Siglfirðingur - 02.12.1955, Side 1
20. tölublað. vMy Föstudagurinn 2. des. 1955.
28. árg.
Tónlistarkynning
Ríkisútvarpsins
Svo sera skýrt hefur verið frá
í fréttum Ríkisútyarpsins hefur
það hafið nýjan þátt í starfsemi
sinni með því að senda hóp tón-
listarmanna í kauptún og kaup-
staði úti á landi til að kynna ýmis-
konar tónlist. Hefur þannig hópur
tónlistarmanna ferðast um ÍVest-
firði og Austfirði. — Nú er rétt
lokið ferðalagi eins hópsins um
Norðurland. Hefur hann haft
samkomur á Húsavík og Akur-
eyrí. j i| þ
Síðastl, föstudag 18. þ.m. kom
flokkurinn til Siglufjarðar og
kynnti tónlist 1 Sjómannaheimil-
inu hér í bæ, bæði á föstudags-
og laugardagskvöld við húsfylli
bæði kvöldin.
Kynningin hófst bæði kvöldin
með því að Kristinn Hallsson,
óperusöngvari söng lög eftir ís-
lenzku tónskáldin Árna Thor-
steinsson, Karl RunófEsson og Sig-
valda Kaldalóns. Var vel til fallið
að kynna sumar þessar íslenzku
tónsmíðar, því ekki verður þess
minnzt, að þær hafi verið flutt
fyrr á opinberum vettvangi, en
þó þess verðar. Mætti vera, að
sumir vildu kynnast þeim betur.
Að síðustu kynnti óperusöngvar-
inn aríu úr óperunni „Don Gíó-
vanni“. Flutti söngvarinn þetta
snotra tónverk eftir Mozart með
mikilli prýði, er bar vott um góða
menntun og sigurvænlegan þroska.
Áheyrendur tóku óperusöngvar-
anum með mikilli hrifningu og
varð hann að taka aukalög. Varð
hrifni áheyrenda dáhtið áberandi
við meðferð hans á hinu einkar
snotralagi Árna Thorsteinssonar
,,Rósinni“, og var það auðheyr-
anlegt að áheyrendur óskuðu eftir
að heyra það lag endurtekið, enda
var meðferðin á því lagi sérlega
áferðarfögur og smekkleg.
Undirleik annaðist Fritz Weiss-
happel. Var undirleikur hans eins
og vant er ákaflega viðfelldin og
smekklegur. — Vill undirleikur
Weisshappels, sem oft heyrist í
útvarpinu, stinga mjög í stúf við
hamrið og ærslaganginn í sumum
undirleikurum í útvarpinu. Skell-
irnir og hvellirnir, sem þeir fram-
leiða á hljóðfærið yfirgnæfa rödd
einsöngvarans og jafnvel góður
kórsöngur hverfur manni d þetta
glamur. Þetta er nú útúrdúr, en
ætlast til, að hann verði tekinn
til athugunar af réttum aðilum. i
-'íæ.i
Næsta atriði tónlistarkynningar
innar var það, að strengjakvintett
Ríkisútvarpsin.s flutti „Eine kleine
Nachtmusik“ (Lítið næturljóð)
eftir W. A. Mozart. Þetta guil-
fallega og sniðuglega byggða næt-
urljóð var flutt af mikilh iist og
kunnáttu áheyrendum til mikillar
ánægju.
Síðasta atriðið var ópera eftir
G.B. Pergolesi, gamansöngleikur í
tveimur þáttum. Með sönghlut-
verkin fóru óperusöngvararnir
Guðrún Á. Símonar og Guðmund-
ur Jónsson, en Kristinn Hallsson
lék þögult hlutverk. Undirleik
annaðist strengjahljómsveit undir
stjórn Fr. Weisshappels, sem lék
einnig á píanó. Hrifningin var
mikil yfir söng þeirra Guðrúnar
og Guðmundar, og vakti sérstak-
lega mikinn hlátur hin fjölbreyti-
legu svipbrigði Guðmundar.
Að lokinni sýningu á föstudags-
kvöldið kvaddi sér hljóðs Sigur-
jón Sæmundsson og ávarpaði lista
mennina, þakkaði þeim fyrir kom-
una og þá ágætu skemmtun, sem
þeir hefðu veitt Siglfirðingum
þessa stund, og bað þá flytja
Ríkisútvarpinu þakkir fyrir að
hefja þetta merkilega kynningar-
starf á tónhst úti á landsbyggð-
inni.
Seinna kvöldið ávarpaði Jón
Kjartansson bæjarstjóri lista-
mennina og þakkaði þeim ógleym-
anlega ánægjustund. Þakkaði út-
varpinu fyrir, að með þessuni
þætti leitaðist það við að skapa
jafnvægi milli þéttbýlisins og
dreifbýlisin;;, og þarna kæmi í
ljós, að til þess þyrfti fleira en
atvinnubótafé, fé til skipakaupa
og hraðfrystihúsbygginga. Voru
listamennirnir að lokum kvaddir
með húrra-hrópum. Eftir sýningu
seinna kvöldið, hafði bæjarstjórn-
in boð inni að Hótel Hvanneyri
fyrir listamennina.
Guðmundur Jónsson svaraði
bæði kvöldin ávörpum og þakkaði
fyrir vinsamleg ummæli og ágætar
viðtökur.
Framhald á 4. síðu)
Rannsökn á millilida-
kostnaði
Blöð vinstri flokkanna hafa
löngum hamrað á þeirri staðhæf-
ingu, að launin, sem framleiðsla
landsmanna verður að greiða,
valdi ekki hinni erfiðu og óglæsi-
legu afkomu hennar, heldur sé
meginörsök hallareksturs atvinnu-
veganna og allrar dýrtíðar í land-
inu óhóflegur gróði ýmiskonar
milliliða, sem selur framleiðslunni
vörur og veitir henni aðra þjón-
ustu.
Nú hefur komið fram á yfir-
standandi Alþingi þingsályktunar-
-tillaga um að rannsókn fari fram
-á því, hver sé hlutur millilið-
anna í framleiðslukostnaði þjóð-
arinnar og hvort hægt sé að
minnka hann.
Tillögu þessa flytja sex þing-
menn Sjálfstæðisflokksins, Sig-
urður Bjarnason, Magnús Jónsson
Sigurður Ágústsson, Jón Sigurðs-
son, Kjartan Jóhannsson og Ing-
ólfur A. Flygenring og er hún
þannig:
„Alþingi ályktar að kjósa nefnd
5 sérfróðra manna til þess að
rannsaka þátt millihða í fram-
leiðslukostnaði þjóðarinnar, —
þannig að úr því fáist skorið,
hvort hann sé óhóflega mikill, og
skal samanburður gerður á milli-
liðakostnaði hér og í nálægum
löndum. Jafnframt verði athugað
hvort og þá hvernig auðið sé að
lækka milliUðakostnaði. Skal leit-
ast við að haga þessari rannsókn
svo, að álitsgerð liggi fyrir, er
næsta reglulegt Alþingi kemur
sarnan."
Greinargerð fyrir tillögunni
skýrir nánar, hvernig rannsókn-
inni skuli hagað, svo hún beri
þann árangur að á henni megi
svo byggja ráðsafanir af hálfu
Alþingis og ríkisstjórnar. —
iSvo segir í greinargerðinni
meðal annars:
„Það er vítavert ábyrgðarleysi
að fjölyrða um það ár eftir ár,
að milliliðakostnaðurinn eigi rík-
an þátt í hallarekstri framleiðsl-
unnar, en láta svo undir höfuð
leggjast, að framkvæma rann-
sókn, sem leiði sannleikann í ljós
og leggi grundvöll að umbótum
í þessu efni.“
Eins og getið er um hér að
framan, hafa blöð vinstri flokk-
anna og þó sérstaklega forráða-
menn kommúnista og Þjóðvarnar-
flokksins og Alþ.fl. hamrað lát-
laust á því, að milliliðagróðinn
væri að miklu eða jafnvel öllu
leyti þess valdandi, hve afkoma
atvinnuveganna væri óhagstæð.
Aldrei hefur þó þessum heið-
ursmönnum fundizt sjálfum svo
mikið til um þetta gaspur sitt,
að þeir hafi treyst sér til að óska
eftir rannsókn í þessu efni.
Það hefði mátt búast við, að
þeir tækju þessarí tllögu með
Fiskiveiðasjóður
Islands 50 ára
Hinn 10. þ.m. voru liðin 50 ár
frá því Fiskiveiðasjóður Islands
varð stofnaður. Valtýr Guðmunda
son, fyrrverandi þingmaður Gull-
bringu- og Kjósarsýslu, flutti
frumvarp á Alþingi um stofnun
hans.
Fiskiveiðasjóður hefur síðan
innt af liendi sitt upphaflega áætl-
unarverk að efla fiskiveiðar og
sjávarútveg landsmanna. Þótt
hann hafi að jafnaði elcki haft
yfir mi-klu fé að ráða, hefur hann
stutt mjög einstaklinga og fé-
lagasamtök til kaupa á fisidbát-
um, vélum í fiskiskip og fislc-
vinnslustöðva. Þess utan hefir
hann styrkt menn til utanfarar
til að kynna sér nýjar veiði- og
verkunaraðferðir. Hefur sjóðurinn
að þessu leyti gegnt mjög þýð-
ingarmiklu hlutverki. Upphaflega
var stofnfé sjóðsins 100 þúa. kr.,
sem landssjóður lagði fram, en
auk þess voru honum ætlaðar
þessar tekjur:
Sex þús. kr. árlegt framlag úr
landssjóði, y3 sektarfjár fyrir
ólöglegar veiðar í landhelgi, að
meðtöldu x/3 andvirðis þess, er
greiðist fyrir upptækan afla og
veiðarfæri.
Lögum sjóðsins var breytt
1930. Framlag ríkissjóðs var
hækkað 1 1 milljón kr. Einnig var
lagt á fiskiveiðarsjóðsgjald, er
nam x/s % af andvirði útfluttra
sjávarafurða. Tekjur sjóðsins
hafa enn verið auknar með nýj-
um breytingum á lögum sjóðsins.
Reglum sjóðsins um lánveitingar
hefur einnig verið breytt.
Alþingi samþykkti 8 millj. kr.
framlag til sjóðsins af tekjuaf-
gangi ríkissjóðs 1954 og ennfrem-
2 millj. kr. framlag úr ríkissjóði
frá n.k. áramótum.
Þó tekjur Fiskveiðasjóðs Is-
lands hafi aukizt mjög og fram-
lag ríkissjóðs hækkað, vantar
enn mikið á, að sjóðurinn geti
fullnægt lánbeiðnum. óafgreiddar
lánbeiðnir eru nú að upphæð 59
millj. kr. en handbært fé sjóðsins
er nú aðeins 16 millj. kr.
Á árinu 1954 veitti hann ný lán
að upphæð kr. 20,9 millj. kr. og
svipaða upphæð hefur hann lán-
að á þessu ári til októberloka.
Útlán sjóðsins öll eru nú rúm-
lega 600 að tölu og upphæð
þeirra samtals 79,5 miilj. kr.
feginleik. En það fór nú víst á
annan veg. Þingmaður Þjóðvarn-
arfl., Bergur, varð eitthvað miður
sín, enda hefur hann talað of
mikið.
Það er enginn vafi á, að beðið
verður með óþreyju eftir niður-
stöðu slíkrar rannsóknar, ef
samþykkt verður að framkvæma,
hana. , .•
, • —«f*'—-^-4