Siglfirðingur


Siglfirðingur - 06.08.1955, Blaðsíða 2

Siglfirðingur - 06.08.1955, Blaðsíða 2
2 SIGLFIRÐINGUR sem liðin eru síðan farið var að nota þetta veiðarfæri hér við land, hafa rerið gerðar á því iniklar endur bætur, oa einnie á nótabátunum, sem lierpinótinni er kastað úr. Þá hefur oa hringnótin, sem er afbrigði hrepiaótarinnar, einnig reynst vel, og mjög rutt sér til rúms hin síðari ár, svo að meginn hluti þeirra skipa, sem gerður er út á síldveiðar fyrir Norðurlandi er búinn hringnótum. Flest nota hringnótaskipin sérstak- an nótabát til að kasta nótinni úr, nema m.s. Fanney, sem kastar nót- inni af sérstökum pali aftan á skip- inu eins og tíðkast hjá sildveiði- skipum á vesturströnd Ameríku. — Fanney er eign S.R. og Fiskimála- sjóðs, smíðuð 1945 með amerísku lagi síldveiðiskipa undir eftiriti Ingvars Iíinarssonar, sem var fyrsti skipstjóri á skipinu og sannaði, að hér mátti veiða með þessari aðl'erð. , Segja má, að síldveiði Islendinga sjálfra hefjist ekki fyrir alvöru, fyrr en skömmu eftir að Norðmenn fóru að beita herpinótinni við veiðarnar hér við land. Fyrstu tilraunirnar með herpinótaútgerð gerðu Ágúst Flygen- ring og bræðurnir Sveinn og Jón Einarssynir 1906. Tveir fyrstu togararnir fóru á síldveiðar 1908 og voru þeir skip- stjórar Halldór Kr. Þorsteinsson og Hjalli Jónsson. Á næstu árum voru þeir helztu brautryðjendur í síldárútgerð Thor Jensen, Otto Tulinius, Elías Stefáns- so,n, Ásgeir Pélursson, Ole Tynes, Helgi Hafliðason og Ragnar Ólafsson. Síðar komu til sögunnar Óskar Hall- dórsson og Ingvar Guðjónsson og margir fleiri. Þegar farið var að nota lierpinótina almennt við veiðarnar varð afiinn svo mikill, að ekki var hægt að hagnýta hann allan til sölt- unar og frystingar. Til þess þurfti að grípa til sömu ráða hér og annars staðar, þar sein líkt stóð á, að liag- nýta mikinn liluta aflans í síldar- bræðslustöðvum og vinna þar úr lion- um lýsi og mjöl. Norðinaðurinn Thormod Bakkevig setti upp fy.rstu dúkapressuna til vinnslu bræðslusíldar 1908, og árið 1910 kom, liann og þýskt-norkst fé- lag, sem Anton Brobakke veitti for- stöðu, upp fyrstu síldarbræðslu- ..stöðvumim hér á landi i Siglufirði. • Þessar , fyrstu bræðslustöðvar voru .Útbunar dúkapressuin og voru af- kastaJitlar og seinvirkar. Árið 1911 voru einnig starfræktar hér tvær hræðslustöðvar í skipum, önnur norsk en hin dönsk. Árið 1910 hafði amerískt félag, sem bjó til síldarbræðsluvélar, sent þýskan verkfræðing, M. J. Schretzen- meyer, til Noregs og stjórnaði hann þar byggingu á fyrstu síldarverk- smiðjunni, sem byggð var með sjálf- virku áframihaldandi vinnsluaðferð- inni. Þessi maður stóð síðar fyrir byggingu Krossanesverksmiðjunnar árið 1913, og var það i'yrsta síldar- verksmiðjan, sem reist var hér á landi, sem vann með amerísku að- ferðinni. Siðan var Sohretzenmeyer leiðbein andi við byggingu og endurbætur flestra síldarverksmiðja, sem byggð- ar voru hér á landi fram til ársins 1930, þar á meðal fyrstu síldarverk- smiðju rikisins, sem reist var á Siglufirði 1929—’30 undir yfirstjórn Guðmundar Hlíðdals verkfræðings. Fyrstu síldarverksmiðjurnar, sem voru eign innlendra félaga, Andvara á önunílarfirði og Kveldúlfs á Hest- eyri, voru byggðar árin 1925 og 26 upp úr hvalveiðistöðvum, sem Norð- menn höfðu byggt á sínum tíma. Höfuðatvinnuvegir Islendinga urðu fyrir miklum áföllum á fyrstu árun- um eftir fyrri heimsstyrjöldina, sök- um verðhruns, sem fylgdi í kjölfar styrjaldarinnar. Verðfallið kom fyrst fram á salt- síldarframleiðslunni 1919 og urðu íslendingar þá fyrir mjög miklu tjóni af þeim sökurrr. Á jiessiim árum var þegar vel aflaðist saltað meira af síld, en hinn' takmarkaði mark- Síldarverksm. ríkisins, Siglufirði aður-þoldi, m.a. vegna þess, að lítið annað var hægt að gera við aflann, en að salta liann í tunnur, því að magn það, sem íshúsin og hinar fáu síldarbræðslur gátu hagnýtt var svo lítið, sólarhrings afköst þeirra allra tii samans aðeins 3000 mál samtals. Þar við bættist, að síldarbræðslurnar voru eign útlendinga og sátu þeir oft fyrir viðskiptum. Af þessum sökum urðu bestu afla- árin á s.íldveiðunum stundum mestu Itapárin hjá íslenzkum síldarútvegs- mönnum. Var talið, að aðstaða sú, sem Norðmenn liöfðu hér á landi til þess að nota ísl. hafnir og land- stöðvar, sem bækistöðvar fyrir síldar útgerð sína hér við land, ætti megin þátt í því að eyðileggja afkomu Is- lendinga sjálfra á síldveiðunuin. Með fiskveiðalöggjöíinni frá 1922 var útlendingum bannað að hafast hér við í landi eða höfnum til þess að reka þaðan fiskveiðar utan land- helgi. Þó nutu danpkir ríkisborgarar jafnréttis við landsmenn skv. sam- bandslögunum, og heimilað var að veita ríkisborgurum annarra þjóða undaniþágu frá lögunum skv. milli- ríkjasamningum. Til þess að fá lækkun á innflutn- ingstolli á íslenzku saltkjöti í Noregi voru slíkar undanþágur veittar til löndunar á takmörkuðú magni bræðslusíldar úr norskum skipum. Vöktu þessar undanþágur mikla óánægju íslenzkra útgerðarmanna. — Síldareinkasala var stofnuð skv. lög- um árið 1928 en varð gjaldþrota 1931. Síldanútvegsnefnd hefur starfað síðan 1935 og haft með höndum sölu saltsíldar og hefur salan yfirleitt tekizt vel. Formenn nefndarinnar hafa verið Finnur Jónsson, Sigurður Kristjánsson og Jón L. Þórðarson. Óskar Halldórson hélt því fram í ítarlegri blaðagrein í dagblaðinu „Vísi“ vorið 1924, að bezta ráðið til þess að Iosa síldarútveginn undan yfirráðum útlendinga og efla atvinnu í landinu, væri að ríkið setti á stofn Síldarverksmiðjur og léti starfrækja þær. Taldi Óskar, að einstökum ínönnum eða félögum væri ofvaxið að leggja fram svo mikið fé sem þyrfti til byggingar verksmiðjanna. Hinsvegar ætti útgerð einstaklinga að halda áfram að afla síldarinnar fyrir eigin reikning. Bæði útgerðar- menn og sjómenn myndu stórhagn- ast á rekstri verksmiðjanna, ef þær yrðu reistar. Síldin væri mesta verð- mæti, sem Islendingar ættu kost á að liagnýta sér. „Síldarverksmiðjurnar eiga hæði sína góðu og slæmu tíma,“ sagði Óskar, en þær geta orðið að ómetan- legu gagni fyrir þjóðina. Vann Óskar síðan aö íramgangi málsins á marg- víslegan hátt. Hann fékk marga áhrifamenn il fylgis við málið. Þar á meðal Magnús Kristjánsson, alþ.m., sem bar fram þingsályktunartillögu á Alþingi 1927 „um rannsókn á kostnaði við að byggja fullkomna síldarverksmiðju á hentugum stað á Norðurlandi". Tillagan var samþykkt nær einróma. Þegar til framkvæmda á henni kom, var Jóni Þorlákssyni falin rannsóknin. Leysti hann hana hæði fljótl og vel af hendi. Á Alþingi árið 1928 fluttu þeir Erlingur Friðjónsson og Ingvar Pálmason frumvarp um stofnun síldarbrseðslustöðvar á Norðurlandi. Frumvarpið náði samþykki og not- aði Tryggvi Þónhallsson, atvinnu- málaráðherra, heimild Alþingis til að láta reisa fyrstu síldarverksmiðj- una á árunum 1929—’30 í Siglufirði. Forstöðunjaður byggingarinnar var Guðmundur Hlíðdal verkfræðingur, og aðalaðstoðarmaður hans Schretz- enmeyer, sem áður getur. Stofnkostnaður verksmiðjunnar nam um kr. 1.460.000,00 auk lóðar, sem Siglufjarðarkaupstaður lagði til. Afköst verksmiðjunnar voru fyrsta sumarið í um 1700 mál, en það tókst að auka þau i 2300 mál á sóiarhring, þegar hún var komin i fullt lag. Fyrsta stjórn verksmiðjanna var skipuð árið 1930, og var Þormóður Eyólfsson, ræðismaður, fonnaður hennar, Óscar Ottesen, norskur mað- ur, sem verið hafði framkvæmda- stjóri við verksmiðju Dr. Pauls í Siglufirði, varð fyrsti framkvæmda- stjóri Síldarverksmiðja ríkisins. Var það verksmiðjunum mikið lán, að hann valdist í það starf. Á fyrsta starfisári verksmiðjanna féll verðið á síldarlýsi um 2/3 hluta. Hélzt þetta lága verð á síldarlýsinu fram til ársins 1935, að verðið fór aftur að liækka á lýsinu. Var verðið á bræðslusíldinni á þessum árum ekiki nema kr. 3,00—4,50 og lengst af aðeins kr. 3,00 málið. Verðfallið á síldarlýsinu 1930 hafði komið svo hart niður á síldarverk- smiðjunum, að erlendur eigandi tveggja þeirra varð gjaldþrota og eigandi hinnar þriðju Dr. Paul liætti starfrækslu og seldi Síldarverksmiðj- um ríkisins verksmiðju sína árið 1933. Hafði Bjarni Snæhjörnsson fengið samþykkta heiinild um kaup- in á Alþingi og Magnús Guðmunds- son, atvinnuniálaráðherra ákveðið- að nota heimildina. Fyrsta Síldarverk- smiðja ríkisins reyndist strax ómiss- andi stoð fyrir síldarútveginn og þrátt fyrir verðfallið á síldarlýsinu bar verksmiðjan sig fjárhagslega. — Varð þetta til þess, að haustið 1933 samþykkti Alþingi með samhljóða atkvæðuin lög um heimild fyrir ríkis stjórnina lil þess að reisa nýja síldar verksmiðju á vegum ríkisins á Norð- urlandi. Magnús Guðmundsson ákvað að nota lieimild Alþingis og fól þeim Guðmundi Hlíðdal og Geir Zoega yfirstjórn byggingar verk- smiðjunnar. Verksmiðja þessi var reist árin 1934—’35 og nefnd S.R.N.- verksmiðjan. Nú hófust innlend félög einnig handa um byggingu nýrra síldar- verksmiðja. Á Dagverðareyri var byggð ný verkismiðja upp úr gamalli Síldarbræðslustöð, sem þar hafði verið. Djúpavík h.f. reisti síldar- verksmiðju við Djúpavtk í Reykjar- firði, og Kveldúlfur h.f. síldarverk- 'Smiðju á Hjalteyri vð Eyjafjörð. S.R. keyptu liinar gömlu verk- 'smiðjur á Sólhakka og Raufarliöfn árið 1935. Það ár var liafn vinnsla á karfa lijá S.R. í allstórum stíl. Var unnið úr karfanum lýsi og mjöl og vítámínlý.si úr lifrinni. Átti Þórður Þorbjarnarson, fiskifræðingur, mikinn þátt í því, að þessi vinnsla var hafin. Kæliþró til síldargeymslu var hyggð í Siglufirði árið 1937, skv. tillögu Gísla Halldórssonar, verkfræðings, þáverandi framkvæmdastjóra verk- smiðjanna, en ekki hafa þær tilraun- ir, sem gerðar hafa verið til geymslu á kæjdri síld í þrónni tekizt vel. Bjarni Snæbjörnsson, t'lutti 1937 frumvarp á Alþingi um nýja 5000 mála Síldarverksmiðju á Raufarhöfn sem náði samþykkt með þeirri breyt- ingu, að helmingur afkastaaukning- arinnar skyldi koma á Siglufjörð. Afköst S.R.N. verksmiðjunnar voru aukin um 2500 mál fyrir síldarver- tíð 1938 skv. þessari lieimild, sem Haraldur Guðmundsson, atvinnu- málaráðherra ákvað að nota. — Hafði Jón Gunnarsson yerkfræðingur, fram kvæmdastjóri verksmiðjanna yfir- stjórn byggingaifiu.inkvæmdanna með höndum, eins og endranær, meðan hann var frainkræmdasljóri verk- smiðjanna. Á Alþingi 1940 var samþykkt frum- varp Ólafs Thors atvinnumálaráð- lierra um heimild til stækkunar Raufarhafnarverksmiðjunnar upp í 5000 mála afköst á sólarhring og stækkun Dr. Paulsverksmiðjunnar um 2500 mál. Áður höfðu miðstjórnir Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokks- ins lýst fylgi við þessar framkvæmd- ir. Þrátt fyrir það, að framkvæmda- stjóri og stjórn verksmiðjanna sækti það mjög fast, að notuð yrði heimild Alþingis til þess að reisa hina nýju síldarverksmiðju á Raufarhöfn, varð á því nokkur dráttur vegna þess, að töf varð á því að lán fengist til framkvæmda. Einnig skorti innflutn- ingsleyfi á nauðsynlegum tækjum og byggingarefni. Sumarið 1939 voru framkvætndir því ekki lengra komnar, en svo, að fest höfðu verið kaup á lóðum, verk- smiðjuhúsið verið reist og komið fyrir í því annarri aðal aflvélinni ásamt rafal, en allar lielztu síldar- vinnsluvélar, geymslur, löndunartæki, þrær og fleira vantaði. Hinn 21. ágúst 1939 fóru þeir Ás- geir Ásgeirsson bankastjóri og Jón Gunnarsson framkvæmdastjóri utan skv. ósk ríkisstjórnarinnar, til þess að freista að fá lán til byggingar Raufanhafnarverksmiðjunnar, og jafn- vel til 2500 mála stækkunar á Dr. Pauls ríkisverksmiðjunni á Siglufirði. Ennfremur skyldu þeir, ef lán feng- izt, festa kaup á vélum og öðru, sem nauðsynlegt væri til þessara bygg- inga. Ferðin tókst mjög giftusamlega, þrátt fyrii' ýmsa örðugleika, sem við var að etja, in.a. sökum þess, að heimsstyrjöldin síðari hrauzt út með- an á ferðinni stóð. Lán fékkst með góðum kjörum fyrir verulegum liluta vélanna, og fest voru kaup á helztu vélum og efni til þessara fram- kvæmda. Varð þessi för til þess, að takast mátti að reisa síldarverksmiðjuna á Raufarhöfn fyrir sildarvertíð 1940, en svo skall liurð nærri hælum, að helztu viinnsluvélannar í Raufar- hafnarverksmiðjuna fóru frá Noregi með skipi, sem sigldi þaðan, daginn fyrir innrásina í landið. Vélarnar í Dr. Paulsverksmiðjuna komust ekki frá Noregi vegna styrj- aldarinnar, svo að kaupa varð vél- arnar til stækkunar þeirrar verk- smiðju frá Bandaríkjunum og tafðist stækkunin um eitt ár af þeim sökum. Þessi stækkun á síldarverksmiðjun- um varð til ómetanlegrar hagsbóta fyrir síldarútveginn á næstu árum. Meðan á styrjöldinni stóð byffgðist

x

Siglfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.