Morgunblaðið - 02.06.2011, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Saksóknari Al-
þingis hefur opn-
að vefsvæðið sak-
al.is, en á vefnum
er að finna upp-
lýsingar um máls-
höfðun Alþingis
gegn Geir H.
Haarde, fyrrver-
andi forsætisráð-
herra. Mál Geirs,
sem ákærður er
fyrir brot gegn ákvæðum laga um
ráðherraábyrgð og hegningarlaga-
brot til vara, verður þingfest fyrir
Landsdómi hinn 7. júní næstkom-
andi. Þar sem málið er hið fyrsta og
eina sinnar tegundar fjallar vefurinn
um það eitt. Til samanburðar er lítið
sem ekkert fjallað um einstök mál á
heimasíðum embætta Sérstaks sak-
sóknara og Ríkissaksóknara.
Eina verkefni saksóknara
Sigríður J. Friðjónsdóttir, sak-
sóknari Alþingis, segir markmiðið að
auðvelda aðgengi fólks að upplýsing-
um er málið varða og halda þeim til
haga á einum stað. Engum vef sé til
að mynda haldið úti á vegum Lands-
dóms og hún viti ekki til þess að það
standi til.
„Þetta er náttúrlega eina verkefn-
ið sem saksóknari Alþingis er með.
Gögnin í því hafa birst meira og
minna öll í skýrslu Rannsóknar-
nefndar Alþingis og síðan í þings-
ályktuninni [um málshöfðun] og
skýrslu þingmannanefndarinnar
[um niðurstöður Rannsóknar-
nefndarinnar],“ segir Sigríður. Með
tilkomu vefjarins hljótist einnig það
hagræði að ekki þurfi sífellt að svara
sömu spurningunum, þar sem upp-
lýsingar um til að mynda þinghöld sé
þar að finna.
Sigríður segir að þar sem almenn-
ingur hafi „eðlilega mikinn áhuga á
þessum blessuðu hrunsmálum öllum
sé rétt að veita upplýsingar um það
hvað þarna er á ferðinni“.
Ekki náðist í Andra Árnason, verj-
anda Geirs H. Haarde.
einarorn@mbl.is
Opnar vefsíðu um mál Geirs
Nýjum vef ætlað að veita yfirsýn yfir landsdómsmálið á hendur Geir H. Haarde
Fyrsta og eina mál sinnar tegundar og almenningur áhugasamur um hrunsmál
Sigríður J.
Friðjónsdóttir
Landsdómur
» Landsdómur heldur ekki úti
eigin vefsíðu.
» Á vefsvæðinu landsdomur.is
getur hins vegar að líta mynd af
gapastokki. Vefsvæðið er í eigu
Baggalúts ehf.
» Mál Alþingis gegn Geir H.
Haarde, fv. forsætisráðherra,
verður þingfest fyrir Landsdómi
í næstu viku og ákæra honum á
hendur lögð formlega fram.
Æðarkóngur nefnist þessi glæsilegi fugl sem
dvelur í og við eitt æðarvarp á Íslandi þetta vor-
ið og sumarið. Er hann einn þriggja kónga á
svæðinu. Þessir fuglar koma til Íslands frá
Grænlandi og Svalbarða og sjást hér við land allt
árið en eru algengastir seinni hluta vetrar. Karl-
fuglar paraðir íslenskum æðarkollum eru árviss-
ir í stærstu vörpum útfjarða og á annesjum og
kynblendingsblikar sjást árlega.
Æðarkonungur í ríki sínu
Ljósmynd/Sigurður Ægisson
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Gífurlegur samdráttur er í umferð á
þjóðveginum á Hellisheiði milli ára.
Þetta kemur fram í nýjum tölum
Vegagerðarinnar en samkvæmt
þeim fóru 22% færri bílar um veginn
í maí en í sama mánuði í fyrra.
Sé litið á þróunina eftir lands-
hlutum kemur í ljós að samdrátt-
urinn milli mánaða er mestur á
Suðurlandi eða 19,9%, 15,1% á
Vesturlandi, 13,4% á Norðurlandi,
12,7% á Austurlandi og 4,5% á
höfuðborgarsvæðinu. Sé litið til upp-
safnaðs aksturs frá áramótum er
samdrátturinn ívið minni eða 17,8%
á Suðurlandi, 10,3% á Vesturlandi,
7,4% á Norðurlandi, 6,5% á Austur-
landi og 6,2% á höfuðborgarsvæð-
inu, þar sem aksturinn raunar eykst.
Íþyngjandi bensínverð
Umferðarþungi ræðst af mörgum
þáttum, þar með talið veðurfari.
Með fyrirvara um óvissuþætti
sýnist hins vegar óhætt að draga þá
ályktun að meira hafi dregið úr um-
ferðinni eftir því sem líður á árið en
það kann aftur að vera afleiðing stig-
vaxandi hækkana á eldsneytisverði.
Má þar nefna að algengt lítraverð á
95 okt. bensíni var á bilinu 202 til 204
kr. 1. desember í fyrra. Bensínverðið
var 222 kr. í sjálfsafgreiðslu 23. febr-
úar en er nú í ríflega 237 kr.
Á vef Vegagerðarinnar segir að
frá áramótum nemi samdrátturinn í
umferð tæpum 9% sem sé „gífurlega
mikill samdráttur í sögulegu sam-
hengi“. „Miðað við spá Vegagerð-
arinnar stefnir í samdrátt á árinu
sem nemur 8-9 prósentum. Það er
metsamdráttur síðan 1975 og er
þrisvar sinnum meiri samdráttur en
hann hefur orðið mestur áður.“
Gífurlegur
samdráttur
í umferð
Nemur 22% á Hellis-
heiði í maí milli ára
Umferð Á Hellisheiðinni.
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Í maímánuði eru landsmenn oft farn-
ir að bíða óþreyjufullir eftir sumrinu.
Vorið virtist ætla að verða gott í upp-
hafi mánaðarins en veturinn bankaði
aftur upp á og leit í stutta heimsókn
er á mánuðinn leið. Það skipti algjör-
lega í tvö horn með tíðarfarið í nýliðn-
um maímánuði samkvæmt yfirliti
Trausta Jónssonar veðurfræðings.
Hiti var langt yfir meðallagi fyrstu
tíu dagana í maí og vel yfir því fram
til hins 19. Þá kólnaði verulega, sér-
lega kalt var í nokkra daga og svöl tíð
hélst til mánaðamóta. Eins og
skemmst er að minnast gerði norð-
anáhlaup dagana 23. og 24. maí og
snjóaði þá víða norðanlands og aust-
an.
Lægsti hiti mánaðarins mældist
-13,8 stig á Brúarjökli hinn 25. maí.
Er það lægsti hiti sem mælst hefur á
landinu þennan ákveðna dag mánað-
arins. Eins var með lægsta hita í
byggð sem mældist sama dag -8,2
stig á Grímsstöðum á Fjöllum. Hæsti
hiti í mánuðinum mældist 18,4 stig á
Þingvöllum hinn 8. maí. Meðalhiti í
maí var hæstur í Skaftafelli, 7,3 stig.
Lægstur var hann í byggð 2,3 stig í
Möðrudal.
Meðalhiti í Reykjavík var 6,9 stig
og er það 0,6 stigum yfir meðallagi
áranna 1961 til 1990. Á Akureyri var
meðalhitinn 5,2 stig, 0,3 stigum undir
meðallagi. Hiti var víðast lítillega
undir meðallagi frá Vestfjörðum og
austur um til Fljótsdalshéraðs, en
heldur ofan við frá Austfjörðum suð-
ur um til Breiðafjarðar.
Maímet í úrkomu voru slegin á all-
nokkrum stöðvum á svæðinu frá
Vopnafirði suður í Neskaupstað.
Frekar þurrt var syðst á landinu. Úr-
koma í Reykjavík mældist 66,2 mm
og er það um 50% umfram meðallag.
Meira en helmingur úrkomunnar,
38,8 mm, bókast 1. maí en hún féll
milli kl. níu að morgni 30. apríl og níu
að morgni 1. maí. Ekki hefur áður
mælst svo mikil sólarhringsúrkoma í
maí í Reykjavík.
Úrkoman á Akureyri mældist 55,0
mm og hefur aðeins einu sinni mælst
meiri í maí, það var árið 1929 er 59,2
mm komu í mælinn. Mest snjódýpt í
mánuðinum mældist 25 cm á Gríms-
stöðum á Fjöllum hinn 24. maí.
Fyrstu fimm mánuði ársins hefur
verið hlýtt á landinu og teljast þeir
því til hlýskeiðsins sem ríkt hefur hér
á landi síðasta áratuginn.
Svo er bara að vona að sumarið láti
sjá sig með hæfilegum skammti af sól
og rigningu í júní.
Skiptir í tvö horn með tíðarfarið í maí
Hiti langt yfir meðallagi fyrstu tíu
dagana í maí, svo gerði norðanáhlaup og
snjóaði víða er leið á mánuðinn
Morgunblaðið/Ómar
Veðurfar Fallegt sólsetur og snjór í
Kópavogi í maímánuði.
Sólskinsstundir
» Sólskinsstundir mældust
228,7 í Reykjavík í maí og er
það 37 stundum umfram með-
allag. Á Akureyri mældust sól-
skinsstundirnar 120,7 og er
það 53 stundum neðan með-
allags.
» Vindhraði var um 1,1 m/s yf-
ir meðallagi og hefur ekki oft
orðið meiri í maí síðustu 60 ár-
in.
» Úrkoma er um 8% umfram
meðallag í Reykjavík fyrstu
fimm mánuði ársins, en 45%
umfram meðallag á Akureyri.