bænum.
og óska þeim alls hins bezta með
vaxandi útgerð sína, og að þeir
megi verða máttarstólpar í út-
gerðarmálum Siglfirðinga í fram-
tíðinni.
Ekki get ég heldur skilið, að
maður eins og þú sért snap-
andi eftir atvinnubótafé á öllum
tímum, maður, sem vilt leggja
upp undir hálfa milljón í togara-
félag, rekur hér stóra síldarsölt-
un, ert í heildsölufyrirtæki og
vilt kaupa til landsins að minnsta
kosti 2 fiskibáta, sem kosta að
líkindum um 1 milljón króna hvor,
og átt þar að auki stærsta bóka-
safn, minnsta kosti hvað snertir
lengd eða metratal, sem er í eins
manns eigu hér á Siglufirði. Er
það satt, Vigfús, að þú eigir líka
í stórfyrirtækjum úti í Belgíu?
Hvenær koma stórframkvæmd-
irnar á Siglufirði?
Eða er þetta allt ein leiksýning
hjá þér og sýndarmennska til að
telja fólki trú um, að þú sért
stórauðugur.
Mér finnst þú vera dálítið mið-
ur þín í seinasti bréfi, eða ertu
bara svona reiður Vigfús? Þú ert
þar með fáránleg orð og orða-
sambönd. En það getur oft verið
varhugavert, og ekki sízt af því
að maður getur fengið leiðinda
viðurnefni af sínum eigin orðtækj-
um. Hvað heldur þú nú um það,
ef að þessi bréf okkar lægju ein-
hversstaðar á glámbekk og ein-
hver óviðkomandi kæmist í þau,
og upp frá því yrðirðu kallaður
Vigfús tittiingaskítur.
Með vinsemd,
Hin umbeðna aðstoð var veitt
þá og aftur nú alveg nýlega í
mjög stórum stíl, en með því skil-
yrði, að S.R. og framkvæmda-
stjóri verksmiðjanna Sigurður
Jónsson hefðu reksturinn með
höndum fyrir bæinn. Setti ríkis-
stjórnin þessi skilyrði, eftir að
hæfir menn, sem hún fól að at-
huga mál bæjarútgerðarinnar, —
höfðu skýrt henni frá, að þeir
teldu S.R. með Sigurð Jónsson
sem framkvæmdastjóra hafa bezt
skilyrði til að reka skipin af þeim
aðilum, sem völ var á á staðnum.
Iþessu horfi eru mál bæjarút-
gerðarinnar og rekstur skipa
hennar enn í dag og hygg ég, að
það sé fyrst nú, sem bæjarbúar
sjá og verða þess varir, allt frá
því að bæjarútgerðin var stofnuð,
hvers togararnir eru megnugir, ef
þeir eru reknir af fullum krafti
og leggja upp afla sinn í heima-
höfn.
„Skuggi“ veit það ósköp vel,
að tilvitnuð ummæli mín um
rekstur bæjartogaranna áttu
aðeins við þá og engin önnur skip,
enda getur hann þess fyrst í grein
Fyrirspum Jpnis“
um kaup á húsi Jóns Kjartans-
sonar fyrir elliheimili.
1 síðasta blaði „Mjölnis“ er spurt
um hvað líði kaupum á ofannefndu
liúsi. Segist hlaðið hafa áður beint
þessari fyrirspurn til „Siglfirðings“
um hvað meirihluti bæjarstjórnar ætli
sér fyrir í þessu efni. „Siglfirðingur"
veit ekki til þess, að þessi húsakaup
liafi komið fyrir bæjarráð eða bæjar-
stjórn, og heldur ekki um það fjallað
í meirihluta bæjarstjórnar.
„Mjölni“ er sjálfsagt kunnugt um
það, að í Elliheimilismálinu var kos-
in nefnd. 1 lienni er meðal annars
einn vandamanna „Mjölnis". Ættu
því að vera hæg heimatökin hjá blað-
inu að forvitnast um það lijá honum.
Ý Andlát. I gærmorgun lézt að
heimili sínu, Túngötu 18, frú Pá-
lína Jónsdóttir, eftir langa van-
heilsu. Pálína var sjötug að aldri.
sinni, að ég hafi rætt um bæjar-
útgerðina og sagt það, sem hann
vitnar í, í sambandi við skip
hennar.
Fari svo, sem vonandi verður
sem fyrst, að Siglfirðingar beri
gæfu til að eignast og reka þriðja
togarann, er sannarlega vonandi,
að rekstur hans komizt aldrei í
þau vandræði, sem bæjarútgerðin
var komin í 1953 og urðu til þess
að S.R. var falin rekstur skipa
hennar. Þegar þess er gætt, að
þau ummæli, sem „Skuggi“ hefir
eftir mér eiga einungis við skip
bæjarútgerðarinnar, sem S. R. var
á sínum tíma falið að reka vegna
yfirvofandi stöðvunar skipanna,
verða tilburðir þessa manns til að
reyna að túlka orð mín á þá leið,
að undir engum kringumstæðum
sé öðrum treystandi til þess að
reka togara en S.R. — fáránlegir
útúrsnúningar.
Getsökum skuggamannsins um,
að full heilindi liggi ekki á bak
við áhuga Sjálfstæðismanna hér
fyrir að fá þriðja togarann í bæ-
inn, hygg ég, að óþarft sé að
svara. Þó vil ég benda „Skugga“
á, að aðrir en Sjálfstæðismenn, og
þeir sem sennilega standa honum
nær, hafa til þessa fremur verið
bendlaðir við sýndarmennsku og
sýndartillögur en Sjálfstæðis-
menn.
Dettur mér þó ekki í hug að
halda því fram, að flokksbræður
þessa greinarhöfundar vinni ekki
af heilindum að lausn þessa nauð-
synjamáls. I máli sem þessu, er
áríðandi, að allir bæjarbúar sam-
einist í starfinu um lausn þess,
ef baráttan fyrir málefninu á
nokkurn árangur að bera. Er það
því í meira lagi óeðlilegt og
óheppilegt, að þeir, sem saman
eiga og þurfa að starfa, taki upp
á því, mitt í starfinu að bregða
hverjum öðrum um óheilindi og
fláttskap.
Einar Ingimundarson,
Ölafur Ragnars
Sfuft svar tiE „Skugga"